Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202118
Þýska sjónvarpsstöðin RTL heldur
um taumana á einum ástsælasta
raunveruleikaþætti landsins,
„Bauer sucht Frau“ – eða Bændur
í bónorðsför.
Hefur þetta augnakonfekt kætt
og kitlað þýskan almenning síðan
árið 2005, en um ræðir bændur, þá
bæði konur og menn, sem leita eftir
lífsförunauti. Efnistökin eru án efa
mörgum hjartans mál, enda má finna
sömu þáttaraðir í um þrjátíu löndum
auk Þýskalands.
Í Þýskalandi hefur þó örlítil
breyting verið á síðastliðin
misseri, en nú leita bændur utan
landsteinanna eftir maka og koma
því þættirnir út undir nafninu „Bauer
sucht Frau International“. Nýjasta
þáttaröðin hefur göngu sína nú í
haust og er, sem stendur, leitað
logandi ljósi að einhleypu fólki sem
til er í tuskið. Viðkomandi þarf að
vera einhleypur, þýskumælandi,
og/eða með þýskan, austurrískan
eða svissneskan uppruna auk þess
að starfa við landbúnað á einhvern
hátt. Starfssvið þátttakenda er vítt,
allir frá kúrekum til kaffiræktenda
mega óska eftir þátttöku – í raun eru
sem flestir hvattir til að gefa kost
á sér. Þeir sem valdir eru munu
svo kynnast innbyrðis eftir kúnstar-
innar reglum.
Samkvæmt þáttunum kemur í ljós
að alls hafa tuttugu og tveir bændur
frá fjórtán mismunandi löndum nú
þegar verið í sviðsljósinu. Bændurnir
hafa komið frá Ungverjalandi,
Paragvæ, Mexíkó, Kosta Ríka og
Suður-Afríku svo eitthvað sé nefnt
og afar spennandi væri nú að fá
íslenska landvætti með í þann litríka
hóp keppinauta.
Þótt misvel gangi að mynda tengsl
meðal þeirra sem vilja kynnast,
virðast ástarörvar Amors allrahanda
loða við þáttinn. Til gamans má
geta þess að í eitt skiptið fóru tveir
kvenkyns umsækjendur vongóðar
til Austurríkis til að kynnast
þarlenskum bónda. Bóndinn heitir
Emanuel og á í Austurríki stóran
búgarð sem hann nýtir undir
dýraathvarf. Emanuel þessi hafði
þó ekki heppnina með sér hvað varð-
aði konurnar, enda ekki alltaf sem
slík tenging verður. Hins vegar leist
konunum óskaplega vel hvor á aðra
– með þeim tókust ástir og fylgjast
þær nú að í lífinu svona stormandi
lukkulegar.
Það má a.m.k. með sanni segja
að átök og ástir séu á skjánum fyrir
allan peninginn, heimshorna á milli.
/SP
HROSS&HESTAMENNSKA
LANDSJÁ
„Ég borga aldrei“, sagði
bóndinn fyrir austan á hverju
hausti þegar kaupfélagsstjórinn
var búinn að útlista fyrir
honum hvernig hann gæti gert
upp við kaupfélagið.
Ekki kunni þessi afstaða
góðri lukku að stýra, hvorki
fyrir bóndann né kaupfélagið.
Bændur standa nú frammi fyrir
tvöfaldri vá, annars vegar ógn
loftslagsbreytinganna sjálfra og
svo hins vegar hugsanlegri ógn
vegna vanhugsaðra ákvarðana
stjórnvalda í loftslagsmálum.
Þess vegna kann að vera
ráð að borga stax, grípa til
kostnaðarsamra ákvarðana og
aðgerða þegar í stað, að því
gefnu að það fáist metið í formi
sanngjarnra mótvægisaðgerða.
Bændur í Danmörku
óttaslegnir
Fyrirheit um að kolefnisjafna
íslenskan landbúnað á næstu
nítján árum er tröllaukið
verkefni sem mun kosta mikið
fé. Það fé mun bætast ofan á
framleiðslukostnað íslenskra
búvara svo að samkeppnishæfni
þeirra mun minnka komi ekkert
annað til. Íslenskir bændur gætu
framleitt kolefnishlutlaust
kjöt en það yrði svo dýrt að
neytendur myndu í hrönnum
kaupa ódýrara innflutt kjöt sem
ekki væri framleitt með jafn
ströngum kröfum.
