Bændablaðið - 22.07.2021, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202116
Þetta gamla máltæki hefur
aldrei átt betur við en í dag
varðandi fiskveiðistjórnunarkerfi
Íslendinga. Svo er komið í
umræðunni um fiskveiðikerfið
að telja má á fingrum annarrar
handar þá sem dirfast að gagnrýna
það – nefna snöruna.
Til langs tíma hafa
hagsmunasamtök stórútgerðarinnar,
í samvinnu við opinbera stjórnsýslu
og fleiri, breitt þann boðskap út um
heimsbyggðina að Íslendingar hafi
fundið upp og sett á fót fiskveiðikerfi
sem sé í senn rekið af ábyrgð með
sjálfbærni að leiðarljósi og því öllum
til eftirbreytni. Til að gera langa
sögu stutta: „Besta fiskveiðikerfi í
heimi“. Settar eru á fót sykurhúðaðar
ráðstefnur þar sem fræðimenn mæra
og dásama kvótakerfið.
Andstyggilegur blekkingarleikur
Í mínum huga er þetta
ófyrirgefanlegur og andstyggilegur
blekkingarleikur. Hvernig væri
að þessir sömu aðilar upplýsi um
„árangurinn“ frá 1984 varðandi
uppbyggingu þorskstofnsins?
Ástand humarstofnsins? Ástand
loðnustofnsins? – svo fátt eitt sé talið.
Árið 1984 ráðlagði Hafrannsókna-
stofnun 220 þúsund tonna veiði af
óslægðum þorski.
37 árum síðar leggur stofnunin
til 222 þúsund tonna veiði, en ætti í
raun að leggja til 188 þúsund tonn.
Hvers vegna? Jú, vegna fáránlegs
ákvæðis um „sveiflujöfnun“ sem
kemur reiknimódeili Hafró í sjálfu
sér ekkert við.
Staðreyndin er sú að Hafró
hefur rekið nýtingarstefnu sem er
löngu kolfallin á prófinu. Þessi
þrákelni hefur að öllum líkindum
haft af þjóðinni hundruð milljarða
í gjaldeyristekjum frá árinu 1984.
Messað um árangur
Til landsins er á hverju ári boðið vel
meinandi og fróðleiksþyrstu fólki um
velferð veiðimanna og fiskverkafólks
á eigin heimasvæðum (t.d. Afríku)
sem við hér í norðrinu tölum hiklaust
niður til með því að kalla „vanþróuð“
ríki (og þá væntanlega „vanþróað
fólk“). Yfir þeim er messað um
stórkostlegan árangur Íslendinga í
fiskveiðistjórnun og þeim ráðlagt að
yfirfæra dásemdina heim til sín.
Í þessu sambandi rifja ég upp
sögu sem mér var sögð fyrir löngu:
Í einu ríkjanna við Vesturströnd
Afríku var ákveðið að setja
á framseljanlegt kvótakerfi í
humarveiðum. Veiðarnar fóru og
fara væntanlega enn þannig fram
að menn vaða út frá ströndinni og
kafa eftir bráðinni.
Einn stærsti kvótinn lenti í fangi
rakara inni í Mið-Afríku sem aldrei
hafði séð sjó. Sjálfsagt var það
tilviljun að rakarinn var náfrændi
sjávarútvegsráðherrans.
Að ráðleggja fólki frá slíkum
ríkjum/svæðum að taka upp
framseljanlegt, einstaklingsbundið
kvótakerfi, þar sem spillingin er
botnlaus í stjórnsýslunni, er ótrúleg
ósvífni. Þeir Íslendingar sem þar eiga
hlut að máli ættu að skammast sín.
Þeir vita mætavel og jafnvel betur er
margur hvert framhaldið er.
Staðreyndin er sú að við
Íslendingar höfum ekki fundið upp
neinar töfralausnir varðandi nýtingu
og umgengni fiskimiða. Ekkert af því
sem Hafró lofaði í upphafi varðandi
„uppbyggingu“ þorskstofnsins, hvað
þá annarra stofna, hefur staðist. Frá
því Hafró var fært alræðisvald hvað
þetta varðar er ekki hægt að benda á
eitt einasta dæmi um „uppbyggingu“
eins einasta fiskistofns við landið
sem heyrir undir aflamark.
Kaldhæðnin ríður ekki við
einteyming. Sá stofn sem „stækkaði“
mest á milli áranna 2020/2021 var
hrognkelsastofninn – grásleppan.
Hún er í sóknarmarki.
