Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202120
Sigurður Sigurðarson dýra
læknir hefur um árabil safnað
saman upplýsingum um
miltisbrunagrafir á Íslandi.
Sumarið 2017 hóf Sigurður
ásamt konu sinni, Ólöfu Erlu
Haraldsdóttur, að merkja allar
miltisbrunagrafir sem hann
vissi um á landi. Allar götur
síðan hafa verið að koma fram
upplýsingar um áður óþekktar
grafir og eru þær nú alls orðnar
160 á um 130 bæjum víðs vegar
um land.
Í júnímánuði síðastliðnum fór
Sigurður enn af stað ásamt Ólöfu
Erlu til að merkja miltisbrunagrafir.
Er þetta gert með númeruðum
málmstautum sem Sigurður lét
útbúa og reknir eru niður þar sem
grafirnar eru. Þetta gerir hann til að
þeir sem á eftir koma geti forðast
að róta í jarðvegi á þeim stöðum
með hættu á að dreifa úr gróum
sýkilsins sem þar leynast.
Baktería sem hefur verið á
áhugasviði hernaðarsérfræðinga
Sjúkdómurinn miltisbruni,
miltisbrandur eða anthrax, stafar
af eitri sem bakterían „Bacillus
anthracis“ myndar. Getur hann
verið bráðdrepandi og hafa
hernaðaryfirvöld ýmissa landa
því sýnt þessari bakteríu sérstakan
áhuga í gegnum tíðina. Gallinn við
notkun hennar er þó að hún fer ekki
í pólitískt manngreinarálit og virðir
heldur engin landamæri. Dánarlíkur
eru taldar allt að 50 til 80%, ef um
smit í öndunarfærum er að ræða,
jafnvel þótt sýklalyfjum sé beitt.
Húðsýking er þó algengust, eða í
95% tilvika, og er ekki talin eins
hættuleg, Þar er dánarlíkurnar sagðar
um 24%.
Sjúkdómurinn er oftast bundinn
við grasbíta, en ef hann kemst í
menn er hann m.a. sagður valda
óvenjumiklum verkjum, þar á
meðal brjóstverkjum, öndunar
örðugleikum, háum hita, ógleði,
sljóleika, niðurgangi og ljótum
útbrotum sem orsaka drep í vefjum.
Talið er að um 2.000 menn smitist
árlega í heiminum af völdum
miltisbrands. Smit eru algengust
í Afríku, en einnig þekkt í Suður
Evrópu og í Bandaríkjunum.
Fékk nýjar fregnir af gröfum
á Tjörnesi
Sigurður segir að þau hafi nýlega
frétt af miltisbrunagröfum á Tjörnesi
og við Þistilfjörð.
„Ég vona að þá fari fækkandi
ómerktum sýktum stöðum. Skýrslur
um miltisbrunagrafir eru tilbúnar
og hafa verið sýndar ráðuneyti
landbúnaðar og Matvælastofnun.“
Hefur oft talað fyrir daufum
pólitískum eyrum
Sigurði er mjög umhugað um að
Íslendingar framtíðarinnar hafi
vitneskju um þessar hættulegu
miltisbrandsgrafir. Af óbilandi
eljusemi hefur hann gengið milli
ráðamanna þjóðarinnar á liðnum
árum til að tryggja að þessar
upplýsingar falli ekki í gleymsku.
Stjórnmálamenn og ráðherrar koma
og fara og ekki hafa undirtektir alltaf
verið í takt við alvarleika málsins.
Enda er umræða um einhverjar
grafir dýra og manna þó hættulegar
séu, ekki líklegar til að skora hátt
á pólitískum vinsældalistum. Samt
hefur Sigurður ekki gefist upp og
heldur enn áfram.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Sigurður Sigurðarson dýralæknir hefur verið óbilandi við að merkja stórhættulegar miltisbrunagrafir á Íslandi:
Vitað er um 160 miltisbrunagrafir
á 130 bæjum á landinu
– Sjúkdómurinn er hættulegur fyrir grasbíta og líka menn og dæmi eru erlendis um að smitefni hafi lifað í jörðu í 550 ár
Sigurður Sigurðarson dýralæknir kemur fyrir einni af mörgum merkingum sínum á miltisbrunagröf 2017.
