Strandapósturinn - 01.06.1997, Side 66
gönguferð. Þar skjátlaðist mér hrapallega og mér varð ekki um
sel þegar fólk fór að hópast að svo tugum skipti. Það varð veru-
legur höfuðverkur að ná til allra og láta þá heyra það sem verið
var að segja frá. Með mér og til aðstoðar var Arni Jón Eyþórsson
á Bálkastöðum, góður fjárbóndi og vanur að telja fé við breyti-
legar aðstæður. Elann tók sig til og kastaði tölu á hópinn og
komst að því að þarna voru yfir tvö hundruð manns. Fljótlega
fylltist staðurinn af fólki sem kom víða að, mest þó úr nágrenn-
inu. Urn tíma var nánast öngþveiti og örtröð. Oll stæði full af bíl-
um, öll hús full af fólki að skoða sýningar og staðinn. Kvenfé-
lagskonur lentu í vandræðum vegna mikillar aðsóknar, ekki
hafðist undan að afgreiða kaffi, meðlæti var fljótlega uppétið.
En þær eru ýmsu vanar og settu á fót bakstur í snarheitum í
næstu húsum. Þannig að allt bjargaðist nú svona einhvernveg-
inn.
Björgunarsveitin Káraborg og Gunnar Sæmundsson bóndi í
Hrútatungu lögðu til hraðskreiða báta sem gengu stöðugt um
víkina innan Borðeyrar og út á fjörðinn. Ollum var boðið far og
var það eftirsótt, sérstaklega af börnum og unglingum.
Gamall traktor dró heyvagn með háum grindum og góðum
sætum. Þetta var strætisvagn Borðeyrar og gekk hann reglulega
um staðinn allan daginn, stjórnandi var Sveinn Karlsson. Vagn-
inn var mikið notaður og sérlega vinsæll af börnum á öllum
aldri. Allir fengu frítt í Strætó þennan dag vegna hátíðarinnar.
Hugmyndin var að hafa útileiki og óvæntar uppákomur sem
afþreyingu fýrir unga sem aldna og enda daginn með grillveislu,
varðeldi og brekkusöng. En nú tók veðrið í taumana. Um kl.
fjögur um daginn fór að hvessa af norðri með úrhellis rigningu,
því varð að breyta skipulaginu snarlega. Flestir voru staðráðnir í
að láta ekki veðrið eyðileggja fýrir sér daginn. Grillveislan sem
átti að vera úti var færð inn í sláturhúsið sem hefur nú lokið
hlutverki sínu sem sláturhús. Þar var rýmt til í skyndi og sett upp
borð og sæti. Bjarni Ingvason matreiðslumeistari setti upp grillið
í húsaskjóli undir skyggni og grillaði ósköpin öll af lambakjöti,
svo var matast inni í sláturhúsinu.
Veðrið hrakti marga af svæðinu þar sem ekki var gott að vera
64