Strandapósturinn - 01.06.1997, Side 79
inn norður á Akureiri til prentunar og lagði eg til prentkostnaðar 40
rd. og reiknaði pjesann á 60 rd. = 100 rd. Tilsjónarmaður fyrir mína
hönd er Jóhannes sem var í Gautsdal áður á Gunnsteinsstöðum.
Hver sem ferill þessa „smíðabæklings“ Þorsteins hefur verið
þá endaði hann að lokum á Handritadeild Landsbókasafn og er
þar vel geymdur. • Hann hefur skráningarnúmerið Lbs. 2944,
8vo, ef einhverjir hafa hug á að skoða hann nánar. I skrá safns-
ins stendur eftirfarandi um hann: „Ein hönd. Skr. á síðara hluta
19. aldar. „Vidvaníngr edur Smídabæklingr handa Unglíngum.
Samantekinn úr ýmsum bókum og eptir egin reynslu með 13
myndum af Þorsteini Þorleifssyni“ í Rjörvogi í Strandasýslu.
Ehdr. Nokkurar breytingar eru gerðar á hdr. með annari hendi
og myndirnar vantar. Ferill Alb. 22. febr. 1950 úr Þjóðskjala-
safni.“
Eins og fýrr segir er Smíðabæklingurinn eiginhandarrit Þor-
steins, hann er 140 blaðsíður og skipt upp í 138 kafla og er efnis-
yfnlit fremst. Ef einhverjar myndir teiknaðar af Þorsteini hafa
fýlgt bæklingnum þá eru þær glataðar og eins vantar í handrit-
ið blaðsíður 15-30. I bæklingnum er Þorsteinn aðallega að fjalla
um járn og járnsmíðar og gefa ráð við hinum ýmsu vandamálum
sem geta komið upp við smíði úr mismunandi járni. Nokkrir
kaflar eru um önnur smíðaefni t.d. tré og horn og síðast koma
svo húsráð og lausnir á nokkrum almennum vandamálum sem
upp geta komið. Ein$ og Þorsteinn segir í eftirmála þá var langt
frá því að hann hafi getað gengið svo vel frá þessu handriti sínu
eins og hann hafði viljað, en efnið í það segist hann hafa fengið
með lestri ýmissa bóka sem og af eigin reynslu.
Fyrstu kaflarnir eru um mismunandi járn, t.d. kaldár (2.
kafli), rauðbrota (3. kafli) og svenskt stál (11. kafli), en sá fyrsti
er um auðkenni á deigu járni:
Það hefur mjer sjaldan brugðist, að járn það sem hefur slitnað, en
ekki þverhrokkið, er fagurt í sárið, og hefur eins og silfur lit á tauga-
hliðunum sje gott og deigt járn; en gjeti maður ekki sjeð það í sárið
eður brotið hefi jeg haft það rnark á yfirborði þess að það sje jafn
77