Snaran sem nefnd er
aflamarkskerfi
Snaran sem nefnd er hér í upphafi
heitir aflamarkskerfi. Með því að
úthluta veiðiheimildum í magni (kg)
gerist það óhjákvæmilega. Stór hluti
þeirra sem sækja miðin velja þau kíló
úr sjó sem skila mestum verðmætum.
Lái þeim hver sem vill. Þetta liggur
í hlutarins eðli.
Hér er smá myndlíking: ef X
fjölda einstaklinga yrði hleypt inn
í stórmarkað eftir matvælum þeim
að kostnaðarlausu og viðkomandi
gefið fyrirfram að hann mætti tína
saman ákveðið magn (kg), er líklegt
að viðkomandi kæmi til baka með
kartöflur og lauk á tilboði til að
uppfylla „kvótann“?
Þetta vandamál endurspeglast í
ákæru Fiskistofu gagnvart Bergvík
GK 22, sem var staðinn að grófu og
óafsakanlegu brottkasti á fiski fyrir
örfáum dögum.
Í ljósi þeirrar kæru Fiskistofu ætla
ég að leyfa mér að giska: Fiskistofa
hefur undir höndum upplýsingar um
brottkast á miðunum sem dregur upp
gjörólíka mynd af því sem við viljum
telja þjóðum heims – og sjálfum
okkur – trú um.
Brottkast á Íslandsmiðum hefur
viðgengist löngu fyrir vélvæðingu
fiskiskipaflotans. Eftir vélvæðinguna
jókst þetta stórkostlega.
Brottkast hefur alla tíð verið
stundað í fiskveiðum. Ekki bara
hérlendis – þetta er vandamál alls
staðar í heiminum. Árlega eru veidd
u.þ.b. 100 milljón tonn af villtum
fiski. Segjum sem svo að „einungis“
5% sé kastað í hafið. Það þýðir 5
milljónir tonna, eða ríflega fimmfalt
það sem íslenski fiskiskipaflotinn
dregur að landi árlega er fargað.
Á árunum þegar togarar Breta,
Þjóðverja og annarra skröpuðu hér
allt upp í fjörur var veiðin miklu
meiri en hinar skráðu tölur segja til
um. Brottkastið var lygilegt. Sjálfur
var ég á togurum Útgerðarfélags
Akureyrar til margra ára og það
var ekkert smotterí sem fór út um
lensportin. Sá „afli“ fór, eftir því sem
ég best veit, ekki í skipsbækurnar.
Það kann þó að vera verðugt
rannsóknarefni hvort í þeim leynast
upplýsingar í þessum efnum.
Býður upp á sóðaskap
Aflamarkskerfið býður upp á
sóðaskap. Það er með innbyggðum
hvata til brottkasts – þ.e. að hirða það
sem er verðmætast og kasta hinu.
Ég viðurkenni fúslega að ég hafði
í gegnum árin talið mér trú um að
brottkastið hefði að mestu horfið
með tímanum, væri að sjálfsögðu
eitthvað – en hverfandi. Ég vildi trúa
því að öll þessi „umhverfisvakning“
og sjálfbærnihjalið væri meira en
orðin tóm. Ég er kominn á þá skoðun
að ég hafi haft rangt fyrir mér.
Það er kominn tími til að gera
upp við núverandi fyrirkomulag,
aflamarkskerfið.
Það er tími til kominn að horfast
í augu við þá staðreynd að „besta
fiskveiðikerfi í heimi“ er kerfi sóunar
og spillingar. Það er spilling að henda
fiski – svo það sé sagt.
Kerfi sem ber í sér hvata til
brottkasts á fiski, framhjálöndunar,
svindli á ísprósentu, tegundasvindls
og ýmsu fleiru.
Drónaeftirlit Fiskistofu mun litlu
sem engu breyta í þessum efnum.
Ég er í ágætu sambandi
við fjölmarga erlenda aðila í
„fiskibransanum“. Flestir þeirra hafa
þá ímynd af íslenskum fiskveiðum að
hér hafi veri fundin upp töfralausn
varðandi nýtingu fiskistofna og
umgengni um fiskimið.
Gerum þeim grein fyrir
s t a ð r e y n d u m . H æ t t u m
blekkingarleiknum. Það er mun betra
að við gerum það áður en þeir átta sig
á því hver sannleikurinn er í málinu
því það mun óhjákvæmilega gerast,
fyrr eða síðar.
Höfundur er formaður
Landssambands smábátaeigenda.
Að nefna snöru í hengds
manns húsi
Skrautrunnar
Margir þeirra blómstra litfögr-
um blómum og bera skrautleg
ber. Hægt er að fá þá vind- og
seltuþolna eða sólelska og við-
kvæma. Skortur á úrvali er ekki
vandamálið heldur mun frekar
valkvíði.
Til að gefa hugmynd um
úrvalið eru hér taldar til nokkrar
ættkvíslir sem innihalda
skrautrunna sem hafa reynst
vel hér á landi. Innan hverrar
ættkvíslar er fjöldi tegunda sem
hægt er að velja úr þegar finna
þarf rétta runnann í garðinn.
Broddur/roðaber (Berberis).
Ættkvísl með tæplega 400 tegund-
um, undirtegundum og blending-
um sem vaxa sem runnar eða tré.
Ná 5 metra hæð og eru annaðhvort
lauffellandi eða sígrænir. Finnast
í Evrópu, Mið- og Austur-Asíu,
Norður- og Suður-Ameríku og
Norður-Afríku. Allar tegundir
eru með þyrnum sem yfirleitt eru
þrískiptir. Blómin gul eða app-
elsínugul. Þrífast best í sól eða
hálfskugga og vel framræstum
jarðvegi.
Kvistir (Spiraea). Ættkvísl
með hátt í 100 tegundum og
fjölda undirtegunda, blendinga og
afbrigða sem vaxa í N-Ameríku,
Evrópu og Asíu þar sem
fjölbreytnin er mest. Lauffellandi
runnar sem geta náð 5 metra
hæð en eru yfirleitt lágvaxnari.
Blómin hvít, bleik eða rauð í
skúf eða klasa. Hvítblómstrandi
tegundir blómstra fyrr á sumrin,
í júní og júlí, og á annars árs
greinum. Þola því ekki klippingu
á vorin og best er að klippa
fljótlega eftir blómgun. Rauð-
eða bleikblómstrandi kvistir
blómstra aftur á móti á nýjum
greinum sem vaxa yfir sumarið
og þegar fer að líða á sumarið
í byrjun ágúst. Tegundir með
rauðum og bleikum blómum þola
að vera klipptar á vorin. Flestir
kvistir þrífast best á sólríkum
stað. Hvítblómstrandi þola meiri
skugga og sandblendinn jarðveg.
Mispill (Cotoneaster).
Ættkvísl með flókin ættartengsl
50 til 300 tegunda, eftir því
hversu nákvæm flokkunin er.
Lauffellandi eða sígrænir runnar
sem geta náð fimm metra hæð
og vaxa villtir í Asíu, Evrópu og
N-Afríku. Gera litlar kröfur til
jarðvegs, svo lengi sem hann er
ekki blautur. Skriðulutegundirnar
þrífast best í myldnum en mögrum
og vel framræstum malarjarðvegi.
Vindþolinn og þolir vel klippingu.
Berin rauð, bleik og svört. Misplar
blómgast á fyrraársgreinum.
Margir laufgast snemma og laufið
fær fallega rauða haustliti.
To p p a r / g e i t b l ö ð u n g a r
(Lonicera). Ættkvísl með um
tæplega 200 tegundum uppréttra
og klifrandi runna sem vaxa flest-
ir í Asíu en einnig í Evrópu og
N-Ameríku. Blöðin gagnstæð.
Börkurinn dökkur. Harðgerðar
plöntur sem gera ekki miklar kröf-
ur til jarðvegs en dafna best í rakri
jörð. Blómstra um mitt sumar.
Sópur (Cytisus). Ættkvísl
með tæplega sextíu tegundum
sígrænna og lauffellandi runna
sem vaxa villtir í Mið-Evrópu, við
Miðjarðarhafið og í Suðvestur-
Asíu. Geta náð ríflega þriggja
metra hæð. Greinarnar grænar,
marggreindar og fínlegar. Blöðin
lítil og vantar stundum alveg.
Blómin áberandi, yfirleitt gul en
einnig hvít og rauð. Fræbelgurinn
flatur og líkist litlum baunabelg.
Blómstrar snemma og sætur ilmur
af blómunum. Auðveld í ræktun
en þrífst best á sólríkum stað, í
sendnum og kalkríkum jarðvegi.
Þolir illa mikinn áburð, flutning
og klippingu. Fjölgað með sum-
argræðlingum. Allar tegundir í
ræktun hér á landi eru sígrænar.
/VH
STEKKUR NYTJAR HAFSINS
Drónaeftirlit Fiskistofu mun litlu sem engu breyta. Mynd /Alfons Finnsson.
Arthur Bogason, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda.
Til langs tíma hafa hagsmunasamtök stórútgerðarinnar, í samvinnu við
opinbera stjórnsýslu og fleiri, breitt þann boðskap út um heimsbyggðina að
Íslendingar hafi fundið upp og sett á fót fiskveiðikerfi sem sé í senn rekið af
ábyrgð með sjálfbærni að leiðarljósi og því öllum til eftirbreytni.