Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 20

Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202120 Sigurður Sigurðarson dýra­ læknir hefur um árabil safnað saman upplýsingum um miltisbrunagrafir á Íslandi. Sumarið 2017 hóf Sigurður ásamt konu sinni, Ólöfu Erlu Haraldsdóttur, að merkja allar miltisbrunagrafir sem hann vissi um á landi. Allar götur síðan hafa verið að koma fram upplýsingar um áður óþekktar grafir og eru þær nú alls orðnar 160 á um 130 bæjum víðs vegar um land. Í júnímánuði síðastliðnum fór Sigurður enn af stað ásamt Ólöfu Erlu til að merkja miltisbrunagrafir. Er þetta gert með númeruðum málmstautum sem Sigurður lét útbúa og reknir eru niður þar sem grafirnar eru. Þetta gerir hann til að þeir sem á eftir koma geti forðast að róta í jarðvegi á þeim stöðum með hættu á að dreifa úr gróum sýkilsins sem þar leynast. Baktería sem hefur verið á áhugasviði hernaðarsérfræðinga Sjúkdómurinn miltisbruni, miltisbrandur eða anthrax, stafar af eitri sem bakterían „Bacillus anthracis“ myndar. Getur hann verið bráðdrepandi og hafa hernaðaryfirvöld ýmissa landa því sýnt þessari bakteríu sérstakan áhuga í gegnum tíðina. Gallinn við notkun hennar er þó að hún fer ekki í pólitískt manngreinarálit og virðir heldur engin landamæri. Dánarlíkur eru taldar allt að 50 til 80%, ef um smit í öndunarfærum er að ræða, jafnvel þótt sýklalyfjum sé beitt. Húðsýking er þó algengust, eða í 95% tilvika, og er ekki talin eins hættuleg, Þar er dánarlíkurnar sagðar um 24%. Sjúkdómurinn er oftast bundinn við grasbíta, en ef hann kemst í menn er hann m.a. sagður valda óvenjumiklum verkjum, þar á meðal brjóstverkjum, öndunar­ örðugleikum, háum hita, ógleði, sljóleika, niðurgangi og ljótum útbrotum sem orsaka drep í vefjum. Talið er að um 2.000 menn smitist árlega í heiminum af völdum miltisbrands. Smit eru algengust í Afríku, en einnig þekkt í Suður­ Evrópu og í Bandaríkjunum. Fékk nýjar fregnir af gröfum á Tjörnesi Sigurður segir að þau hafi nýlega frétt af miltisbrunagröfum á Tjörnesi og við Þistilfjörð. „Ég vona að þá fari fækkandi ómerktum sýktum stöðum. Skýrslur um miltisbrunagrafir eru tilbúnar og hafa verið sýndar ráðuneyti landbúnaðar og Matvælastofnun.“ Hefur oft talað fyrir daufum pólitískum eyrum Sigurði er mjög umhugað um að Íslendingar framtíðarinnar hafi vitneskju um þessar hættulegu miltisbrandsgrafir. Af óbilandi eljusemi hefur hann gengið milli ráðamanna þjóðarinnar á liðnum árum til að tryggja að þessar upplýsingar falli ekki í gleymsku. Stjórnmálamenn og ráðherrar koma og fara og ekki hafa undirtektir alltaf verið í takt við alvarleika málsins. Enda er umræða um einhverjar grafir dýra og manna þó hættulegar séu, ekki líklegar til að skora hátt á pólitískum vinsældalistum. Samt hefur Sigurður ekki gefist upp og heldur enn áfram. FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Sigurður Sigurðarson dýralæknir hefur