Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 49

Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 49
 Fljótlega eftir að ég byrjaði að nota Smoother Skin & Hair frá Eylíf fór ég að finna mun og mér finnst hárið á mér verða heilbrigð- ara og heilbrigðara með hverjum deginum sem líður. Ragnhildur Sigurðar- dóttir golfkennari segist hafa kynnst Smoother Skin & Hair frá Eylíf í gegnum vinkonu sína, en hún hafði þjáðst af hárlosi og líflausu hári. Hún segist finna mikinn mun á sér. Ragnhildur er þessa dagana að undirbúa vetrarnámskeið sem hefj- ast í janúar. „Ég kenni í golfhermum GKG í vetur og skráningar eru í fullum gangi. Á þessum árstíma er oft rólegra í golfkennslunni en eftir að kylfingarnir fóru að átta sig á því hvað golfhermarnir hafa upp á að bjóða hefur ásóknin í þá aukist til mikilla muna. Vetrarnámskeið sem byrja oft í kringum áramót eru hins vegar mjög vinsæl og margir mæta árlega í þau til þess að vera klárir með fínu hreyfingarnar sínar fyrir vorið,“ segir hún. Ragnhildur segist hafa kynnst Smoother Skin & Hair frá Eylíf í gegnum vinkonu sína, Mjöll Daní- elsdóttur hárgreiðslukonu. „Hún ber ábyrgð á hárinu á mér. Henni leist ekki á blikuna þegar hún sá hvernig hárið á mér var orðið en ég var þá búin að vera á lágkolvetna/ ketó mataræði í töluverðan tíma. Á ketó mataræði er manni ráðlagt að halda sig frá ávöxtum vegna ávaxtasykursins og ég gætti ekki að því að passa upp á vítamínbúskap líkamans,“ upplýsir Ragnhildur og bætir við. „Hárið á mér var orðið stamt, erfitt að greiða það og það var mikið hárlos. Fljótlega eftir að ég byrjaði að nota Smoother Skin & Hair frá Eylíf fór ég að finna mun og mér finnst hárið á mér verða heilbrigðara og heilbrigðara með hverjum deginum sem líður. Nú er ég búin að vera að taka það inn í u.þ.b. 4 mánuði. Ég mun halda áfram að fylgja ketó/lágkolvetna mataræðinu því ég fann mikinn mun á líðan og heilsu eftir að ég byrjaði á því, fyrir utan ástandið á hárinu á mér. Ég er ekki frá því að ég finni mun á húðinni, en munur á liðum og meltingu var svo mikill eftir að ég byrjaði á ketó að ég get ekki alveg sagt með vissu um áhrif Smoother Skin & Hair frá Eylíf á þá þætti,“ segir hún. „Íslensk bætiefni eru ofarlega á vinsældalistanum mínum enda er uppruni innihaldsefna yfirleitt fyrsta flokks. Í leiðinni er ekki ónýtt að geta stutt við og styrkt íslenskt hugvit og framtakssemi okkar hæfasta fólks. Heilsan okkar er mikilvæg og án hennar erum við fátækari sama hversu rík við erum á veraldlegum mælikvarða. Vilji maður ná árangri í íþróttum, leik og starfi er mikilvægt að huga að því sem okkur er nauð- synlegt til þess að líkaminn virki. Hraðinn á okkur er oft svo mikill að við gefum okkur ekki tíma til þess að gæta þess að líkaminn fái öll þau næringarefni og bætiefni sem hann þarf og þá er stórkost- legt að geta leitað til snillinganna sem sjá um að safna þeim saman fyrir okkur í litlar meðfærilegar krukkur,“ segir Ragnhildur. Smoother Skin & Hair frá Eylíf inniheldur: n Kollagen n Smáþörunga (Astaxanthin) n GeoSilica n Vítamín A, B2, B6, C, D3 n Bíótín n Níasín n Kopar n Zink n Joð n Selen Heilsan er dýrmætust Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar frábærar heilsuvörur sem reynst hafa fólki vel. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og nýjasta varan Happier Guts. Vörurnar eru framleiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hráefnum og engum aukefnum er bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi Eylíf. „Hugmyndin að vörulínunni kom til vegna þess að mig lang- aði að setja saman þau frábæru hráefni sem framleidd eru á Íslandi á sjálfbæran hátt úr íslenskum, náttúrulegum auðlindum og auka þannig aðgengi fólks að þessum hráefnum,“ upplýsir Ólöf. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta varan okkar er Active Joints sem inniheldur fjögur íslensk næringar- efni og sýna margra ára rannsóknir fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka, sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi, og notum hreina, íslenska náttúruafurð og hrein hráefni sem eru framleidd af viðurkenndum íslenskum fram- leiðendum.“ Hráefni sem notuð eru í bæti- efnin frá Eylíf eru ekki erfða- breytt. „Þau stuðla að heilbrigði og sveigjanlegri líkama því þá erum við færari um að takast á við verk- efnin í dagsins önn. Við vitum öll að heilsan er okkur dýrmætust og því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsu- farsvandamál. Heilbrigð melting er grunnur að góðri heilsu og þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á hágæðavöru fyrir melting- una,“ segir Ólöf Rún. n Eylíf vörurnar fást í öllum apó­ tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaupi, Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og Melabúðinni. Ókeypis heimsend­ ing ef keypt er á eylif.is. Fæðubótarefni kemur ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Hárið heilbrigðara og hárlosið minnkaði Ragnhildur Sigurðardóttir golfkona segist ekki hafa gætt að vítamínbúskap sínum á ketófæði og hárið hafi orðið stamt og hárlos var töluvert. Hún þakkar Smoother Skin & Hair að hárið er orðið miklu þéttara og betra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Það má alveg taka snúning í golfsveiflu í snjónum sé maður í góðu formi. Bætiefnalínan frá Eylíf saman­ stendur af fjórum heilsu­ vörum. Þær eru Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og Happ­ ier Guts. Vör­ urnar eru fram­ leiddar á Íslandi úr hreinum, íslenskum hrá­ efnum. ALLT kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 10. desember 2021
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.