Heilsuvernd - 01.04.1958, Qupperneq 11
HEILSUVERND
3
lags íslands í Hveragerði ásamt mörgum minni verkefn-
um. 1955 réðist Águst aftur í þjónustu þess opinbera, sem
fulltrúi hjá Húsameistara ríkisins, starfaði hann þar til
æviloka.
Ágúst var tvíkvæntur, hét fyrri kona hans Guðbjörg
Benónýsdóttir, áttu þau einn son, sem nú er 12 ára, Guð-
mund að nafni. Ágúst missti fyrri konu sína eftir stutta
sambúð. Seinni kona hans heitir Friðrikka Benónýs-
dóttir, er hún alsystir fyrri konu hans, áttu þau saman
3 efnilega syni, Kristján, Jón og Stefán. Æðrulaus og sterk
stóð frú Friðrikka við hlið manns sins í hinni erfiðu sjúk-
dómslegu hans bæði í heimahúsum og erlendis þar til
yfir lauk.
Ágúst Steingrímsson hefur reist sér marga og veglega
minnisvarða með teikningum sínum, bæði út um hinar
dreifðu byggðir lands vors, í Reykjavík og öðrum kaup-
stöðum. Sá minnisvarði, sem oss félagsmönnum í N.L.F.I.
þykir vænst um er Heilsuhælið í Hveragerði. Ágúst var
einn af tryggustu og fórnfúsustu félagsmönnum Náttúru-
lækningafélagsins.
Það má með sanni segja að æfi manns sé ferðalag. Á
þessu ferðalagi mætum við mörgum, sumum verðum við
samferða stuttan spöl, öðrum langa leið, en á næstu
krossgötum skiljast leiðir, menn kveðjast, þakka fyrir sam-
fylgdina, hittast ef til vill aftur en stundum aldrei aftur.
Við Ágúst urðum samferða nokkurn spöl á þessari ferð
vorri sem liggur frá vöggu til grafar. Ég er sannarlega
þakklátur forsjóninni fyrir að hafa verið svo lánsamur
að fá að kynnast honum þennan stutta tima. Því eitthvert
mesta lán vort í þessum heimi er það að fá að kynnast
góðu og göfugu fólki. Kynni okkar byrjuðu á öndverðum
vetri 1954 er ég tók við framkvæmdastjórastöðu hjá
N.L.F.I. Stóðu þá fyrir dyrum byggingarframkvæmdir
á Heilsuhælinu í Hveragerði. Ágúst hafði þá verið ráðinn
arkitekt félagsins og teiknaði heilsuhælið. Að sjálfsögðu
var ég öllum málum, sem að byggingu þessari lutu ókunn-