Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202124 LÍF&STARF Sóldís Einarsdóttir, myndlistar- kennari, hestakona, hundaþjálf- ari og hundasnyrtir, stendur nú fyrir námskeiðunum Dýr og list í annað sinn í hesthúsi sínu hjá Hestamannafélaginu Spretti í Garðabæ/Kópavogi. Þar stendur börnum á aldrinum 5-11 ára til boða að koma á nám- skeið sem er sambland af myndlist- arnámskeiði og kennslu í umhirðu dýra sem hefur svo sannarlega verið vel tekið af borgarbörnunum. Þegar blaðamann Bændablaðsins bar að garði á dögunum var mikið líf og fjör í hesthúsinu hjá Sóldísi þegar börnin komu hvert af öðru kampakát úr göngutúr í skógin- um með nokkra hunda í eftirdragi og fangið fullt af alls kyns blóm- um og laufblöðum. Eitt af verk- efnum dagsins var síðan að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn eftir gönguna og skapa dýr á blað úr náttúrulegum efnum sem fundust á göngunni. „Ég byrjaði á þessum nám- skeiðum í fyrrasumar með vinkonu minni, Höllu Maríu, sem rekur reiðskólann Eðalhesta, sem síðan flutti á Skagaströnd en ég ákvað að halda þessu áfram með dóttur minni, Þórunni Rebekku. Aðsóknin hefur aukist um helming í sumar þrátt fyrir að við höfum sáralítið auglýst, svo það er greinilega þörf fyrir þessa tegund af námskeiði fyrir börn,“ segir Sóldís, sem er mynd- listarkennari við Myndlistarskólann í Kópavogi og málar myndir, aðal- lega af dýrum. Dýrakona frá blautu barnsbeini Það er óhætt að segja að fjölbreytni sé í dýrategundum í hesthúsinu hjá Sóldísi en fyrir utan hestana hafa, hænuungar, kettlingar, naggrísir, kanínur og hamstrar aðstöðu að ógleymdum íslensku fjárhundunum, þeim Mána og Skorra, sem fylgja þátttakendum á námskeiðinu hvert fótmál. „Ég hef verið mikil dýrakona frá blautu barnsbeini og langaði alltaf að eiga alls konar dýr en fékk það nú kannski ekki alveg eins mikið og ég vildi. Ég og dætur mínar, Þórunn Rebekka og Sunna Dís, höfum lengi verið í hestum og átt alls konar dýr og því var ekki erfitt að bjóða upp á dýra- og listnámskeið hér í hest- húsinu. Við ákváðum strax að hafa hópana fámenna til að geta sinnt bæði börnum og dýrum vel. Það eru 10 til 15 börn á aldrinum 5–11 ára á hverju námskeiði sem eru ýmist fyrir eða eftir hádegi,“ segir Sóldís og bætir við: „Uppleggið er að börnin komist í tæri við náttúruna og listsköpun auk þess að fá að umgangast dýr og læra að hugsa um þau. Börnin eru tvö til þrjú saman að sjá um dýrin og skiptist það á milli hópa hvaða dýr þau sjá um þann og þann daginn. Þá sjá þau um almenna umhirðu, að þrífa og læra hvað dýrin borða ásamt því að þau fá líka knússtund með þeim. Síðan eru alltaf tvö börn á dag sem fá að prófa að fara á hestbak og þess á milli vinnum við með listina og mismunandi listform, svo allir hafa mismunandi hlutverk á hverj- um degi alla vikuna á námskeiðinu. Það sem er líka mikill plús í þessu er að við erum á svo yndislegum stað alveg ofan í náttúruperlunni Heiðmörk, en við förum mikið upp í Guðmundarlund til að sækja okkur efnivið í listsköpunina, auk þess sem við sitjum oft úti og teiknum. Við mæðgurnar erum allar mikl- ar dýra- og listakonur svo þetta er sannarlega draumur að rætast hjá okkur að geta boðið upp á þessi námskeið. Börn á höfuðborgar- svæðinu komast oft ekki í tæri við dýr en hér hafa þau möguleika á því og kunna virkilega að meta það.“ /ehg Hestamannafélagið Sprettur: Fjölbreytt sambland af dýra um­ hirðu og kennslu ólíkra listforma Sóldís er myndlistarkona og teiknar fallegar myndir af húsdýrum, hægt er að sjá verkin hennar á Instagram undir artwork_by_soldis og á Facebook undir Artwork by Soldis. Krakkarnir voru einbeitt að skapa dýr úr listaverkum eftir göngutúr dagsins í skóginum. Mæðgurnar Sóldís og Sunna Dís sýna hér hluta af þeim kanínum sem eiga heima í hesthúsinu. Sunna Dís og Gabríela sýna blaðamanni Kalla kanínu, sem er þriggja ára og ansi kröftuglegur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.