Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 7
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 7
LÍF&STARF
S egir nú af Sigrúnu Haraldsdóttur.
Hennar hefur þó verið lítillega
getið hér í Bændablaðinu og birtar
eftir hana stökur, en frekari ítarefni fara
hér eftir lesendum til glöggvunar. Sigrún
fæddist á Blönduósi á árinu 1953, dóttir
hjónanna Elínar Ólafsdóttur og Haraldar
Karlssonar, þá bænda í Litladal í
Svínavatnshreppi A-Húnavatnssýslu. Sigrún
á þannig sveitarætur sterkar þó hún sé vistuð í
Reykjavík frá tíu ára aldri. Hagmælsku sækir
hún til beggja foreldra, móðir Sigrúnar af
kunnri Guðlaugsstaða- og Snæbjarnarætt í
Vatnsdal og faðir hennar Haraldur hagorður
í betra lagi. Mestan sinn starfsaldur hefur
Sigrún átt á Landspítalanum í Reykjavík sem
einn af okkar tilvitnuðu „sérfræðingum“ á
heilbrigðis- og tæknisviði. Á árinu 2015 kom
út ljóðabókin Hvítir veggir eftir Sigrúnu, í
meira lagi eiguleg ljóðabók. En lausavísur
Sigrúnar hafa víða ratað í blöð og tímarit,
og í þessum vísnadálki verða mestanpart
birtar hestavísur sem orðið hafa til, enda
Sigrún dolfallin hestamanneskja. Nú er líka
tími hestaferða vítt um okkar fagra land, og
Bændablaðið atað í hestamyndum.
Um gæðinginn Frakka eru fyrstu fimm
vísur þessa þáttar:
Lífi þegar leyst verð frá
lýt ég höfði og þakka,
góða fyrir Guðs-umsjá
og gæðinginn hann Frakka.
Undan fæti glymur grund,
gott er sæti í hnakki.
magnar kæti, mýkir lund
minn ágæti Frakki.
Víst ég þakka veröld má
vetrar hlakka brýnu.
Hef ég Frakka að horfa á
háu makka línu.
Vökul unaðs- vakir -þrá,
villta bærir strengi.
Vildi ég láta teygja tá
töfrafák á engi.
Klýfur vindinn klárinn minn
kjarkur aldrei hikar.
Fagurgengi fákurinn
fram á veginn stikar.
Hart þó leiki heimsins puð
hef ég margt að þakka.
Af stakri elsku gaf mér Guð
gæðinginn hann Frakka.
Ótal gæðinga hefur Sigrún átt og alið um
sína daga. Hestinum Sprota hefur hún ort
marga afbragðs vísuna:
Sproti fríður löppum létt
lyftir gríðarlega.
Töltir þýður, tekur sprett,
talinn prýði vega.
Hástígur og frískur fer
fasmikill um götur,
lítt sá góði gandur er
gerður fyrir lötur.
Hnarreistur með gust og gný
götu stikar vota,
það er kyngikraftur í
klárnum honum Sprota.
Um hestinn Nóa frá Stóra-Hofi orti hún
margar vísur:
Montinn töltir, mjúkur, knár,
makkinn lipurt sveigður,
fínbyggður og fótahár,
fagurlega eygður.
Væri ég hryssa vors um nótt
vafin angan frjóa,
hve ég mundi falla fljótt
fyrir honum Nóa.
Jakob á Hóli í Svartárdal trúði Sigrúnu
fyrir því, að hann hefði haft hestinn Blakk
hakkaðan til hádegisverðar. Sigrún orti þá
þessa tíðindavísu:
Endar jafnan allra leið
og ævitörn.
Blakkur rann sitt Skúlaskeið
í skeifugörn.
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggð1@gmail.com
278MÆLT AF
MUNNI FRAM
Gersemar og gögn úr geymslu
Bændasamtakanna send í varðveislu
– Níu bretti til Þjóðskjalasafns
Guðrún Birna Brynjarsdóttir, verkefnisstjóri
yfir tiltekt í geymslum Bændasamtakanna
í kjallara Hótel Sögu, hefur unnið hörðum
höndum síðan í maí að flokka og taka til í
gömlum gögnum, margt af því frá tíma
Búnaðarfélags Íslands. Á dögunum fór síðan
stór farmur til varðveislu á Þjóðskalasafn
Íslands, níu bretti með gögnum sem
spanna um 100 ára sögu. Mest var af
nautgripaskýrslum úr gömlu skjalasafni
Búnaðarfélags Íslands en einnig fór heill
kortaskápur og skjalakassar með uppdráttum
frá Byggingaþjónustu landbúnaðarins til
varðveislu á Þjóðskjalasafnið. /ehg
Það var skemmtilegt að rýna í handmáluð
gögnin sem meðal annars innihéldu handskrifuð
skjöl um þunga hrúta, tveggja vetra og eldri, á
sýningum frá 1929-1946, kjötneyslu á Íslandi
frá 1934-1946, túnstærð og töðufeng og síðan
heldur Guðrún Birna á fjórum tegundum ræsa,
grjótræsi, hnausaræsi, pípuræsi og viðarræsi.
Ragnhildur Helga Jónsdóttir, safnstjóri
Landbúnaðarsafns Íslands, var kampakát að
fá muni úr geymslunni til varðveislu, meðal
annars bronsstyttu af Halldóri Vilhjálmssyni,
skólastjóra Bændaskólans á Hvanneyri um
áratuga skeið.
Það voru níu bretti sem fóru á dögunum til
varðveislu í Þjóðskjalasafninu af gögnum sem
spanna 100 ára sögu landbúnaðar hér á landi.
Guðrún Birna Brynjarsdóttir, verkefnisstjóri yfir tiltekt í geymslum Bændasamtakanna í kjallara Hótel Sögu stendur hér vígreif með Gunnari Ah.
Jensen hjá Nýju sendibílastöðinni, sem sá um að flytja gögnin á Þjóðskjalasafnið.
Þyngdarmælingar á hrútum, 2 vetra og eldri. Túnstærð og töðufengur er áhugavert til lestrar.Framboð á íslensku kjötmeti rétt fyrir miðja öld.