verið óbilandi við að merkja stórhættulegar miltisbrunagrafir á Íslandi: Vitað er um 160 miltisbrunagrafir á 130 bæjum á landinu – Sjúkdómurinn er hættulegur fyrir grasbíta og líka menn og dæmi eru erlendis um að smitefni hafi lifað í jörðu í 550 ár Sigurður Sigurðarson dýralæknir kemur fyrir einni af mörgum merkingum sínum á miltisbrunagröf 2017. Mynd / Ólöf Erla Halldórsdóttir. Rangárvallasýsla: (A490­500­1, A01, A1­5) Yztabæli (**2 staðir: Sitjandi og Torflækur, *Önundarhorn ?), *Skúmsstaðir, Meiritunga (2 st), Kaldakinn (2 st), Lýtingsstað Vestmannaeyjar: (A10) *1 maður Árnessýsla (austan Ölfusár): (A11­24) Hamrar, Úthlíð, Hjálmsstaðir(2st), Ketilvellir, *Eyvindartunga, *Lækur, S­Sýrlækur, Krókur, Tunga/ Hólar, V­Íragerði, Eyrarb(2st). Árnessýsla (vestan Ölfusár): A31­40) Hagavík, Þórustaðir (3st), Stóri­Háls, Gljúfurárholt, Hvammur, Arnarbæli, Þorkelsgerði. Gullbringusýsla: (A41­50) Suðurkot, Sjónarhóll, Ás, Jófríðarstaðir, Urriðakot (2st), *Hraunsholt (2st), Reykjavík og Kjós: (A51­80) Reykjavík (*?staðir), Breiðholt, Sunnuhvoll, Klambrar, *Hlemmur, Miðdalur(2st), Hraðastaðir, Sólvellir. Borgarfjarðarsýsla: (A101­110) Skáneyjarkot, Skáney (*5 staðir a.m.k.), Laugavellir, Giljar, Grímsstaðir, Árdalur. Mýrarsýsla: A121­130) Síðumúli, Fróðastaðir, Hallkelsstaðir, Galtarholt Dalasýsla: (A141­160) Háafell, Hamraendar, Skriðukot, Hólar, Stóri­Galtardalur, Kjallaksstaðir, Harastaðir, Skarðsstöð Austur­ og Vestur­ Barðastrandarsýslur, Vestur­ og Norður­Ísafjarðarsýslur: (A170­180) Gillastaðir, Barmar, Reykhólar, Saurbær, Minni­Hattardalur, Birnustaðir, Lágidalur. Strandasýsla: (A191­200) *Ófeigsfjörður, Grund (á Drangsnesi), Gautshamar, Smiðjuhús í Húsadal, Brunngil í Bitru. Vestur­ og Austur­ Húnavatnssýslur: (A201­210) Ánastaðir (2 staðir), Höskuldsstaðir, Þórormstunga, Guðrúnarstaðir, *Grímstunguheiði. Skagafjörður: (A221­230) Skarðsá, Lækur (Viðvíkurhr), Hólakot (í Fljótum). Eyjafjörður: (A231­240) Háls, Gata, Krossanes (2 staðir), Ytragil, Hólsgerði, Svertingsstaðir (2 staðir). Suður­Þingeyjarsýsla: (A241­250) Grænavatn (2 staðir), Grundartóft, Kálfaströnd, Hallbjarnarstaðir Tjörnesi. Norður Þingeyjarsýsla og Norður­Múlasýsla: (A301­330) Jaðar, Engihlíð, Svínabakkar, *Fáskrúðsbakki, Hauksstaðir, Hof, Hrappsstaðir, Heiðarsel, Sleðbrjótssel, Hofteigur, Vellir v.Þistilfjörð Hérað: (A331­350) Hafrafell, Staff., Ekkjuf., Kross, Ormarsst., Refsmýri, Hlíðasel, Skeggjast., Meðalnes, Skriðuklaustur. Vellir: (A351­351) Víkingsstaðir, Jaðar, Ketilsstaðir(3), Keldhólar, Mjóanes Austfirðir: (A361­365) Brekka, Norðfjörður (Júdasarbali), Hólmaháls, Hólmar, Slétta Suðurfirðir Austfjarða: (A370­390) Skálavík, Berunes, Dalir (3 staðir), Hólagerði, Berufjörður, Teigarhorn, Búlandsnes, Djúpivogur. Austur­Skaftafellssýsla (austan fljóta): (A391­400) Bær í Lóni, Brekkubær í Nesjum, Bjarnanes (*ómerkt) Austur­Skaftafellssýsla (vestan fljóta): (A401­404 Stóraból, Einholt (2st.), Fell. Miltisbrunagrunur á fyrri öldum: Ár 1203, Skúmstaðir (í Land­ eyj um). „...7 menn fallnir, auk þess bæði naut og hross. Guðmundur góði var tilkvaddur og allt fall hætti með vígðu vatni, sem Guðmundur stökkti á fólk, fénað og umhverfi.