Strandapósturinn - 01.06.2016, Page 48

Strandapósturinn - 01.06.2016, Page 48
46 uðu. Þar með stóð ekkert í vegi fyrir því að Guðjón og Guðmunda fengju að gefa orgel í gömlu kirkjuna og þar með að minn- ingarhátíðin um Guðmund Þ. Guðmundsson yrði haldin. Ég talaði svo nokkrum dögum seinna við vin minn, Hjalta Guð- mundsson í Bæ, sem nú er látinn, til að biðja hann um að taka við málverki því sem áður var nefnt af þeim Guðmundi Þ. og konu hans, Guðrúnu Sæmunds, eins og þau voru kölluð, fyrir hönd skólanefndar. Hjalti var þá formaður skólanefndar og því eðlilega í því hlutverki að taka við málverkinu. Hann kvað það alveg sjálf- sagt og að það mundi hann gera með ánægju. Þegar ég svo spurði hann í framhaldinu um hvað honum fyndist um kirkjusamkomulagið kom annað hljóð í strokkinn. Hann sagði við mig að honum hafi ekki fundist það sniðugt að kalla lítinn hóp manna á leynifund út á Storð og pína þá svo sem þar voru mættir til að skrifa undir samkomulag sem væri ekkert fyrir alla. Ég svaraði honum þannig að það hafi alltaf verið mér ljóst að samkomulagið væri bara innan þessa hóps sem þarna hitt- ist. En málið væri það engu að síður að þessi hópur hafi gert með sér samkomulag sem þau ætluðu að standa við og væri því kirkju- deilan þeirra á meðal úr sögunni. Hitt væri svo annað mál að allir aðrir innan sveitarinnar gætu haldið áfram að rífast ef þeim sýndist svo en fundarmenn á Storð mundu ekki taka þátt í því. Þegar ég svo kom norður til minningarhátíðarinnar 21. júní og hitti Hjalta kom hann strax til mín og tók í höndina á mér og þakkaði mér fyrir minn hlut í samkomulaginu. Staðan væri gjör- breytt, sagði hann, nú vildi enginn tala um kirkjumálin nema í sáttartón. Þetta væri allt annað líf. Ég leyfi mér að minnast á þetta atriði hér því að ég held að það sé nokkuð dæmigert fyrir alla aðra í sveitinni. Þarna var komið samkomulag sem allir gátu stuðst við því að það var ekkert annað betra til í stöðunni. Ekki er mér kunnugt um annað en að karlar og konur innan sveitarinnar hafi síðan virt samkomulagið og þar með hafi áralöngum deilum um kirkjumál í Árneshreppi lokið. Samningurinn, eins og hann leit endanlega út, fylgir hér með en ekki tel ég ástæðu til að láta punktana mína fylgja enda ekki þörf á að kryfja samningaferlið til mergjar í smáatriðum. Í prent- aða textanum hér á eftir geri ég innan sviga grein fyrir þeim sem undirrituðu sam komulagið.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.