Strandapósturinn - 01.06.2016, Side 93

Strandapósturinn - 01.06.2016, Side 93
91 Niður af bænum var húsarúst sem var kölluð Búðartóft (199). Þar var sjóbúð sem legið var við um hákarlatímann en síðast var búið í henni um eða skömmu fyrir 1930. Síðust bjuggu þar Jón og Guðrún Grímsdóttir en þeirra sonur var Jón kútur. Neðan undir Búðartóftinni var kartöflugarður í eina tíð og nefnist þar enn Garður (200). Upp á hjallanum ofan við Jónsflöt er Balinn (201), sem öðru nafni heitir Rimi (202), og er hann vestan undir fjárhúsunum og hefur að hluta til verið umturnað. Þá tekur við Níuálnavöllur (203) og ofan við hann er grösug brekka, Hesthúsbrekka (204). Hún dregur nafn af hesthúsi sem stóð á klettabarði efst í henni. Hesthúsbrekka er breiður sveigur upp í Krossklettana norðan og ofan við fjárhúsin. Níuálnavöllur er norðan við fjárhúsin. Utan við Níuálnavöll eru tvær gamlar grjóthleðslur, leifar af grjótgörðum, sem nefndar eru Garðar (205) og er jafnan sagt „að fara út að Görðum“ eða „að hitt eða þetta hafi verið eða sé út hjá Görðum“. Þetta svæði er einnig nefnt „Milli Garða“ (206). Þarna er álagablettur sem ekki mátti slá. Ef það var gert þá átti að drep- ast kýr eða hestur. Jón Meyvant Sigurðsson (hann bjó á Munað- arnesi 1904–1944) sló blettinn eitt sinn og missti hest. Þessi blettur spratt alltaf vel. Jón Elías Jónsson (bóndi á Munaðarnesi 1928–1953) sló hann eitt sinn og um nóttina eftir kom álfkona til Elísabetar Guðmundsdóttur, konu Jóns, og sagði að hann hefði slegið blettinn sem hún fóðraði á geitur sínar tvær og sagði að í staðinn yrðu þau að fóðra geiturnar um veturinn til að bæta fyrir skaðann. Jón gaf þeim á garðann og kindur fóru aldrei á ákveðinn stað í krónni (þar sem geiturnar áttu að vera) og heyið sem þar var gefið hvarf alltaf. Þessi álfkona átti að búa í Krossklettum. Þá byrjum við aftur við sjóinn. Nesið, sem bærinn stendur á, heitir Munaðarnes (207). Neðan við bæinn, sunnan í nesinu, er vik sem heitir Grynnri-Garðsstöð (208) og utan við hana er örlítill vogur inn í klettana sem heitir Hundavogur (209). Hann er nú oftar nefndur Halldórsvogur (210) eftir Halldóri Jónssyni er bjó á Munaðarnesi 1935–1963. Í voginum var hundum drekkt. Klett- arnir milli Grynnri-Garðsstöðvar og Hundavogs nefnast Grynnri- Garðsstöðvarklettar (211). Í þá kletta er lítil glufa sem nefnist Ýlduglufa (212). Í hana var hent úrgangi af sel og dregur hún nafn af því. Ofan við Hundavoginn er lítill pollur í klettunum sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.