“ Ár 1430, Skálholt. „Nautadauði mikill (óvíst hvort ástæðan var fóðurskortur, harðæri eða miltisbrandur).“ Ár 1545, Hamrar. „Naut 14 á Hömrum – Sakaði hvorki blóð né gor nema kæmi við andlitið 1 maður bar heim slátur, sem hann keypti, fékk mein af því á hálsi og dó. Naut og hundar urðu bráðdauðir, ef lyktuðu af því dauða hræi.“ Ár 1552­3, Hamrar. „...12 kýr og 6 naut dóu. Menn skaðaði hvorki blóð né gor, þótt það kæmi við hendurnar, en ef það kom við andlitið, þá varð strax mein og margir misstu sýnina af því Ár 1564, Hamrar. „...13 naut á Hömrum og víða naut á bæjum í Grímsnesi, Eyvík, Fjall á Skeiðum.“ Ár 1566, Austurhlíð. „Nauta­ dauði. Þar dóu 16 naut.“ Ár 1567, Miðdalur. „Þar dóu fyrst 2 hestar og eftir það 13 naut.“ Ár 1568, Kálfhóll. „...Sá 2 nautadauði 1568.“ Ár 1580. „...var sá 3. nautadauði á Kálfhóli þar dóu 13 naut. Þaðan bar maður nokkuð á hesti upp til Ása og dó hesturinn af því þar en nautin síðan. Maður einn bar þaðan nokkuð af þessu til síns heimilis. Þar af fékk hann mein aptan á hálsinn og bólgu um allar kverkarnar, svo var hann dauður eftir fáa daga.“ Ár 1635­6 Fjall á Skeiðum. „Nautadauði á Skálholtsbúinu Fjalli og nokkrum bæjum í kring.” Ár 1660 Hamrar. „Þá andaðist Jón Jónsson lögréttumaður. Strax eftir hans dauða skeði sérkennilegur nautadauði á Hömrum og bæjum þar í kring. Líka dóu hestar og sumir misstu mikið. Kom faraldur þetta á aðra bæi, ef hestar þeirra átu áfóður eða moð á Hömrum, eður ef nokkuð af þessu slátri kom á aðra bæi. Þessir gripir dóu skyndilega... helst var það í kringum Fjall, sem það slæma kjöt var keypt. Naut sem komust að því og lyktuðu dóu öll og hestar, sem það hráa kjöt báru heim. Þeir dóu.“ Nokkrar heimildir: Biskupsannálar Jóns Egilssonar (Safn til sögu Íslands) Árbækur Espólins, Fitjaannáll, anno 1660, bls 187, Kjósarannáll bls 439 11 5 1660 Ingibjörg Tönsberg, Glæsibæ 13, Reykjavík , Auður Gunnars­ dóttir Hömrum, s. 486 Hermann Tönsberg, Háaleitisbraut 17, s: 553 1396, 699 1396 Guðmund ur Arason, Prestssaga (Sturl unga 1) 1. Útdráttur úr miltisbrunaskýrslu. Miltisbrunastaðir á Íslandi, (frá . 1866­2004 og frá fyrri öldum), lýsing og hnit. 2. Sauðburðarkver, endurút gef ið í endurbættu formi, Sauðburðar kver, endurútgefið gormabók, plasthlíf að framan. 3. Geita­ og kindakver, 80 bls. 90 myndir. Heilsufar og sjúkdómar í geitum og kindum. 4. Barátta gegn smitandi sauðfjár sjúkdómum. Karakúlpestir, kláði, riða og miltisbruni, 60 bls. 20 myndir. Miltisbrunagrafir á Íslandi 1866–2004 *=Stjörnumerkt, óvíst eða ekki merkt Sár og vefjadrep á húð eftir miltis­ brand.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.