Mynd / Ólöf Erla Halldórsdóttir.
Rangárvallasýsla:
(A4905001, A01, A15)
Yztabæli (**2 staðir: Sitjandi
og Torflækur, *Önundarhorn
?), *Skúmsstaðir, Meiritunga
(2 st), Kaldakinn (2 st),
Lýtingsstað
Vestmannaeyjar:
(A10) *1 maður
Árnessýsla (austan Ölfusár):
(A1124) Hamrar, Úthlíð,
Hjálmsstaðir(2st), Ketilvellir,
*Eyvindartunga, *Lækur,
SSýrlækur, Krókur, Tunga/
Hólar, VÍragerði, Eyrarb(2st).
Árnessýsla (vestan Ölfusár):
A3140) Hagavík,
Þórustaðir (3st), StóriHáls,
Gljúfurárholt, Hvammur,
Arnarbæli, Þorkelsgerði.
Gullbringusýsla:
(A4150) Suðurkot,
Sjónarhóll, Ás, Jófríðarstaðir,
Urriðakot (2st), *Hraunsholt
(2st),
Reykjavík og Kjós:
(A5180) Reykjavík (*?staðir),
Breiðholt, Sunnuhvoll,
Klambrar, *Hlemmur,
Miðdalur(2st), Hraðastaðir,
Sólvellir.
Borgarfjarðarsýsla:
(A101110) Skáneyjarkot,
Skáney (*5 staðir a.m.k.),
Laugavellir, Giljar,
Grímsstaðir, Árdalur.
Mýrarsýsla:
A121130) Síðumúli,
Fróðastaðir, Hallkelsstaðir,
Galtarholt
Dalasýsla:
(A141160) Háafell,
Hamraendar, Skriðukot,
Hólar, StóriGaltardalur,
Kjallaksstaðir, Harastaðir,
Skarðsstöð
Austur og Vestur
Barðastrandarsýslur, Vestur
og NorðurÍsafjarðarsýslur:
(A170180) Gillastaðir,
Barmar, Reykhólar,
Saurbær, MinniHattardalur,
Birnustaðir, Lágidalur.
Strandasýsla:
(A191200) *Ófeigsfjörður,
Grund (á Drangsnesi),
Gautshamar, Smiðjuhús í
Húsadal, Brunngil í Bitru.
Vestur og Austur
Húnavatnssýslur:
(A201210) Ánastaðir (2
staðir), Höskuldsstaðir,
Þórormstunga, Guðrúnarstaðir,
*Grímstunguheiði.
Skagafjörður:
(A221230) Skarðsá, Lækur
(Viðvíkurhr), Hólakot (í
Fljótum).
Eyjafjörður:
(A231240) Háls, Gata,
Krossanes (2 staðir), Ytragil,
Hólsgerði, Svertingsstaðir (2
staðir).
SuðurÞingeyjarsýsla:
(A241250) Grænavatn
(2 staðir), Grundartóft,
Kálfaströnd, Hallbjarnarstaðir
Tjörnesi.
Norður Þingeyjarsýsla og
NorðurMúlasýsla:
(A301330) Jaðar,
Engihlíð, Svínabakkar,
*Fáskrúðsbakki, Hauksstaðir,
Hof, Hrappsstaðir, Heiðarsel,
Sleðbrjótssel, Hofteigur, Vellir
v.Þistilfjörð
Hérað:
(A331350) Hafrafell, Staff.,
Ekkjuf., Kross, Ormarsst.,
Refsmýri, Hlíðasel,
Skeggjast., Meðalnes,
Skriðuklaustur.
Vellir:
(A351351) Víkingsstaðir,
Jaðar, Ketilsstaðir(3),
Keldhólar, Mjóanes
Austfirðir:
(A361365) Brekka,
Norðfjörður (Júdasarbali),
Hólmaháls, Hólmar, Slétta
Suðurfirðir Austfjarða:
(A370390) Skálavík,
Berunes, Dalir (3 staðir),
Hólagerði, Berufjörður,
Teigarhorn, Búlandsnes,
Djúpivogur.
AusturSkaftafellssýsla (austan
fljóta):
(A391400) Bær í Lóni,
Brekkubær í Nesjum,
Bjarnanes (*ómerkt)
AusturSkaftafellssýsla (vestan
fljóta):
(A401404 Stóraból, Einholt
(2st.), Fell.
