Heilsuvernd - 01.04.1958, Blaðsíða 13
HEILSUVERND
5
Með línum þessum vil ég fyrst og fremst votta frú Frið-
rikku Benónýsdóttur og sonum hennar innilega samúð
mína og Náttúrulækningafélagsins, megi hinn mikli eilífi
andi, sem í öllu og allsstaðar býr veita þeim kraft til að
bera sínar þungu byrðar, og við vonum að engum verði
lögð þyngri byrði á herðar en hann er fær um að rísa
undir. „Það er eins og hulin hönd hvarvetna mig leiði“.
Vér trúum því að hin volduga hönd almættisins leiði oss
í gegn um sérhverja þraut. Sorgin og gleðin eru systur,
báðar færa þær oss dýrmætar gjafir og reynslu. Sorgin
og gleðin eru kennslutæki í skóla lífsins.
Vertu sæll Ágúst, þakka þér fyrir samfylgdina og góða
viðkynningu. Þú gafst mér og öðrum fagurt fordæmi í
samviskusemi, drenglyndi og góðu dagfari.
Sigurjón Danivalsson.
GJAFIR OG ÁHEIT.
J. S., áheit .................................... kr. 50.00
Frá góðum gesti ................................. — 100.00
Ásta Eiríksdóttir, áheit ........................ — 250.00
Kærar þakkir fyrir gjafir yðar.
S t j ó r n i n .