Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 4

Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 20214 Í samræmi við samþykkt aukabúnaðarþings Bænda- samtaka Íslands frá 10. júní tók nýtt skipulag samtakanna formlega gildi frá og með 1. júlí. Nýir starfsmenn gengu til liðs við samtökin frá búgreinafélögunum og hófu störf á sama tíma. Helstu breytingar á skipulagi skrifstofu eru að tvö ný svið hafa litið dagsins ljós, markaðssvið og fagsvið búgreina. Markaðssvið samtakanna mun hafa heildarumsjón með öllu markaðsstarfi og sinnir starfsemi og verkefnum sem heyra undir einstaka búgreinar og landbúnaðinn í heild, s.s. markaðsátök og tímabundin áhersluverkefni í markaðssetningu og kynningu sem er ætlað að styðja og efla íslenskan landbúnað. Á markaðssviði starfa Hafliði Halldórsson og Höskuldur Sæmundsson, sem sjá einnig um að miðla upplýsingum til allra markhópa um málefni tengd landbúnaði og matvælaframleiðslu og frumframleiðslu afurða. Á fagsviði búgreina er starfað í deildum sem hafa það verksvið að annast um sérhæfð málefni einstakra búgreina. Fagdeildirnar sjá m.a. um ýmis málefni í ytra umhverfi búgreina, móta áherslur í hagsmunagæslu, taka þátt í skipan fagráða o.s.frv. Til nánari upplýsinga þá verða verkefni viðkomandi búgreina í höndum eftirtalinna aðila hjá samtökunum: Deild kúabænda á fagsviði búgreina: Margrét Gísladóttir, margret@bondi.is Deild sauðfjárbænda á fagsviði búgreina: Unnsteinn Snorri Snorrason, unnsteinn@bondi.is Deild garðyrkju á fagsviði búgreina: Katrín María Andrésdóttir Enn á eftir að ganga frá ráðningu sérfræðings deildar nýsköpunar- og þróunar (loðdýrarækt, geitfjárrækt og skógrækt) og nýs tengiliðar fyrir garðyrkju. Þá munu verkefni deilda eggja- og kjúklingabænda og svínabænda skiptast yfir í markaðsmál, umhverfismál og ytra umhverfi greinanna og verða þau vistuð hjá Guðrúnu Vöku Steingrímsdóttur lögfr. gudrun@ bondi.is og Kára Gautasyni sérfræðingi kari@bondi.is og á markaðssviði samtakanna hjá Hafliða Halldórssyni haflidi@ bondi.is og Höskuldi Sæmundssyni hoskuldur@bondi.is. Æðarræktarfélag Íslands og Félag hrossabænda greiddu atkvæði með samþykktum BÍ á aukabúnaðarþingi 10. júní 2021. Aðalfundir beggja félaga verða haldnir meðfram haustinu. Þjónusta og ráðgjöf frá starfsmönnum Bændasamtaka Íslands verður áfram til staðar fyrir félagsmenn BÍ í báðum búgreinum. Þá verður áfram fylgst með þáttum í starfsumhverfi búgreinanna og hagsmunagæsla félagsmanna verður tryggð. Önnur verkefni sem eru í umsjón starfsmanna búgreina Unnsteinn Snorri Snorrason, sérfræðingur. Hans helstu verkefni snúa að gerð áætlana um aukinn árangur landbúnaðar í umhverfismálum, samskiptum við hagsmunaaðila, þjónustuaðila og stjórnvöld tengd umhverfismálum. Unnsteinn mun sitja í starfshópum á vegum hins opinbera í tengslum við umhverfismál. Ásamt því að vera sérfræðingur í umhverfismálum landbúnaðarins verður hann jafnframt tengiliður sauðfjárræktarinnar innan fagdeildar búgreinarinnar og fylgist með þáttum og starfsumhverfi greinarinnar innan landbúnaðarkerfisins. Margrét Gísladóttir, sérfræðingur. Hennar helstu verkefni snúa að Kolefnisbrúnni, einkahlutafélagi í eigu Bændasamtaka Íslands. Kolefnisbrúin snýst um að ræktendur um land allt geti, með plöntun og umhirðu skóga, kolefnisjafnað sína eigin starfsemi og selt þá þjónustu til annarra, jafnvel til stórra og meðalstórra fyrirtækja. Áhersla er lögð á að ferlið sé vottað og stuðli að umfangsmikilli kolefnisbindingu um land allt til að mæta skuldbindingum Íslands í alþjóðasamfélaginu og stefnumörkun stjórnvalda. Með Kolefnisbrúnni skapast tækifæri til atvinnusköpunar um land allt þar sem til verða störf við plöntuframleiðslu, skógrækt og skógarnytjar. Ásamt því að vera verkefnisstjóri yfir Kolefnisbrúnni mun Margrét jafnframt vera tengiliður kúabænda á fagsviði búgreina og fylgjast þar með þáttum og starfsumhverfi greinarinnar innan landbúnaðarins. Aðrir starfsmenn Bændasamtaka Íslands Hjá Bændasamtökum Íslands starfar þaulreynt starfsfólk í öllum stöðum, með ólíkan bakgrunn sem búa að umfangsmikilli