Miltisbrunagrunur
á fyrri öldum:
Ár 1203, Skúmstaðir (í Land
eyj um). „...7 menn fallnir, auk þess
bæði naut og hross. Guðmundur
góði var tilkvaddur og allt fall hætti
með vígðu vatni, sem Guðmundur
stökkti á fólk, fénað og umhverfi.“
Ár 1430, Skálholt. „Nautadauði
mikill (óvíst hvort ástæðan
var fóðurskortur, harðæri eða
miltisbrandur).“
Ár 1545, Hamrar. „Naut 14
á Hömrum – Sakaði hvorki blóð
né gor nema kæmi við andlitið
1 maður bar heim slátur, sem
hann keypti, fékk mein af því á
hálsi og dó. Naut og hundar urðu
bráðdauðir, ef lyktuðu af því dauða
hræi.“
Ár 15523, Hamrar. „...12
kýr og 6 naut dóu. Menn skaðaði
hvorki blóð né gor, þótt það kæmi
við hendurnar, en ef það kom við
andlitið, þá varð strax mein og
margir misstu sýnina af því
Ár 1564, Hamrar. „...13
naut á Hömrum og víða naut á
bæjum í Grímsnesi, Eyvík, Fjall
á Skeiðum.“
Ár 1566, Austurhlíð. „Nauta
dauði. Þar dóu 16 naut.“
Ár 1567, Miðdalur. „Þar dóu
fyrst 2 hestar og eftir það 13 naut.“
Ár 1568, Kálfhóll. „...Sá 2
nautadauði 1568.“
Ár 1580. „...var sá 3. nautadauði
á Kálfhóli þar dóu 13 naut. Þaðan
bar maður nokkuð á hesti upp til
Ása og dó hesturinn af því þar
en nautin síðan. Maður einn bar
þaðan nokkuð af þessu til síns
heimilis. Þar af fékk hann mein
aptan á hálsinn og bólgu um allar
kverkarnar, svo var hann dauður
eftir fáa daga.“
Ár 16356 Fjall á Skeiðum.
„Nautadauði á Skálholtsbúinu
Fjalli og nokkrum bæjum í kring.”
Ár 1660 Hamrar. „Þá andaðist
Jón Jónsson lögréttumaður. Strax
eftir hans dauða skeði sérkennilegur
nautadauði á Hömrum og bæjum
þar í kring. Líka dóu hestar og
sumir misstu mikið. Kom faraldur
þetta á aðra bæi, ef hestar þeirra átu
áfóður eða moð á Hömrum, eður ef
nokkuð af þessu slátri kom á aðra
bæi. Þessir gripir dóu skyndilega...
helst var það í kringum Fjall, sem
það slæma kjöt var keypt. Naut sem
komust að því og lyktuðu dóu öll
og hestar, sem það hráa kjöt báru
heim. Þeir dóu.“
Nokkrar heimildir:
Biskupsannálar Jóns Egilssonar
(Safn til sögu Íslands) Árbækur
Espólins, Fitjaannáll, anno 1660,
bls 187, Kjósarannáll bls 439 11 5
1660 Ingibjörg Tönsberg, Glæsibæ
13, Reykjavík , Auður Gunnars
dóttir Hömrum, s. 486 Hermann
Tönsberg, Háaleitisbraut 17, s:
553 1396, 699 1396 Guðmund ur
Arason, Prestssaga (Sturl unga 1)
1. Útdráttur úr miltisbrunaskýrslu.
Miltisbrunastaðir á Íslandi, (frá
. 18662004 og frá fyrri öldum),
lýsing og hnit.
2. Sauðburðarkver, endurút gef ið
í endurbættu formi, Sauðburðar kver,
endurútgefið gormabók, plasthlíf að
framan.
3. Geita og kindakver, 80 bls.
90 myndir. Heilsufar og sjúkdómar
í geitum og kindum.
4. Barátta gegn smitandi
sauðfjár sjúkdómum. Karakúlpestir,
kláði, riða og miltisbruni, 60 bls.
20 myndir.
Miltisbrunagrafir á Íslandi 1866–2004
*=Stjörnumerkt, óvíst eða ekki merkt
Sár og vefjadrep á húð eftir miltis
brand.