Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 46
Lesbretti og gjafakort
Storytel eru fullkomin
gjöf fyrir þig og þína.
Pantaðu lesbrettið á vefsíðu Storytel og fáðu það sent frítt heim að dyrum.
Lesbrettið kostar 18.900 kr. og gjafakort frá 2.890 kr.
Oprah Winfrey stofnaði bókaklúbb-
inn sinn árið 1996.
starri@frettabladid.is
Margar frægar bandarískar
stjörnur, til dæmis leikarar, tón-
listarfólk og þáttastjórnendur,
hafa rekið vinsæla bókaklúbba um
margra ára skeið.
Sá þekktasti er án efa bókaklúbb-
ur sjónvarpsstjörnunnar Oprah
Winfrey, en hann var stofnaður árið
1996 og hefur mælt með rúmlega 90
bókum yfir fimmtán ára tímabil.
Bókaklúbbur leikkonunnar
Reese Witherspoon er hluti af
fjölmiðlafyrirtæki hennar, Hello
Sunshine. Klúbburinn ber nafnið
Reese's Book Club x Hello Suns-
hine, en hún kynnir nýja bók
mánaðarlega á Instagram-síðu
sinni. Bókaklúbburinn, sem hefur
rúmlega hálfa milljón fylgjenda
á Instagram, leggur áherslu á að
segja sögur kvenna.
Rapparinn Noname stofnaði
bókaklúbb sinn, Noname Book
Club, sumarið 2019. Noname, sem
dvaldi löngum stundum í æsku
sinni í bókabúð móður sinnar,
leggur mikla áherslu á að styðja
við bakið á litlu bókabúðunum,
sérstaklega í eigu þeldökkra.
Klúbburinn kynnir tvær nýjar
bækur í mánuði.
Fyrrum NFL stjarna, Andrew
Luck, setti bókaklúbbinn And-
rew Luck Book Club á fót eftir að
ferlinum lauk. Klúbburinn er tví-
skiptur og bæði ætlaður börnum
og fullorðnu fólki. n
Bókaklúbbar fræga fólksins
jme@frettabladid.is
Þín eigin bókasafnsráðgáta er
nýstárleg og spennandi sýning í
Borgarbókasafninu Gerðubergi.
Um er að ræða stórskemmtilegan
ratleik þar sem þátttakandinn
ræður hvað gerist. Mismunandi
hæfileikar njóta sín við að leysa
ráðgáturnar og því hentar rat-
leikurinn fyrir ýmiss konar hópa á
öllum aldri.
Tveir til sex þátttakendur geta
verið í hverjum hópi en hægt er að
velja um þrjár mismunandi ráð-
gátur. Ævintýraráðgátan er létt og
skemmtileg fyrir sex ára og upp úr.
Vísindaráðgátan og Hrollvekjuráð-
gátan eru svo fyrir tólf ára og eldri.
Að baki sýningarinnar er hópur
hæfileikafólks á borð við rit-
höfundinn Ævar Þór, Emblu og
Svanhildi Höllu sýningarstjóra,
Auði Ösp leikmyndahönnuð, Evu
Dögg meistaranema í arkitektúr,
Ninnu Björk nema í grafískri
hönnun, Kristjönu og Ásu Marin
námsefnishöfunda og Ilmi Dögg
deildarstjóra bókasafnsins. Hægt
er að bóka hópa í ratleik á borgar-
bokasafn.is. n
Ratað um bækur
Villtar ævintýrapersónur, verur úr
öðrum víddum og skuggalegar vofur
hafa tekið yfir Borgarbókasafnið.
MYND/AÐSEND
Hallgrímur og Rán verða með upp-
lestur og föndurstund á morgun.
MYND/NORRÆNA HÚSIÐ
sandragudrun@frettabladid.is
Í tilefni nýrrar bókar Hallgríms
Helgasonar og Ránar Flygenring
– Koma jól, verður boðið upp á
upplestur og fjölskyldusmiðju
með höfundunum í Norræna
húsinu á morgun á milli kl. 13.00
og 15.00. Í smiðjunni fá gestir færi
á að spreyta sig á skemmtilegum
teikniæfingum sem Rán hefur
útbúið, á borð við teikniþrautir,
jólakortaáskorun og jólasystra-
þraut, svo eitthvað sé nefnt. Koma
jól er jólaljóðabók sem kveðst á
við bók Jóhannesar úr Kötlum,
Jólin koma.
Í bókinni má finna nýjustu
fréttir af Grýlu og Jólakettinum
og hinar jökulhressu Grýludætur,
systur jólasveinanna, stíga fram
úr þúsund ára löngum skugga
bræðra sinna og arka til byggða,
hver með sínu lagi og hrekkja-
brögð í farteskinu. Þeir gestir sem
mæta með eintak af bókinni eiga
möguleika á að fá áritun. Öll fjöl-
skyldan er velkomin á viðburð-
inn. Fjarlægð verður á milli borða
og grímuskylda. n
Upplestur
og föndur
28 kynningarblað 10. desember 2021 FÖSTUDAGURBÓK AJÓL