Strandapósturinn - 01.06.1997, Page 108
þegar svo hagar að hafís er á Húnaflóa þá eru oft kyrr veður, þó
út af því geti brugðið. Þetta hafa þau vitað og treyst á að svo yrði
í þessari ferð sinni. Við þessar aðstæður lögðu Harrastaðahjón-
in af stað í för sína yfir Húnaflóa þveran. Þótti það ekki í lítið
ráðist. Ekki þykir mér ólíklegt að Guðjón hafi kunnað að hita
sér vatn á sjó í kaffi og annað, með þeim hætti sem mágur hans
Guðmundur Pétursson í Ofeigsfirði fann upp fyrstur manna og
notfærði í hákarlaróðrum á Ofeigi. Keðja var hringuð niður
ofan á plitti. Þar ofan á var settur pottur með gati. I honum var
komið fyrir eldsneyti (spýtum) og síðan hengdur þar yfir kaffi-
ketill eða pottur, eftir því hve stórt skyldi elda. En engar sagnir
heyrði ég um það hvort þau hjón hefðu haft slík eldfæri. Er
þetta því aðeins tilgáta mín.*
Engin saga var sögð af erfiðleikum þeirra í þessu ferðalagi.
Hafi veður verið kyrrt sem ætla má, þá hafa þau orðið að róa
mest alla eða alla leiðina. Sennilega hafa þau orðið að skríða
nrilli jaka og taka ferðina eins rólega og kostur var á, en komast
þó í áttina. Segir ekkert af því nema að þau tóku farsællega land
hér norður í Arneshreppi. Þykir mér líklegt að þau hafi tekið
land á Munaðarnesi, þar sem Einar faðir Guðjóns bjó einn. Hin
dirfskufulla för þeirra hafði lánast vel og eflaust vakið aðdáun.
Þau voru komin nreðal vina og vandamanna. Þó ekkert væri sagt
um það svo ég heyrði, þá þykist ég vita að þau hafi heimsótt ætt-
ingja og vini allt frá Dröngum og fram í Trékyllisvík að Finn-
bogastöðum.
Eftir hóflega viðdvöl lrér í Arneshreppi bjuggu þau ferð sína
að nýju og héldu með sama hætti heim til sín. Segir ekki annað
af því en að sú ferð hafi gengið vel og þau lent heilu og höldnu
undir Spákonufellshöfða og farið þaðan til bús síns á Harrastöð-
um.
Það lá í þeirri frásögn sem ég hefi hér byggt á að þetta ferða-
lag þeirra hafi borið tilætlaðan árangur og Lilja unað vel hag
sínum á Harrastöðum upp frá því.
Annan undirtón þóttist ég líka skilja í orðum Jóns Arngríms-
sonar. Hann sá hve nærfærinn og umhyggjusamur Guðjón hafði
verið konu sinni og vildi allt til vinna að henni liði vel, jafnvel
106