Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 40
Annað er van- virðing við höfunda sem hafa kannski setið sveittir við skriftir í mörg ár en mæta svo karli í sjón- varpinu sem rífur plastið utan af bókinni og byrjar að rausa um hana. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg @frettabladid.is Egill Helgason segir gaman ef fólk ber sig eftir bókum og lestri eftir að hafa horft á Kiljuna. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON 22 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL Egill Helgason les jafnt dag sem nótt allt árið um kring en langar þó bara í eina bók að gjöf um þessi jól. „Í guðanna bænum; ekki gefa mér bækur í jólagjöf! Ég er þegar búinn að lesa tugi bóka úr jólaútgáfunni nú og fæ sendar til mín nær allar bækur sem koma út á Íslandi,“ segir sjónvarpsmaðurinn Egill Helgason og hlær. Hann hugsar sig svo um og segir: „Jú, annars! Mig langar í eina bók í jólagjöf. Það er erlend bók eftir Paul McCartney um textagerð hans og Bítlanna. Hún er víst ótrú­ lega falleg og glæsilegur hönnunar­ gripur. Mig langar í bókina hans Pauls, enda verið Bítlaaðdáandi frá því ég var þriggja ára.“ Spennustig í hæstu hæðum Egill er hreinskilinn og segir desember tíma mikils áreitis sem sé ekki alltaf skemmtilegt. „Þá er spennustigið í bókabrans­ anum í hæstu hæðum og margir orðnir taugaspenntir, vilja komast í Kiljuna fyrir jól og eru jafnvel óánægðir með gagnrýni. Ég vil auðvitað allt fyrir alla gera en hef takmarkað pláss og get ekki sinnt öllum þótt ég glaður vildi. Ég þarf því að velja og hafna, sem getur verið hræðilega vont og valdið mér ansi mikilli vanlíðan, því ég vil helst veg allra sem mestan og tel mig vera velviljaðan. Það getur tekið á að velja hvað kemst að og hvað ekki. Að þessu leyti er dagurinn í dag ekkert sérlega góður,“ segir Egill, sem reynir að lesa sem flestar bækur sem er fjallað um í sjónvarpsþætti hans, Kiljunni á RÚV. „Ég er frekar fljótur að lesa og hef verið bókhneigður frá því ég var lítill strákur. Þá las ég heilu deildirnar í Borgarbókasafninu og var líka íþróttastrákur, en gerði þetta jöfnum höndum. Ég hef alla tíð verið mikið í kringum bækur og get til dæmis ekki sofnað á kvöldin nema að lesa fyrst. Ég er líka orðinn það gamall að ég sef ekki lengur í striklotu og vakna um nætur en gríp þá bók til að sofna aftur,“ segir Egill og er spurður hvort hann hafi þá svæfandi bók­ menntir tiltækar á náttborðinu. „Það er ýmist, en nú les ég bækur um býsanska ríkið á nóttunni. Það er gömul sagnfræði sem lætur mig sofna fljótt, þó ekki af leiðindum; það er fremur að ég svífi aftur í draumheima. Ég les mikið mér til gamans, og miklu meira en það sem ég les fyrir Kiljuna. Ég les fagurbókmenntir og reyni að fylgjast með því sem gerist í samtímanum en er kannski ekki alveg nógu góður í að fylgjast með því sem gerist erlendis í fagur­ bókmenntum. Sagnfræði höfðar líka mikið til mín og njósnasögur, Skemmtilegra að tala vel en illa um bækur sem mér þykir besta afþreyingin, sérstaklega ef þær gerast í kalda stríðinu.“ Í æsku voru Dagfinnur dýra­ læknir og Múmínálfarnir í miklum metum hjá Agli. „Í uppáhaldi voru líka bæk­ urnar um Gvend Jóns eftir Hendrik Ottós son, sögur úr Vesturbænum. Ég hef reynt að passa upp á þessar bækur, þótt aðrar hverfi.” Bókagagnrýni nauðsynleg Egill segist ekki fá neitt út úr því að bók fái vonda gagnrýni í Kiljunni. „Það getur vel verið að ég hafi verið illkvittnari á árum áður, en í dag finnst mér leiðinlegt ef bók fær slaka gagnrýni. Í þættinum eru sjálfstæðir bókagagnrýnendur sem ég hef engin áhrif á og hef ekki hugmynd um hvað þau ætla að segja fyrr en fimm mínútum fyrir þátt. Ég treysti þeim vel og finnst mikilvægt að hafa fast gagnrýnendateymi í þáttunum svo áhorfendur kynnist þeim vel, mismunandi áherslum þeirra og smekk. Sjálfum finnst mér miklu skemmtilegra að tala vel en illa um bækur. Það kemur fyrir að við teljum bækur svo klénar að þær verðskuldi ekki gagnrýni, það sé betra að fjalla ekki um þær en að hakka þær í spað. Í mínum huga á þetta að vera uppbyggilegur þáttur.