Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 20218
Samkomulag um samruna
Kjarnafæðis, Norðlenska mat-
borðsins og SAH afurða var undir-
ritað í júlí 2020. Samkeppniseftirlitið
heimilaði samrunann með skilyrðum
í apríl síðastliðinn. Skilyrði hafa
verið uppfyllt og geta samrunafé-
lögin því hafið sameiningarferlið.
Rekstrarskilyrði félaganna hafa
versnað verulega á liðnum árum
og auk þess hafa áhrif samdráttar í
kjölfar Covid-19 gert þá stöðu enn
þyngri.
Sameining félaganna og sú hag-
ræðing sem stefnt er að með henni
er nauðsynleg svo standa megi vörð
um þá mikilvægu framleiðslu og þá
þjónustu sem félögin veita bænd-
um, viðskiptavinum og neytendum.
Vonir standa til þess að samruni
félaganna verði formlega frágenginn
í lok sumars en eigendur samrunafé-
laganna hafa komið sér saman um að
formaður stjórnar sameinaðs félags
verði Helga Björk Eiríksdóttir og
forsvarsmaður félagsins verði Ágúst
Torfi Hauksson. /VH
FRÉTTIR
Nýtt Matvælaráð Samtaka iðnað
arins (SI) hefur verið sett á lagg
irnar.
Í ráðinu sitja Rannveig
Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri
Kötlu, sem er formaður ráðsins,
Auðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs
Nóa Siríus, Gunnlaugur Karlsson,
framkvæmdastjóri Sölufélags
garðyrkjumanna, Sigurjón R.
Rafnsson, aðstoðarkaupfélagsstjóri
Kaupfélags Skagfirðinga, Stefán
Magnússon, markaðsstjóri CCEP
á Íslandi, Sæmundur Sveinsson,
fagstjóri Matvís, og Valmundur
Pétur Árnason, framkvæmdastjóri
Lostæti Austurlyst.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá SI. Matvælaráð er vettvangur
umræðu um stöðu matvælaiðnað-
ar á Íslandi, greininga og marg-
víslegrar stefnumótunar ólíkra
matvæla- og drykkjarframleið-
enda innan Samtaka iðnaðarins.
Matvælaiðnaður á Íslandi skapar
4,6% landsframleiðslunnar, sem eru
ríflega 122 milljarðar króna og í
greininni eru starfandi um 10.400
manns, sem er 5% af heildarfjölda
starfandi í landinu. Nýja ráðið
áformar í haust að efna til umræðu
um stöðu íslenskra matvælafram-
leiðenda, helstu áskoranir og tæki-
færi í atvinnugreininni.
/MHH
Anna María Björnsdóttir
hefur í eitt og hálft ár unnið
að heimildarmynd um lífræna
ræktun á Íslandi.
Tildrög myndarinnar eru sú að
Anna bjó í Danmörku í tíu ár þar
sem tengdaforeldrar hennar reka
lífrænt bú og mikil áhersla er lögð á
lífræna ræktun. Allt annað umhverfi
og viðhorf blöstu við henni og
fjölskyldu hennar þegar hún flutti
til Íslands.
Að sögn Önnu er Ísland töluvert
á eftir löndunum í kringum okkur
þegar kemur að lífrænni ræktun.
„Á meðan ég bjó í Danmörku varð
ég ólétt og þar var mikil umræða
um lífræna ræktun og mikilvægi
lífrænnar fæðu á meðgöngu til að
draga úr magni eiturefna sem fóstrið
verður fyrir. Einnig komst ég að
því að stefna margra sveitarfélaga
í Danmörku er að börnum í
leikskólum sé boðið upp á lífrænt
fæði og þannig var það þar sem við
bjuggum. Þetta vakti áhuga minn á
lífrænni ræktun og þeim mun meira
sem ég kynnti mér málið óx áhugi
minn á því. Lífræn ræktun snýst ekki
bara um heilbrigði okkar heldur líka
jarðarinnar. Við fjölskyldan vorum
því farin að neyta nánast eingöngu
matar sem hafði verið ræktaður með
aðferðum sem viðurkenndar eru sem
lífrænar.“
Allt annað umhverfi
„Allt annað umhverfi og viðhorf
blöstu við okkur þegar við fluttum
til Íslands. Mun minna er af
lífrænum matvælum í boði á Íslandi
en í Danmörku. Það er því erfitt að
neyta einvörðungu lífrænna afurða
og umræðan um lífræna ræktun og
lífrænt mataræði lítil. Ég komst
fljótt að því að Ísland er langt á eftir
löndunum í kringum okkur hvað
varðar lífræna ræktun og aðeins eru
um 30 lífrænir bændur á Íslandi af
u.þ.b. 3.000. Sú tala hefur nánast
staðið í stað í áratugi.