þekkingu á atvinnugreininni. Með áorðnum breytingum er stefnt að því að gera samtökin að framsýnum vinnustað sem einkennist af samvinnu og samstarfi og stöðugri þróun til samræmis við þarfir atvinnugreinarinnar hverju sinni og að skapa gott vinnuumhverfi fyrir starfsmenn. Auk starfsmanna á fagsviði búgreina og á markaðssviði samtakanna starfa starfsmenn á skrifstofu og útgáfu- og kynningarsviði samtakanna. Skrifstofa: Meginhlutverk sviðsins er að sinna rekstri samtakanna, stoðþjónustu við stjórn, félagsmenn og önnur svið samtakanna. Á sviðinu starfa sérfræðingar sem sinna fjármálum, mannauðsmálum, aðstoð við félagsmenn, greiningu á hagtölum og upplýsingasöfnun, ásamt lögfræðitengdum málefnum. Starfsmenn skrifstofu: - Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri - Gylfi Þór Orrason, fjármálastjóri - Sigríður Þorkelsdóttir, bókari - Jóhanna Lúðvíksdót t i r, þjónustufulltrúi - G u ð b j ö rg J ó n s d ó t t i r , verkefnisstjóri með innleiðingu á nýrri innheimtu félagsgjalda - Erla Hjördís Gunnarsdóttir, samskiptastjóri/upplýsingafulltrúi - Kári Gautason, sérfræðingur í úrvinnslu og greiningu hagtalna landbúnaðarins - Guðrún Vaka Steingrímsdóttir, lögfræðingur Útgáfu- og kynningarsvið: Mikilvægur hluti af starfsemi Bændasamtakanna snýr að útgáfu- og kynningarmálum. Samtökin gefa út Bændablaðið og tímarit Bændablaðsins, fréttabréf til félagsmanna og reka vefina bondi.is, bbl.is og Hlaðvarp Bændablaðsins. Starfsmenn útgáfu- og kynningarsviðs: - Hörður Kristjánsson, ritstjóri - Vilmundur Hansen, blaðamaður - Sigurður Már Harðarson, blaðamaður - Guðrún Hulda Pálsdóttir, blaðamaður - Sigrún Pétursdóttir, umbrot og hönnun Líkt og að framan hefur verið rakið eru samtökin í miklu umbreytingarferli og því má gera ráð fyrir að skipurit samtakanna sem gildir frá 1. júlí taki breytingum. /ehg FRÉTTIR Atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytið hefur fengið rannsóknarfyr- irtækið Maskínu til að framkvæma könnun á meðal sauðfjárbænda. Hún fjallar um viðhorf sauðfjár- bænda til innri og ytri aðstæðna í greininni, framtíðarhorfur og viðhorf til umhverfis og loftslagsmála. Könnunin er liður af aðgerðaráætl- un til eflingar íslensks landbúnaðar sem sjávarútvegs- og landbúnað- arráðherra kynnti í febrúar og snýr að sértækri vinnu vegna sauðfjár- ræktarinnar. Niðurstöður könnunar- innar munu gefa greinargott yfirlit yfir stöðu greinarinnar og nýtast m.a. við stefnumótun tengt endur- skoðun sauðfjársamnings. Haft verður samband við þátttakendur í könnuninni með símtölum og tölvu- pósti. Sauðfjárbændur eru hvattir til þátttöku. /ehg Könnun á meðal sauðfjárbænda Bændafundir Bændasamtaka Íslands 23.–27. ágúst 2021 Stjórn og starfsmenn Bændasamtaka Íslands munu ferðast um landið dagana 23.–27. ágúst næstkomandi og hitta bændur og búalið til að fara yfir nýtt skipulag samtakanna og framtíðarhorfur. Fundirnir með fundarstöðum verða auglýstir nánar síðar. Dagskrá fundanna er eftirfarandi: 1. Búðardalur 23. ágúst kl. 10. 2. Ísafjörður 23. ágúst kl. 20. 3. Blönduós 24. ágúst kl. 12. 4. Eyjafjörður 24. ágúst kl. 16. 5. Þingeyjarsveit 24. ágúst kl. 20. 6. Kópasker 25. ágúst kl. 10. 7. Egilsstaðir 25. ágúst kl. 16. 8. Höfn 25. ágúst kl. 20. 9. Vík 26. ágúst kl. 12 10. Selfoss 26. ágúst kl. 20. Nýtt skipulag Bændasam- takanna hefur tekið gildi Markaðssvið Verkefnastjórar Fagsvið búgreina Sérfræðingar Útgáfu- og kynningarsvið Ritstjóri Blaðamenn Auglýsingastjóri Skrifstofa Fjármálastjóri Bókari Verkefnisstjórar Sérfræðingar Lögfræðingur Samskiptastjóri Framkvæmdastjóri Stjórn BÍ Rauði þráðurinn - Samstarf og verkefni þvert á svið Skipulag skrifstofu frá 1. júlí 2021 GALLINA LED LTD 2.3b The Beacon, Beaufront Park, Anick Rd, Hexham NE46 4TU, UK T: +44 (0)7738 102 100 E: sales@gallinaled.com www.gallinaled.com Ánægðir viðskiptavinir um alla Evrópu Hafið samband Gallina LED. Led ljós fyrir allan landbúnað. Alifuglar, svín, nautgripir, garðyrkja og fleira. Lýsing fyrir alifugla Lýsing fyrir svín Lýsing fyrir garðyrkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.