“ Egill þvertekur fyrir að bóka­ gagnrýni sé tímaskekkja. „Þvert á móti er gagnrýni bóka nauðsynleg og listir þrífast illa ef ekki er gagnrýnin umræða um þær. Fólk verður svo að gera upp við sjálft sig hvort það taki mark á bókagagnrýni. Það er mikil­ vægt að hafa fasta gagnrýnendur – því miður hefur þeim fækkað í seinni tíð og það er ekki gott fyrir bókmenntirnar. Eins og ég sagði er gott að bæði höfundar og lesendur læri aðeins inn á gagn­ rýnendurna, þeir eru auðvitað ekki óskeikulir fremur en rithöf­ undarnir. Þannig hef ég verið með sömu gagnrýnendurna í Kiljunni um langt skeið, þótt nýir hafi líka bæst við reglulega,“ segir Egill. „Þannig er dýnamíkin í þessu. Ég er þáttastjórnandinn og tek oft ekki sterka afstöðu til bóka, þótt gagnrýnendurnir geri það. En mér finnst mikilvægt að mæta vel undirbúinn í þættina og fjalla helst ekki um bækur nema hafa lesið þær. Annað er vanvirðing við höfunda sem hafa kannski setið sveittir við skriftir í mörg ár en mæta svo karli í sjónvarpinu sem rífur plastið utan af bókinni og byrjar að rausa um hana. Slíkt er ekki sæmandi svo virðulegum bókmenntaþætti í Ríkissjón­ varpinu.“ Af heilindum og bestu samvisku Kiljan hefur nú verið á dagskrá í fimmtán ár. „Það er óvenjulegt að menning­ arþáttur lifi svo lengi,“ segir Egill. „Frá minni hálfu hefur þátturinn alltaf átt að vera alþýðlegur og aðgengilegur, því mér finnst mjög fagleg bókmenntafræðiumræða ekki eiga heima þarna. Þetta er þáttur fyrir alla landsmenn og á förnum vegi fæ ég mikil viðbrögð frá fólki sem gefur sig á tal við mig. Stundum er það fólk sem les lítið af bókum en horfir nú samt og það er gaman ef fólk ber sig eftir bókum og lestri í kjölfar Kiljunnar. Svo á ég minn dygga áhorfendahóp sem les mikið og er að meirihluta konur, enda sýna kannanir að þær lesa meira en karlar.“ Egill á von á því að Kiljan verði áfram á dagskrá næstu árin, enda þykir honum afar skemmtilegt að vinna að þættinum. „Svo þurfa aðrir að dæma um hvort þeir séu orðnir leiðir á mér. Ég reyni að sýna sanngirni og meta efnistökin út frá gæðum bóka. Gagnrýni er mikilvæg, eins og ég sagði áður, en maður þarf að stunda hana af heilindum og bestu samvisku og það held ég að okkur hafi tekist í gegnum árin. Heimur gagnrýnenda er mörgum hulinn. Þetta er harðduglegt fólk sem oftast stundar aðra vinnu líka en eyðir öllum kvöldum í að lesa bækur, brjóta þær til mergjar og mynda sér skoðanir, en bakar sér oft ekki annað en óvinsældir og hatur. Bókagagnrýnandi sem segir skoðun sína verður því ekki endi­ lega vinsæll og getur fengið það óþvegið á móti.“ Hægt að bíða tjón af því að lesa Besta bók sem Egill hefur lesið um dagana er Moby Dick eftir Herman Melville. „Af íslenskum bókum er það náttúrlega eitthvað eftir Kiljan. Ég var alinn upp við bækur Nóbels­ skáldsins og las ungur hvert einasta snifsi sem Halldór Laxness hafði skrifað á. Á þeim árum var gert ráð fyrir að maður læsi Laxness og manni fannst maður ólesinn ef maður hafði ekki þræl­ ast í gegnum allar stóru bækurnar hans. Nú er sonur minn að lesa Sjálfstætt fólk í skólanum og þykir hún flott en heldur langdregin á köflum. Það sem var kanóna og skyldulestur fyrir þrjátíu árum, er það ekki endilega lengur. Það er heldur ekki alltaf gott að bækur séu lesnar í skólunum og alveg hægt að bíða tjón af því, eins og til dæmis að þræla sér í gegnum leiðinlegustu kaflana í Njálu,“ segir Egill og hlær við. n
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.