Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202110
Laugardaginn 26. júní, á 53
ára afmælisdegi Guðna Th.
Jóhannessonar, forseta Íslands,
var opnað nýtt og glæsilegt
bílasafn á Breiðdalsvík.
Safnið heitir „Frystihúsið
bílasafn“ eða „Factory Car Museum“
á ensku. Safnið eru í eigu þeirra Ólafs
Hvanndals, Ingólfs Finnssonar,
Guðbjartar Guðmundssonar
og Ingólfs Finnbogasonar. Þar
eru rúmlega 20 bílar af ýmsum
tegundum, m.a. Porsche, Mercedes
Benz, Lotus, BMW, Morgan og
Jaguar. Þá er á safninu eintak af
íslenska sportbílnum „Adrenalín“,
sem var framleiddur í aðeins tveimur
eintökum skömmu fyrir síðustu
aldamót.
„Bílarnir eru flestir í einkaeigu
og þá ýmist í eigu okkar eigenda
safnsins eða annarra sem hafa verið
svo velviljaðir að lána safninu bíla.
Safnið mun verða lifandi á þann hátt
að safngripum verður reglulega skipt
út svo alltaf verði eitthvað nýtt að sjá
fyrir gesti,“ segir Ólafur.
En hvaða bíll fær mesta athygli
á safninu?
„Það er Mercedes Benz
290B árgerð 1937 en sá bíll var
embættisbíll Werner Gerlach,
ræðismanns Þýskalands á Íslandi
á stríðstímanum og líklega einn
sögufrægasti bíll Íslandssögunnar,“
segir Ólafur. Safnið, sem er í gamla
frystihúsinu á Breiðdalsvík verður
opið í allt sumar alla daga frá kl.
10.00–18.00 og kostar þúsund
krónur inn á safnið en frítt er fyrir
börn 12 ára og yngri. /MHH
FRÉTTIR
Mikið af glæsilegum bílum eru á safninu þar sem bílaáhugamenn, karlar og konur geta gleymt sér við að skoða bílana.
Breiðdalsvík:
Frystihúsið – nýtt og
glæsilegt bílasafn
Guðbjartur Guðmundsson (lengst til vinstri), Ólafur Hvanndal Ólafsson,
Ingólfur Finnbogason og Ingólfur Finnsson að opna safnið laugardaginn
26. júní 2021. Þeir hvetja alla til þess að leggja leið sína til Breiðdalsvíkur til
þess að skoða bílasafnið og njóta alls þess sem bærinn hefur upp á að bjóða.
Tveir af bílunum á safninu, Mercedes Benz 290B árgerð 1937 (til vinstri) og
Mercedes Benz 170V árgerð 1936.
Íslenski sportbíllinn „Adrenalín“, sem var hannaður og smíðaður af Gunnari E. Bjarnasyni og Theódóri H. Sighvatssyni,
er á safninu og vekur þar mikla athygli. Myndir/Aðsendar
„Það má alveg segja að við sem
störfum innan ferðaþjónustunnar
erum aðeins farin að brosa aftur.
Það fór allt vel í gang um leið og
hömlum var aflétt af landamær-
unum og straumur ferðafólks
farið vaxandi síðan þá,“ segir
Sölvi Arnarson, formaður Félags
ferðaþjónustubænda. „Hjólin fóru
strax að snúast hratt.“
Hann segir að staðan nú sé víð-
ast hvar með ágætum, margt fólk
á ferli og nýting alls staðar góð.
Bandaríkjamenn séu þeir útlendingar
sem eru áberandi flestir um þessar
mundir en aðrar þjóðir vissulega líka
á ferðinni. „Það er gaman að sjá að
bílaleigubílarnir eru aftur komnir á
þjóðvegina, þetta er að verða líflegt
og skemmtilegt,“ segir Sölvi.
