Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 15

Fréttablaðið - 10.12.2021, Page 15
KYNN INGARBLAÐ ALLT FÖSTUDAGUR 10. desember 2021 Þorvaldur Guðjónsson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Davíð Baldursson eru stjórnendur Pant vera blár!. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Pabbapodcast um borðspil Pant vera blár! er hlaðvarp fjögurra pabba þar sem þeir ræða um alls konar borðspil og ýmislegt sem tengist þeim, en aðaláherslan er á létt og skemmtilegt spjall milli vina. Pant vera blár! er hlaðvarp fjögurra pabba þar sem þeir ræða um alls konar borðspil og ýmislegt sem tengist þeim, en aðaláherslan er á létt og skemmtilegt spjall milli vina. Hlaðvarpið hóf göngu sína í mars síðastliðnum og það kemur nýr þáttur á tveggja vikna fresti, alltaf á sunnudögum. Stjórnendur þess eru Þorvaldur Guðjónsson, Kristleifur Guðjónsson, Styrmir Hafliðason og Davíð Baldursson. „Við Leifur erum bræður og Davíð og Leifur voru saman í grunnskóla en fyrir um þremur árum vorum við Leifur svo úti á borðspilaráðstefnu í Birmingham þegar við hittum Styrmi og bróður hans á UK Games Expo. Við fórum svo að spila saman og höfum verið að því síðan,“ segir Þorvaldur, eða Valdi. „Það mætti flokka mig sem nýja gæjann, út frá borðspilareynslunni hjá hinum, en Leifur bauð mér fyrst í svona spil fyrir tveimur og hálfu ári,“ segir Davíð. „Mér fannst þetta hálfgerð klikkun fyrst, en svo komst ég að því hvað þetta er ótrú- lega skemmtilegt áhugamál og hef verið háður þessu síðan.“ Kúpla sig út í sameiningu Strákarnir segja að það sem heillar þá helst við borðspil sé samveran. „Þetta er tækifæri til að hittast, sitja saman, spjalla og hlæja án  spil ársins um allan heim! á íslensku! leystu fyrsta sakamálið á spilaborg.is micro macro glæpaborgin ALOE VERA MELTING & BÓLGUR 85%VIRKTCURCUMIN www.celsus.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.