Fréttablaðið - 10.12.2021, Blaðsíða 15
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
FÖSTUDAGUR 10. desember 2021
Þorvaldur Guðjónsson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Davíð Baldursson eru stjórnendur Pant vera blár!. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Pabbapodcast
um borðspil
Pant vera blár! er hlaðvarp fjögurra pabba
þar sem þeir ræða um alls konar borðspil og
ýmislegt sem tengist þeim, en aðaláherslan
er á létt og skemmtilegt spjall milli vina.
Pant vera blár! er hlaðvarp
fjögurra pabba þar sem þeir ræða
um alls konar borðspil og ýmislegt
sem tengist þeim, en aðaláherslan
er á létt og skemmtilegt spjall milli
vina.
Hlaðvarpið hóf göngu sína í
mars síðastliðnum og það kemur
nýr þáttur á tveggja vikna fresti,
alltaf á sunnudögum. Stjórnendur
þess eru Þorvaldur Guðjónsson,
Kristleifur Guðjónsson, Styrmir
Hafliðason og Davíð Baldursson.
„Við Leifur erum bræður og
Davíð og Leifur voru saman í
grunnskóla en fyrir um þremur
árum vorum við Leifur svo úti á
borðspilaráðstefnu í Birmingham
þegar við hittum Styrmi og bróður
hans á UK Games Expo. Við fórum
svo að spila saman og höfum verið
að því síðan,“ segir Þorvaldur, eða
Valdi.
„Það mætti flokka mig sem nýja
gæjann, út frá borðspilareynslunni
hjá hinum, en Leifur bauð mér
fyrst í svona spil fyrir tveimur og
hálfu ári,“ segir Davíð. „Mér fannst
þetta hálfgerð klikkun fyrst, en svo
komst ég að því hvað þetta er ótrú-
lega skemmtilegt áhugamál og hef
verið háður þessu síðan.“
Kúpla sig út í sameiningu
Strákarnir segja að það sem heillar
þá helst við borðspil sé samveran.
„Þetta er tækifæri til að hittast,
sitja saman, spjalla og hlæja án
spil ársins um allan heim!
á íslensku!
leystu fyrsta sakamálið á spilaborg.is
micro macro
glæpaborgin
ALOE VERA
MELTING & BÓLGUR
85%VIRKTCURCUMIN
www.celsus.is