Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 1
2 4 3 . T Ö L U B L A Ð 2 1 . Á R G A N G U R f rettab lad id . i s F Ö S T U D A G U R 1 0 . D E S E M B E R 2 0 2 1
Baldur og
Skálmöld
Fékk aðstoð
úr óvæntri átt
Lífið ➤ 24 Lífið ➤ 26
STJÓRNMÁL „Mér finnst hún mjög
villandi þessi orðræða, að þing-
menn hafi ekki sjálfir sýslað með
eigin kjör. Þeir sýsla með eigin kjör
í gegnum forsætisnefnd þingsins.
Ég hef sjálfur setið fundi inni í
nefndinni og heyrt menn grenja
yfir eigin kjörum,“ segir Jón Þór
Ólafsson, fyrrverandi þingmaður
Pírata.
Jón Þór segir að í forsætisnefnd
Alþingis hafi þingmenn náð auka-
legri umbun fyrir starfskostnað, á
sama tíma og kjararáð frysti þing-
fararkaup.
Sighvatur Björgvinsson, fyrr-
verandi þingmaður og formaður
Alþýðuflokksins og ráðherra, segir
að þingið launi nú formenn nefnda
sérstaklega með uppbótum, sem
aldrei hafi áður tíðkast.
„Svo er verið að launa formenn
þingflokka sérstaklega sem aldrei
var í minni tíð og líka þarf að launa
formenn f lokka, sem samkvæmt
þingskapalögum hafa þó engu
hlutverki að gegna á Alþingi,“ segir
Sighvatur. SJÁ SÍÐU 8
Alþingismenn að sýsla með eigin kjör
Vísindanefnd sem skoða á
kvörtun um meintan rit-
stuld seðlabankastjóra hefur
verið óstarfhæf í tvö ár vegna
flækings milli ráðuneyta.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Nefnd um vandaða
starfshætti í vísindum, sem skipuð
var fyrir tveimur árum, hefur aldrei
getað tekið til starfa.
„Þetta er eiginlega mjög bagaleg
staða og að þetta mál komi upp
núna sýnir þörfina á að koma starfi
hennar í gang,“ segir Sigurður Krist-
insson, prófessor í heimspeki og for-
maður nefndar sem á meðal annarra
verkefna að hafa eftirlit með því að
siðferðileg viðmið séu í heiðri höfð í
starfi vísindamanna.
Rithöfundurinn og fræðimaður-
inn Bergsveinn Birgisson hefur beint
kvörtun til þessarar nefndar vegna
meints ritstuldar Ásgeirs Jónssonar
seðlabankastjóra.
Nefndin var skipuð af forsætis-
ráðherra í desember 2019 en var svo
færð nær strax undir menntamála-
ráðuneytið, með forsetaúrskurði.
Útlit er fyrir að hún verði enn færð
milli ráðuneyta og tilheyri nýju vís-
inda- og nýsköpunarráðuneyti.
„Þegar menntamálaráðuneytið
tók við nefndinni og farið var að
reikna út hvað starfið muni kosta
kom í ljós að það er mun meira en
upphaflega var áætlað,“ segir Sig-
urður. Hann vísar til hinna nýju laga
og segir nefndinni ætlað heilmikið
starf, sérstaklega í upphafi starfs-
tíma hennar. Safna þurfi upplýsing-
um og móta verkferla, meðal annars
til að geta tekið við erindum. Hins
vegar hafi ekki verið gert ráð fyrir
neinum kostnaði við starfið, utan
ferðakostnaðar nefndarmanna.
„Svo veit ég ekki betur en það hafi
verið þrýst á þetta í fjárlagagerð
síðan, en ekkert fé komið í þetta enn
og ekki heldur í fjárlagagerð fyrir
næsta ár,“ segir Sigurður.
Þrátt fyrir f lakk nefndarinnar
hefur kvörtun Bergsveins skilað sér
til formannsins.
„Ég er búinn að veita kvörtuninni
viðtöku og er búinn að upplýsa hann
um að hún verði tekin til athugunar
um leið og nefndin geti tekið til
starfa,“ segir Sigurður. „Ég vonast
til að þetta verði til þess að koma
hreyfingu á málið.“ SJÁ SÍÐU 4
Ný vísindanefnd
óstarfhæf í tvö ár
Tryggðu
þér miða
Jón Þór Ólafs-
son, fyrrverandi
þingmaður
Pírata
Sigurður
Kristinsson,
prófessor við
Háskólann á
Akureyri
Skíðasvæðið í Bláfjöllum var opnað í síðdegis gær í fyrsta sinn á þessum vetri, í léttri snjókomu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI