Bændablaðið - 22.07.2021, Page 17
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 17
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland Grammer sæti
Hnúfubakurinn í Faxaflóa. Mynd / Special Tours
Hafrannsóknastofnun:
Víðförlir hnúfubakar
Fyrir skömmu sást til
hnúfubaks í Faxaflóa. Vegna
alþjóðlegs samstarf um
skráningu hnúfubaka var
hægt að sjá að sami hvalur
hafði verið myndaður við
Grænhöfðaeyjar, aðeins
þremur mánuðum áður
en hann var myndaður í
Faxaflóa.
Greining hnúfubaksins
sýnir svo ekki verður um villst
hversu nauðsynlegt samstarf
er þegar far dýra er rannsakað
og sýnir að hnúfubakar ferðast
langar vegalengdir enda eru 5.400
kílómetrar á milli staðanna þar sem
myndirnar voru teknar.
Í tilkynningu á vef Haf-
rannsóknastofnunar segir að
Hnúfubakar í Atlantshafi eyði
yfirleitt sumrum sínum á fæðuslóð
í norðri, til dæmis við strendur
Íslands og Noregs, en að á
veturna haldi þeir sig við miðbaug,
frá Karíbahafi til Grænhöfðaeyja.
Áður hefur Hafrannsóknastofnun
fjallað um hnúfubak sem sást í Cape
Samana við Dóminíska lýðveldið í
Karíbahafi í janúar 2020 en hafði
áður verið ljósmyndaður og skráður
við Ísland. Íslenska hnúfubakaskráin
ISMN (IS Megaptera Novaeangliae
Catalog), sem er að finna á
Hafrannsóknastofnun, geymir
skráningar á yfir 1.500 hnúfubökum
frá 1980 til dagsins í dag. Þeim
hefur verið safnað í leiðöngrum
Hafrannsóknastofnunar og af
ýmsum samstarfsaðilum sem sent
hafa inn myndir af hnúfubökum
ásamt upplýsingum um staðsetningu.
Hægt er að senda inn upplýsingar
og myndir á vefslóðina Submit-
photo. /VH
Staðsetning Grænhöfðaeyja.
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300