Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 20214
Í samræmi við samþykkt
aukabúnaðarþings Bænda-
samtaka Íslands frá 10. júní
tók nýtt skipulag samtakanna
formlega gildi frá og með 1. júlí.
Nýir starfsmenn gengu til liðs við
samtökin frá búgreinafélögunum
og hófu störf á sama tíma. Helstu
breytingar á skipulagi skrifstofu
eru að tvö ný svið hafa litið
dagsins ljós, markaðssvið og
fagsvið búgreina.
Markaðssvið samtakanna mun
hafa heildarumsjón með öllu
markaðsstarfi og sinnir starfsemi
og verkefnum sem heyra undir
einstaka búgreinar og landbúnaðinn
í heild, s.s. markaðsátök og
tímabundin áhersluverkefni í
markaðssetningu og kynningu sem
er ætlað að styðja og efla íslenskan
landbúnað. Á markaðssviði starfa
Hafliði Halldórsson og Höskuldur
Sæmundsson, sem sjá einnig um
að miðla upplýsingum til allra
markhópa um málefni tengd
landbúnaði og matvælaframleiðslu
og frumframleiðslu afurða.
Á fagsviði búgreina er starfað
í deildum sem hafa það verksvið
að annast um sérhæfð málefni
einstakra búgreina. Fagdeildirnar
sjá m.a. um ýmis málefni í ytra
umhverfi búgreina, móta áherslur í
hagsmunagæslu, taka þátt í skipan
fagráða o.s.frv.
Til nánari upplýsinga þá verða
verkefni viðkomandi búgreina
í höndum eftirtalinna aðila hjá
samtökunum:
Deild kúabænda á fagsviði
búgreina: Margrét Gísladóttir,
margret@bondi.is
Deild sauðfjárbænda á fagsviði
búgreina: Unnsteinn Snorri
Snorrason, unnsteinn@bondi.is
Deild garðyrkju á fagsviði
búgreina: Katrín María Andrésdóttir
Enn á eftir að ganga frá ráðningu
sérfræðings deildar nýsköpunar- og
þróunar (loðdýrarækt, geitfjárrækt
og skógrækt) og nýs tengiliðar
fyrir garðyrkju. Þá munu verkefni
deilda eggja- og kjúklingabænda
og svínabænda skiptast yfir í
markaðsmál, umhverfismál og
ytra umhverfi greinanna og verða
þau vistuð hjá Guðrúnu Vöku
Steingrímsdóttur lögfr. gudrun@
bondi.is og Kára Gautasyni
sérfræðingi kari@bondi.is og á
markaðssviði samtakanna hjá
Hafliða Halldórssyni haflidi@
bondi.is og Höskuldi Sæmundssyni
hoskuldur@bondi.is.
Æðarræktarfélag Íslands og
Félag hrossabænda greiddu
atkvæði með samþykktum BÍ á
aukabúnaðarþingi 10. júní 2021.
Aðalfundir beggja félaga verða
haldnir meðfram haustinu. Þjónusta
og ráðgjöf frá starfsmönnum
Bændasamtaka Íslands verður
áfram til staðar fyrir félagsmenn BÍ í
báðum búgreinum. Þá verður áfram
fylgst með þáttum í starfsumhverfi
búgreinanna og hagsmunagæsla
félagsmanna verður tryggð.
Önnur verkefni sem eru í umsjón
starfsmanna búgreina
Unnsteinn Snorri Snorrason,
sérfræðingur. Hans helstu
verkefni snúa að gerð áætlana
um aukinn árangur landbúnaðar í
umhverfismálum, samskiptum við
hagsmunaaðila, þjónustuaðila og
stjórnvöld tengd umhverfismálum.
Unnsteinn mun sitja í starfshópum
á vegum hins opinbera í
tengslum við umhverfismál.
Ásamt því að vera sérfræðingur í
umhverfismálum landbúnaðarins
verður hann jafnframt tengiliður
sauðfjárræktarinnar innan fagdeildar
búgreinarinnar og fylgist með þáttum
og starfsumhverfi greinarinnar innan
landbúnaðarkerfisins.
Margrét Gísladóttir, sérfræðingur.
Hennar helstu verkefni snúa að
Kolefnisbrúnni, einkahlutafélagi
í eigu Bændasamtaka Íslands.
Kolefnisbrúin snýst um að ræktendur
um land allt geti, með plöntun og
umhirðu skóga, kolefnisjafnað sína
eigin starfsemi og selt þá þjónustu
til annarra, jafnvel til stórra og
meðalstórra fyrirtækja.
Áhersla er lögð á að ferlið sé
vottað og stuðli að umfangsmikilli
kolefnisbindingu um land allt til
að mæta skuldbindingum Íslands í
alþjóðasamfélaginu og stefnumörkun
stjórnvalda. Með Kolefnisbrúnni
skapast tækifæri til atvinnusköpunar
um land allt þar sem til verða störf
við plöntuframleiðslu, skógrækt og
skógarnytjar. Ásamt því að vera
verkefnisstjóri yfir Kolefnisbrúnni
mun Margrét jafnframt vera
tengiliður kúabænda á fagsviði
búgreina og fylgjast þar með þáttum
og starfsumhverfi greinarinnar innan
landbúnaðarins.
