Fréttablaðið - 10.12.2021, Side 49
Fljótlega eftir að
ég byrjaði að nota
Smoother Skin & Hair
frá Eylíf fór ég að finna
mun og mér finnst hárið
á mér verða heilbrigð-
ara og heilbrigðara með
hverjum deginum sem
líður.
Ragnhildur Sigurðar-
dóttir golfkennari segist
hafa kynnst Smoother Skin
& Hair frá Eylíf í gegnum
vinkonu sína, en hún hafði
þjáðst af hárlosi og líflausu
hári. Hún segist finna mikinn
mun á sér.
Ragnhildur er þessa dagana að
undirbúa vetrarnámskeið sem hefj-
ast í janúar. „Ég kenni í golfhermum
GKG í vetur og skráningar eru í
fullum gangi. Á þessum árstíma er
oft rólegra í golfkennslunni en eftir
að kylfingarnir fóru að átta sig á því
hvað golfhermarnir hafa upp á að
bjóða hefur ásóknin í þá aukist til
mikilla muna. Vetrarnámskeið sem
byrja oft í kringum áramót eru hins
vegar mjög vinsæl og margir mæta
árlega í þau til þess að vera klárir
með fínu hreyfingarnar sínar fyrir
vorið,“ segir hún.
Ragnhildur segist hafa kynnst
Smoother Skin & Hair frá Eylíf í
gegnum vinkonu sína, Mjöll Daní-
elsdóttur hárgreiðslukonu. „Hún
ber ábyrgð á hárinu á mér. Henni
leist ekki á blikuna þegar hún sá
hvernig hárið á mér var orðið en ég
var þá búin að vera á lágkolvetna/
ketó mataræði í töluverðan tíma.
Á ketó mataræði er manni ráðlagt
að halda sig frá ávöxtum vegna
ávaxtasykursins og ég gætti ekki að
því að passa upp á vítamínbúskap
líkamans,“ upplýsir Ragnhildur og
bætir við.
„Hárið á mér var orðið stamt,
erfitt að greiða það og það var
mikið hárlos. Fljótlega eftir að ég
byrjaði að nota Smoother Skin &
Hair frá Eylíf fór ég að finna mun
og mér finnst hárið á mér verða
heilbrigðara og heilbrigðara með
hverjum deginum sem líður. Nú er
ég búin að vera að taka það inn í
u.þ.b. 4 mánuði.
Ég mun halda áfram að fylgja
ketó/lágkolvetna mataræðinu
því ég fann mikinn mun á líðan
og heilsu eftir að ég byrjaði á því,
fyrir utan ástandið á hárinu á mér.
Ég er ekki frá því að ég finni mun
á húðinni, en munur á liðum og
meltingu var svo mikill eftir að ég
byrjaði á ketó að ég get ekki alveg
sagt með vissu um áhrif Smoother
Skin & Hair frá Eylíf á þá þætti,“
segir hún.
„Íslensk bætiefni eru ofarlega á
vinsældalistanum mínum enda
er uppruni innihaldsefna yfirleitt
fyrsta flokks. Í leiðinni er ekki
ónýtt að geta stutt við og styrkt
íslenskt hugvit og framtakssemi
okkar hæfasta fólks. Heilsan okkar
er mikilvæg og án hennar erum
við fátækari sama hversu rík við
erum á veraldlegum mælikvarða.
Vilji maður ná árangri í íþróttum,
leik og starfi er mikilvægt að
huga að því sem okkur er nauð-
synlegt til þess að líkaminn virki.
Hraðinn á okkur er oft svo mikill
að við gefum okkur ekki tíma til
þess að gæta þess að líkaminn fái
öll þau næringarefni og bætiefni
sem hann þarf og þá er stórkost-
legt að geta leitað til snillinganna
sem sjá um að safna þeim saman
fyrir okkur í litlar meðfærilegar
krukkur,“ segir Ragnhildur.
Smoother Skin & Hair frá Eylíf
inniheldur:
n Kollagen
n Smáþörunga (Astaxanthin)
n GeoSilica
n Vítamín A, B2, B6, C, D3
n Bíótín
n Níasín
n Kopar
n Zink
n Joð
n Selen
Heilsan er dýrmætust
Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar
frábærar heilsuvörur sem reynst
hafa fólki vel. Þær eru Active Joints,
Stronger Bones, Smoother Skin
& Hair og nýjasta varan Happier
Guts. Vörurnar eru framleiddar
á Íslandi úr hreinum, íslenskum
hráefnum og engum aukefnum er
bætt við. Ólöf Rún Tryggvadóttir er
stofnandi Eylíf.
„Hugmyndin að vörulínunni
kom til vegna þess að mig lang-
aði að setja saman þau frábæru
hráefni sem framleidd eru á Íslandi
á sjálfbæran hátt úr íslenskum,
náttúrulegum auðlindum og auka
þannig aðgengi fólks að þessum
hráefnum,“ upplýsir Ólöf.
Framleiðslan fer fram á Grenivík
og þróun varanna er í samstarfi við
sérfræðinga frá Matís. „Vinsælasta
varan okkar er Active Joints sem
inniheldur fjögur íslensk næringar-
efni og sýna margra ára rannsóknir
fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir
Ólöf Rún. „Við vöndum til verka,
sækjum í sjálfbærar auðlindir úr
sjó og af landi, og notum hreina,
íslenska náttúruafurð og hrein
hráefni sem eru framleidd af
viðurkenndum íslenskum fram-
leiðendum.“
Hráefni sem notuð eru í bæti-
efnin frá Eylíf eru ekki erfða-
breytt. „Þau stuðla að heilbrigði og
sveigjanlegri líkama því þá erum
við færari um að takast á við verk-
efnin í dagsins önn. Við vitum öll
að heilsan er okkur dýrmætust og
því er svo mikilvægt að gæta vel að
henni og fyrirbyggja ýmis heilsu-
farsvandamál. Heilbrigð melting
er grunnur að góðri heilsu og þess
vegna vildum við hjá Eylíf bjóða
upp á hágæðavöru fyrir melting-
una,“ segir Ólöf Rún. n
Eylíf vörurnar fást í öllum apó
tekum, Fjarðarkaupum, Hagkaupi,
Nettó, Heilsuhúsinu, Krónunni og
Melabúðinni. Ókeypis heimsend
ing ef keypt er á eylif.is.
Fæðubótarefni kemur ekki í
staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki
ætlað börnum eða barnshafandi
konum. Ekki er ráðlagt að taka
meira en ráðlagður dagskammtur
segir til um. Geymist þar sem börn
ná ekki til.
Hárið heilbrigðara og hárlosið minnkaði
Ragnhildur Sigurðardóttir golfkona segist ekki hafa gætt að vítamínbúskap sínum á ketófæði og hárið hafi orðið
stamt og hárlos var töluvert. Hún þakkar Smoother Skin & Hair að hárið er orðið miklu þéttara og betra.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það má alveg taka snúning í golfsveiflu í snjónum sé maður í góðu formi.
Bætiefnalínan
frá Eylíf saman
stendur af
fjórum heilsu
vörum. Þær eru
Active Joints,
Stronger Bones,
Smoother Skin
& Hair og Happ
ier Guts. Vör
urnar eru fram
leiddar á Íslandi
úr hreinum,
íslenskum hrá
efnum.
ALLT kynningarblað 7FÖSTUDAGUR 10. desember 2021