Strandapósturinn - 01.06.1997, Side 88
til Hólmavíkur. Er það löng og erfið leið. Man ég að Ingibjörg
sagði frá því hvaða þraut það hefði verið sér að sitja á hesti alla
þessa löngu leið, með aðra höndina í fatla, sárþjáð af verkjum.
En þetta lánaðist. Magnús Pétursson sá enga leið aðra til að
bæta mein hennar en að taka af henni fmgurinn uppi við hand-
arbak. Sýklalyf voru þá óþekkt og meinið komið á hátt stig.
Oðru tilfelli mjög svipuðu man ég eftir. Sigþrúður Jónsdóttir
í Ofeigsfirði, kona Gísla Gíslasonar, sem þar bjó og var jafnan
kallaður Gísli bóndi, fékk krabbamein í brjóstið. Það var alvar-
legt mál þá og er enn. Magnús Pétursson sá ekkert ráð annað til
að freista lækningar, en að hún kæmi til Hólmavíkur og hann
tæki af henni brjóstið. Til þess að koma henni til Hólmavíkur
var engin leið önnur en að reiða hana á hesti. Það var gert, enda
þá sumartími. Geta má nærri að sú ferð hefur ekki verið þrauta-
laus fyrir sjúklinginn. En um annað var ekki að ræða. Magnús
Pétursson skar af henni brjóstið og eftir að hafa jafnað sig eftir
þá aðgerð kom hún heim. En það reyndist skammgóður vermir.
Meinið tók sig upp og leiddi hana til bana síðar.
Þessir sjúkraflutningar ollu engum tíðindum. Oðruvísi var
ekki hægt að koma þeim við og það að sumarlagi. En verra var
að framkvæma slíka sjúkraflutninga þegar vetrarríki hafði sest
að. Þó varð svo að gera. ETm það höfum við skráðar heimildir
um tvö tilfelli. Það fyrra var frostaveturinn 1918 um hávetur í
brunafrostgaddi, þegar Karolína Söebeck í Reykjarfirði veiktist
alvarlega og koma varð henni til Hólmavíkur yfir Trékyllisheiði.
Þá ferðasögu og sjúkraflutning skrifaði Þórarinn sonur hennar.
Var sú ferð hin sögulegasta. Varð að liggja úti næturlangt með
sjúklinginn, ef ég man rétt, á Trékyllisheiði sunnanverðri, áður
en þeim tókst að koma sjúklingnum til Hólmavíkur. Hina sjúkra-
flutningasöguna skráði Gísli Guðlaugsson á Steinstúni. Þá var
læknir kominn á Kúvíkur.
Kristján Jónsson, tengdasonur Guðbjargar Jörundardóttur á
Seljanesi, hafði vetrardvöl á Seljanesi. Kristján veiktist og var
ákveðið að koma honum að Kúvíkum til læknisaðgerðar. Það var
um hávetur og hafís fyllti allar víkur og firði. Við þau skilyrði var
búið um Kristján á sleða sem best mátti. Menn voru fengnir til
að draga hann á sleðanum yfir Ingólfsfjörð um Norðurfjörð og
86