Strandapósturinn - 01.06.2016, Qupperneq 62
60
Reykjavík
3. maí 1948
Herra Sveinn Benediktsson.28
Hér með leyfi ég mér að senda yður kort og mælingar þær, sem við höfum
látið gera samkvæmt beiðni yðar í haust. Mér þykir rétt að taka það fram,
að uppdráttur sá, er fylgir hér með er ekki nákvæmur, þar sem ógjörningur
var að fá vanan mann til þess að framkvæma mælingarnar. Hins vegar
álítum við að á honum megi sjá hvar við óskum að fá lóðina.
Við leyfum okkur hér með að fara fram á að þér hlutist til um að umf.
Efling á Djúpuvík verði gefinn kostur á lóð allt að 500 m2 að stærð í
landi jarðarinnar Kjósar í Reykjarfirði, Str., á þeim stað, sem meðfylgjandi
uppdráttur og kort sýna.
Sé af einhverjum ástæðum ekki hægt að úthluta umf. Efling lóð á
fyrrgreindum stað, förum við fram á, að umf. E. [fái] lóð fyrir vestan hús
það, er Alexander Árnason29 á og samkvæmt sögn Guðmundar
Guðjónssonar30 verksmiðjustjóra, er á korti, sem gert hefur verið af
verkamannabústaðahverfinu (Holtunum).
Enn fremur óskum við eftir svæði undir íþróttavöll fyrir framan
svonefnt Oddnýjargjárholt. Slíkur völlur þarf að minnsta kosti að vera
7500 m2.
Að lokum vil eg svo gera stuttlega grein fyrir ástæðum umf. E. og
aðdraganda þessa máls.
Umf. Efling hefur að mörgu leyti [átt] við erfið skilyrði að búa, eins og
flest þau félög sem eru þannig í sveit sett. Eitt það sem aðallega hefur
strandað á og hefur hindrað eðlilega þróun þess er vöntun húsakosts fyrir
starfsemi þess og íþróttavöll til íþróttaiðkana. Þó ber að minnast þeirra
aðila með þakklæti, sem hafa hjálpað upp á sakirnar. Það hefur þó verið
óhentugt húsnæði og stundum ófáanlegt af skiljanlegum ástæðum.
Sumarið 1945 var ákveðið að leitast fyrir með að fá lóð undir hús og
íþróttavöll handa félaginu. Var mér – undirrituðum – falið að leita
hófanna hjá Lofti Bjarnasyni í Hafnarfirði. Tók hann máli mínu vel, en
kvaðst ekki geta gefið ákveðin svör. Eins og yður er sjálfsagt kunnugt.
Þessi beiðni var svo ítrekuð. Í fyrravor kvað Loftur Bjarnason okkur óhætt
28 Sveinn Benediktsson, framkvæmdastjóri í Reykjavík. Sveinn Benediktsson, Loftur
Bjarnason, Halldór Kr. Þorsteinsson og Vilhjálmur Árnason keyptu jörðina Kjós af
Petrínu S. Guðmundsdóttur árið 1945.
29 Alexander Árnason í Kjós en var er þetta gerðist búsettur á Djúpavík.
30 Guðmundur Guðjónsson teiknaði verksmiðjuna á Djúpavík, hafði eftirlit með
framkvæmdum og varð svo verksmiðjustjóri 1938 til loka.