Bændablaðið - 22.07.2021, Side 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202124
LÍF&STARF
Sóldís Einarsdóttir, myndlistar-
kennari, hestakona, hundaþjálf-
ari og hundasnyrtir, stendur nú
fyrir námskeiðunum Dýr og list
í annað sinn í hesthúsi sínu hjá
Hestamannafélaginu Spretti í
Garðabæ/Kópavogi.
Þar stendur börnum á aldrinum
5-11 ára til boða að koma á nám-
skeið sem er sambland af myndlist-
arnámskeiði og kennslu í umhirðu
dýra sem hefur svo sannarlega verið
vel tekið af borgarbörnunum.
Þegar blaðamann Bændablaðsins
bar að garði á dögunum var mikið
líf og fjör í hesthúsinu hjá Sóldísi
þegar börnin komu hvert af öðru
kampakát úr göngutúr í skógin-
um með nokkra hunda í eftirdragi
og fangið fullt af alls kyns blóm-
um og laufblöðum. Eitt af verk-
efnum dagsins var síðan að gefa
hugmyndafluginu lausan tauminn
eftir gönguna og skapa dýr á blað
úr náttúrulegum efnum sem fundust
á göngunni.
„Ég byrjaði á þessum nám-
skeiðum í fyrrasumar með vinkonu
minni, Höllu Maríu, sem rekur
reiðskólann Eðalhesta, sem síðan
flutti á Skagaströnd en ég ákvað
að halda þessu áfram með dóttur
minni, Þórunni Rebekku. Aðsóknin
hefur aukist um helming í sumar
þrátt fyrir að við höfum sáralítið
auglýst, svo það er greinilega þörf
fyrir þessa tegund af námskeiði fyrir
börn,“ segir Sóldís, sem er mynd-
listarkennari við Myndlistarskólann
í Kópavogi og málar myndir, aðal-
lega af dýrum.
Dýrakona frá
blautu barnsbeini
Það er óhætt að segja að fjölbreytni
sé í dýrategundum í hesthúsinu hjá
Sóldísi en fyrir utan hestana hafa,
hænuungar, kettlingar, naggrísir,
kanínur og hamstrar aðstöðu að
ógleymdum íslensku fjárhundunum,
þeim Mána og Skorra, sem fylgja
þátttakendum á námskeiðinu hvert
fótmál.
„Ég hef verið mikil dýrakona frá
blautu barnsbeini og langaði alltaf
að eiga alls konar dýr en fékk það
nú kannski ekki alveg eins mikið og
ég vildi. Ég og dætur mínar, Þórunn
Rebekka og Sunna Dís, höfum lengi
verið í hestum og átt alls konar dýr
og því var ekki erfitt að bjóða upp
á dýra- og listnámskeið hér í hest-
húsinu. Við ákváðum strax að hafa
hópana fámenna til að geta sinnt
bæði börnum og dýrum vel. Það eru
10 til 15 börn á aldrinum 5–11 ára
á hverju námskeiði sem eru ýmist
fyrir eða eftir hádegi,“ segir Sóldís
og bætir við:
„Uppleggið er að börnin komist í
tæri við náttúruna og listsköpun auk
þess að fá að umgangast dýr og læra
að hugsa um þau. Börnin eru tvö
til þrjú saman að sjá um dýrin og
skiptist það á milli hópa hvaða dýr
þau sjá um þann og þann daginn.
Þá sjá þau um almenna umhirðu,
að þrífa og læra hvað dýrin borða
ásamt því að þau fá líka knússtund
með þeim.
Síðan eru alltaf tvö börn á dag
sem fá að prófa að fara á hestbak og
þess á milli vinnum við með listina
og mismunandi listform, svo allir
hafa mismunandi hlutverk á hverj-
um degi alla vikuna á námskeiðinu.
Það sem er líka mikill plús í þessu
er að við erum á svo yndislegum
stað alveg ofan í náttúruperlunni
Heiðmörk, en við förum mikið upp
í Guðmundarlund til að sækja okkur
efnivið í listsköpunina, auk þess
sem við sitjum oft úti og teiknum.
Við mæðgurnar erum allar mikl-
ar dýra- og listakonur svo þetta er
sannarlega draumur að rætast hjá
okkur að geta boðið upp á þessi
námskeið. Börn á höfuðborgar-
svæðinu komast oft ekki í tæri við
dýr en hér hafa þau möguleika á því
og kunna virkilega að meta það.“
/ehg
Hestamannafélagið Sprettur:
Fjölbreytt sambland af dýra um
hirðu og kennslu ólíkra listforma
Sóldís er myndlistarkona og teiknar fallegar myndir af húsdýrum, hægt er að sjá verkin hennar á Instagram undir artwork_by_soldis og á Facebook undir Artwork by Soldis.
Krakkarnir voru einbeitt að skapa dýr úr listaverkum eftir göngutúr dagsins í skóginum.
Mæðgurnar Sóldís og Sunna Dís sýna hér hluta af þeim kanínum sem eiga
heima í hesthúsinu.
Sunna Dís og Gabríela sýna blaðamanni Kalla kanínu, sem er þriggja ára
og ansi kröftuglegur.