Margir þessara bænda hafa
synt á móti straumnum í áratugi
en hafa á sama tíma sýnt og sannað
hvernig er hægt að stunda lífræna
ræktun á Íslandi. Sögur þessara
bænda eru einstakar og sýna mikið
frumkvöðlaeðli blandað við eldmóð
og ástríðu fyrir að rækta matvæli
í sátt við jörðina og umhverfið.
Í heimildarmyndinni heimsæki
ég nokkra þessara bænda og
frumkvöðla í lífrænni ræktun á
Íslandi.“
Anna er að safna fyrir seinni
hlutanum á upptökum og
eftirvinnslu á myndinni á Karolina
fund og stendur söfnunin til 31.
ágúst næstkomandi. Til stendur að
frumsýna myndina 2022. /VH
Linkur á söfnunarsíðuna: https://
www.karolinafund.com/project/
view/3433
Matvælaráð: Nýtt Matvælaráð Samtaka iðnaðarins, talið frá vinstri í efri röð, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri
SI, Stefán Magnússon, markaðsstjóri CCEP á Íslandi, Gunnar Sigurðarson, viðskiptastjóri hjá SI, Sæmundur Sveins-
son, fagstjóri Matvís, og Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI. Í neðri röð eru Valmundur
Pétur Árnason, framkvæmdastjóri Lostæti Austurlyst, Rannveig Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Kötlu og formaður
Matvælaráðs SI, og Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Siríus. Mynd/Birgir Ísleifur.
Nýtt Matvælaráð Samtaka
iðnaðarins tekið til starfa
Karolina fund:
Lífræn ræktun á Íslandi
Styrkir Haga:
Íslensk matvælaframleiðsla
Hagar hafa veitt átta frumkvöðla
fyrirtækjum styrk að verðmæti
11 milljóna króna til að vinna
að nýsköpunarverkefnum í
matvælaiðnaði.
Peningarnir koma úr
nýsköpunarsjóðnum „Uppspretta“
hjá Högum, sem hefur það markmið
að styðja við frumkvöðla til
þróunar og nýsköpunar í íslenskri
matvælaframleiðslu. Sjóðurinn
leggur sérstaka áherslu á að verkefnin
sem hljóta styrkveitingu taki tillit
til sjálfbærni og styðji innlenda
framleiðslu. Alls bárust tugir umsókna
um styrk í sjóðinn og valdi matsnefnd
átta verkefni til styrkveitingar.
Verkefnin sem hlutu styrkveitingu
eru eftirfarandi:
The Optimistic Food Group framleiðir
ferskar og góðar grænkeravörur.
Þeirra fyrsta vara á markað verður
Happyroni.
Responsible Foods vinnur
að framleiðslu á ostasmánaslinu
Crunchy Toppers sem er framleitt
með nýstárlegri tækni og eykur
nýtingu á hráefnum við framleiðslu
á þurrkuðu ostanasli.
Vegangerðin framleiðir matvörur
sem innihalda engar dýraafurðir
úr nærumhverfi. Fyrsta vara
Vegangerðarinnar verður Tempeh
sem er kolvetnarík grænkeravara.
Kokteilaskólinn hlaut styrk til
framleiðslu á kokteilasírópi í hæsta
gæðaflokki. Sírópið er ætlað að
auðvelda gerð kokteila, bæði óáfengra
og áfengra.
Plantbase Iceland vinnur að
framleiðslu á næringarríku kjötlíki
úr plönturíkinu og nota til þess
náttúrulega gerjunarferla. Bongó
Bongó verður fyrsta próteinríka vara
Plantbase á markað.
Livefood ehf. vinnur að
framleiðslu á hágæða íslenskum
grænkeraostum. Ostarnir verða
unnir úr íslenskum kartöflum og því
einstakir á heimsvísu. /MHH
Starfsfólk Haga og þeirra átta frumkvöðlafyrirtækja sem fengu styrk úr
nýsköpunarsjóðnum „Uppsprettunni“, þegar tilkynnt var um styrkina á
dögunum. Mynd/Hagar
Norðlenska, Kjarnafæði og SAH:
Samkomulag um sam-
runa uppfyllt