Heilsuvernd - 01.09.1953, Side 34
94
HEILSUVERND
SPURNINGAR OG SVÖR.
K. M. spyr: Af hverju stafar hár hlóðþrýstingur, og hvernig
verður ráðin bót á honum?
Svar: Hár blóðþrýstingur er röskun á jafnvægi líkamans. Or-
sakir hans eru rangar lífsvenjur, en hann stafar jafnframt af
skorti ó andlegu jafnvægi, af áhyggjum og sálarstríði. — Með
lyfjum verður ekki ráðin bót á háum blóðþrýstingi. Beztu róðin
eru: 1. Forðast nautnalyf, svo sem áfengi, tóbak, kaffi og te, sem
öll eiga sinn þátt í að hækka blóðþrýstinginn. — 2. Nærast sem
mest á ósoðinni jurtafæðu. Kjötneyzla stuðlar hinsvegar að aukn-
um blóðþrýstingi. — 3. Föstur. Um þær eru ítarlegar leiðbeiningar
í bókinni Sjúkum sagt til vegar. — 4. Forðast áhyggjur og illar
hugsanir eftir megni. Andlegt jafnvægi er mjög háð líkamlegri
heilbrigði og vellíðan, og með heilnæmum lifnaðarháttum stuðla
menn ])annig á tvennan hátt að lækkun blóðþrýstings. — í einum
spurningaþætti er ekki hægt að gera þessu efni viðhlítandi skil,
og mun því verða rætt um það í sérstakri grein í næsta hefti.
SÚRKÁLSGERÐ.
í 1. hefti 1949 er lýst aðferð til að geyma hvítkál í skyrmysu, og
hefir hún reynzt vel. Samkvæmt rannsókn Sigurðar H. Péturs-
sonar, gerlafræðings, var í kálinu hreinn skyrgerlagróður. Hin
gamla erlenda aðferð við súrkálsgerð er í því fólgin að brytja
kálið, blanda það salti og fergja vel. Gallinn við þá aðferð er sá,
að þurfa að nota salt. Nýlega liefir frú Ebba Waerland lýst aðferð,
sem bætir úr þeim galla. í stað salts er notuð súrmjólk, 1 lítri á
móti 5 kg káls, og 250 gr af einiberjum, sem stráð er á milli laga.
Kálið þarf að vera undir fargi í 6 vikur á ekki of köldum stað, og
Árangurinn varð 'þessi (meðaltal):
Kjötætur Jurtaætur
Hnébeygjur ................. 383 846
Handleggjaútrétting (mín.) 10 49
1 hnébeygjunum höfðu jurtaæturnar þannig rúmlega
helmingi meira úthald en hinar íþróttaþjálfuðu kjötætur
og um 5 sinnum meira þol í því að halda handleggjunum út.
Þess skal ennfremur getið, að stúdentarnir urðu meira
eftir sig en keppendurnir frá Battle Creek. Urðu sumir
stúdentanna rúmliggjandi dögum saman vegna strengja.