Aðrir starfsmenn
Bændasamtaka Íslands
Hjá Bændasamtökum Íslands
starfar þaulreynt starfsfólk í öllum
stöðum, með ólíkan bakgrunn sem
búa að umfangsmikilli þekkingu
á atvinnugreininni. Með áorðnum
breytingum er stefnt að því að
gera samtökin að framsýnum
vinnustað sem einkennist af
samvinnu og samstarfi og stöðugri
þróun til samræmis við þarfir
atvinnugreinarinnar hverju sinni
og að skapa gott vinnuumhverfi
fyrir starfsmenn. Auk starfsmanna á
fagsviði búgreina og á markaðssviði
samtakanna starfa starfsmenn
á skrifstofu og útgáfu- og
kynningarsviði samtakanna.
Skrifstofa:
Meginhlutverk sviðsins er að sinna
rekstri samtakanna, stoðþjónustu
við stjórn, félagsmenn og önnur
svið samtakanna. Á sviðinu starfa
sérfræðingar sem sinna fjármálum,
mannauðsmálum, aðstoð við
félagsmenn, greiningu á hagtölum
og upplýsingasöfnun, ásamt
lögfræðitengdum málefnum.
Starfsmenn skrifstofu:
- Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri
- Gylfi Þór Orrason, fjármálastjóri
- Sigríður Þorkelsdóttir, bókari
- Jóhanna Lúðvíksdót t i r,
þjónustufulltrúi
- G u ð b j ö rg J ó n s d ó t t i r ,
verkefnisstjóri með innleiðingu á
nýrri innheimtu félagsgjalda
- Erla Hjördís Gunnarsdóttir,
samskiptastjóri/upplýsingafulltrúi
- Kári Gautason, sérfræðingur í
úrvinnslu og greiningu hagtalna
landbúnaðarins
- Guðrún Vaka Steingrímsdóttir,
lögfræðingur
Útgáfu- og kynningarsvið:
Mikilvægur hluti af starfsemi
Bændasamtakanna snýr að útgáfu-
og kynningarmálum. Samtökin
gefa út Bændablaðið og tímarit
Bændablaðsins, fréttabréf til
félagsmanna og reka vefina bondi.is,
bbl.is og Hlaðvarp Bændablaðsins.
Starfsmenn útgáfu-
og kynningarsviðs:
- Hörður Kristjánsson, ritstjóri
- Vilmundur Hansen, blaðamaður
- Sigurður Már Harðarson,
blaðamaður
- Guðrún Hulda Pálsdóttir,
blaðamaður
- Sigrún Pétursdóttir, umbrot og
hönnun
Líkt og að framan hefur
verið rakið eru samtökin í miklu
umbreytingarferli og því má gera
ráð fyrir að skipurit samtakanna sem
gildir frá 1. júlí taki breytingum.
/ehg
FRÉTTIR
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu-
neytið hefur fengið rannsóknarfyr-
irtækið Maskínu til að framkvæma
könnun á meðal sauðfjárbænda.
Hún fjallar um viðhorf sauðfjár-
bænda til innri og ytri aðstæðna í
greininni, framtíðarhorfur og viðhorf
til umhverfis og loftslagsmála.
Könnunin er liður af aðgerðaráætl-
un til eflingar íslensks landbúnaðar
sem sjávarútvegs- og landbúnað-
arráðherra kynnti í febrúar og snýr
að sértækri vinnu vegna sauðfjár-
ræktarinnar. Niðurstöður könnunar-
innar munu gefa greinargott yfirlit
yfir stöðu greinarinnar og nýtast
m.a. við stefnumótun tengt endur-
skoðun sauðfjársamnings. Haft
verður samband við þátttakendur í
könnuninni með símtölum og tölvu-
pósti. Sauðfjárbændur eru hvattir til
þátttöku. /ehg
Könnun á meðal sauðfjárbænda
Bændafundir Bændasamtaka Íslands
23.–27. ágúst 2021
Stjórn og starfsmenn Bændasamtaka Íslands munu ferðast um
landið dagana 23.–27. ágúst næstkomandi og hitta bændur og
búalið til að fara yfir nýtt skipulag samtakanna og framtíðarhorfur.
Fundirnir með fundarstöðum verða auglýstir nánar síðar.
Dagskrá fundanna er eftirfarandi:
1. Búðardalur 23. ágúst kl. 10.
2. Ísafjörður 23. ágúst kl. 20.
3. Blönduós 24. ágúst kl. 12.
4. Eyjafjörður 24. ágúst kl. 16.
5. Þingeyjarsveit 24. ágúst kl. 20.
6. Kópasker 25. ágúst kl. 10.
7. Egilsstaðir 25. ágúst kl. 16.
8. Höfn 25. ágúst kl. 20.
9. Vík 26. ágúst kl. 12
10. Selfoss 26. ágúst kl. 20.
Nýtt skipulag Bændasam-
takanna hefur tekið gildi
Markaðssvið
Verkefnastjórar
Fagsvið búgreina
Sérfræðingar
Útgáfu- og kynningarsvið
Ritstjóri
Blaðamenn
Auglýsingastjóri
Skrifstofa
Fjármálastjóri
Bókari
Verkefnisstjórar
Sérfræðingar
Lögfræðingur
Samskiptastjóri
Framkvæmdastjóri
Stjórn BÍ
Rauði þráðurinn - Samstarf og verkefni þvert á svið
Skipulag skrifstofu
frá 1. júlí 2021
GALLINA LED LTD 2.3b The Beacon, Beaufront Park, Anick Rd, Hexham NE46 4TU, UK
T: +44 (0)7738 102 100 E: sales@gallinaled.com www.gallinaled.com
Ánægðir viðskiptavinir um alla Evrópu
Hafið samband
Gallina LED. Led ljós fyrir allan
landbúnað. Alifuglar, svín,
nautgripir, garðyrkja og fleira.
Lýsing
fyrir alifugla
Lýsing
fyrir svín
Lýsing
fyrir garðyrkju