Töluvert átak að opna aftur
Hann segir að margir hafi átt í erfið-
leikum með að opna sína starfsemi á
ný eftir langa lokun, frá 14 og upp í
18 mánuði þar sem mest var. „Það er
ekki svo erfitt að skella í lás, en það
er töluvert átak að opna aftur. Það
er að mörgu að huga og margt sem
þarf að gera. Eitt af því sem reyndist
mörgum ferðaþjónustubændum erfitt
núna var að fá nægan mannskap í
vinnu. Það var alls ekki auðvelt alls
staðar, einhverjir gripu til þess ráðs
að hafa skemmri afgreiðslutíma til
að mæta því,“ segir hann.
Annað sem við ferðaþjón-
ustubændum blasti þegar landa-
mærin voru opnuð var óvissan um
á hverju menn gætu átt von. „Það
vissi auðvitað enginn hver fjöldinn
yrði, það voru ákveðnar væntingar í
gangi en enginn vissi nákvæmlega
hvernig þetta yrði. Staðreyndin er
að hraðinn varð meiri en menn áttu
von á fyrst,“ segir Sölvi.
Innviðir til staðar
Nú í júlí eru margir Íslendingar á
ferðinni og veðurblíða á austanverðu
landinu hefur dregið marga þangað.
Tjaldvæði eru víða svo gott sem yf-
irfull og gistimöguleikar aðrir eru
vel nýttir. Sölvi segir að innviðir séu
í lagi og oft áður hafi verið fleira fólk
á ferðinni en nú.
„Þannig að þetta mun allt bjargast,
það voru allir tilbúnir að taka á móti
ferðafólki og ég finn að það er allt að
smella og gengur vel smurt,“ segir
hann.
Ekkert villtavestursástand
Sölvi segir að fólk innan ferðaþjón-
ustunnar fái auka hjartaslag þegar
Þórólfur boði blaðamannafund og
svo hafi verið á dögunum. „Þetta
er samt ósköp einfalt, þetta er ekki
búið og við verðum að teysta því
fólki sem er í forystunni og það hefur
sýnt að það veit hvað það er að gera.
Það hefur gengið betur hjá okkur en
flestum Evrópuríkjum,“ segir hann
og bætir við að menn hafi skilning á
því að grípa þurfi til ráðstafana nú.
„Ég tek eftir því að menn eru að
virða sóttvarnir, það er alls staðar
spritt í boði og það er til að ferða-
hópar óski eftir að þjónustufólk beri
grímur þegar það er að störfum.
Það er ekki eins og þetta sé eitthvað
villtavestursástand, menn eru að
vanda sig,“ segir Sölvi. /MÞÞ
Góður gangur hjá ferðaþjónustubændum:
Hjólin snúast hratt
KONUR 40 ÁRA OG ELDRI
VIKAN YKKAR Á SPÁNI: 19. 0KT ALBÍR / 27. OKT TENERIFE
Vinsælar kvennaferðir til Spánar og Tenerife í boði í haust.
Vandað uppbyggjandi lífsgæðanámskeið hagnýtt og
skemmtilegt. Frábærar skoðunarferðir og hæfilegar gönguferðir.
Beint flug og gott hótel með morgun og kvöldverði, notaleg
samvera og tækifæri til nýrrar vináttu. Uppbyggingarferðir sem
hafa fengið frábærar umsagnir. Kjörið fyrir stakar konur hvaðan
af landinu sem er enda vönduð dagskrá, örugg fararstjórn og hlý
stemming, en líka gaman fyrir vinkonur og hópa. Sól, sæla og
útivera á Spáni í góðum félagsskap, gerist ekki betra!
Allar upplýsingar: http://www.skotganga.co.uk/sjalfsraektarferdir
Inga Geirs fararstjóri Skotgöngu – inga@skotganga.co.uk
Kristín Linda sálfræðingur Huglind – kristinlinda@huglind.is
Sölvi Arnarson, formaður Félags ferðaþjónustubænda.
Bænda
12. ágúst