Niðurs taða þe i r ra r
jöfnu yrði hin versta fyrir
þjóðarbúið, kolefnisútblástur
minnkaði ekki neitt en afkomu
íslensks landbúnaðar hefði
verið kollvarpað. Íslenskir
bændur eru ekki einir um
að óttast slíka tvöfalda vá.
Bændur í Danmörku horfa upp
á það að ríkisstjórn krata hyggst
leggja gríðarmiklar álögur á
þarlendan landbúnað sem miða
að því að draga úr kolefnisspori
hans. Álögurnar eru með þeim
hætti að ólíklegt verður að teljast
að landbúnaðurinn í Danmörku
þoli þær öðruvísi en að draga
verulega úr framleiðslu og
umfangi.
Grænir tollar til að
vernda lífsviðurværi
Landbúnaðarráðherra Þýska-
lands lýsti því á hinn bóginn yfir
síðastliðinn vetur að nauðsynlegt
yrði að setja græna tolla á
innflutt matvæli til þess að verja
lífsviðurværi bænda í Evrópu.
Hið sama er upp á teningnum
þar ytra og hér. Kolefnisjafna
á þýskan landbúnað eigi síðar
en 2050 – á meðan Íslendingar
stefna að árinu 2040. Þjóðverjar
gefa sér semsagt 10 árum lengri
tíma en við Íslendingar.
Leiðin sem þýski ráðherrann
og fleiri hafa velt upp er að
leggja vörugjöld á landamærum
sem miða að því að jafna
samkeppnisgrundvöll þýskra
bænda og afurðastöðva, sem þurfa
að standa straum af ákveðnum
kostnaði við kolefnisjöfnun,
og erlendra aðila sem þurfa
þess ekki. Sé slík gjaldheimta
rétt sett upp er talið að hún
komist í gegnum nálarauga
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO).
ESB-kaupfélagið
Í vikunni sem leið kynnti
svo Ursula von der Leyen,
forseti framkvæmdastjórnar
E v r ó p u s a m b a n d s i n s ,
aðge rðaáæt lun ESB-
kaupfélagsins í loftslagsmálum,
„Í formi fyrir 55“, sem miðar
að 55% samdrætti í útblæstri
gróðurhúsalofttegunda 2030. Ein
aðgerðanna er sú að setja upp slík
vörugjöld á innflutt stál, sement,
ál og raforku. Innflytjendum
yrði gert að greiða andvirði
kolefniseininga fyrir hvert tonn
af stáli sem framleitt er með
lakari umhverfisaðferðum heldur
en tíðkast í ESB. Það kaupfélag
hræðist ekki tolla og gjöld til
að jafna metin og Íslendingar
eru á félagssvæði þess gegnum
Evrópska efnahagssvæðið, EES.
Samhliða vörugjöldunum
á að flýta fyrir því að fækka
kolefniseiningunum sem í
umferð eru innan ESB hverju
sinni. Það mun hækka á þeim
verðið (verðið á einingu, tonni
af CO2 er rúmar 50 evrur í dag).
Gjald á kolefnisútblástur er þegar
til staðar hvað iðnað varðar
í Evrópu. Það er hins vegar
ekki fyrir hendi í landbúnaði.
Til þess að leggja kolefnisgjald
á landbúnað þarf að leggja mat
á kolefnisspor búvöru. Þar er um
að ræða mikinn frumskóg.
Og sitt sýnist hverjum um
það hvar eigi að draga mörkin
utan um rammann sem reiknaður
er. Hér á landi hefur til að
mynda munað býsna miklu í
útreikningum sama fyrirtækis á
kolefnisspori nautakjöts.
Sömu kröfur til erlendra
sem innlendra matvæla
Að mínu viti er eina leiðin til þess
að koma í veg fyrir að kostnaður
við að kolefnisjafna búvörur hefti
íslenskan landbúnað sú, að drífa
í boðuðum verkefnum og ná
árangri sem fyrst. Jafnframt þyrfti
að setja fram það eðlilega og
ófrávíkjanlega skilyrði gagnvart
íslenskum stjórnvöldum að sömu
kröfur séu gerðar til innfluttra
matvæla og þeirra sem framleidd
eru hérlendis.
Eitt ber þó að hafa í huga,
að verði íslenskur landbúnaður
ekki loftslagsvænni en sá sem við
keppum við – þá mun þessi aðferð
ekki virka. Því þarf að kappkosta
að ná forskoti í loftslagsmálum,
það er einfaldlega lífsspursmál
fyrir innlendan landbúnað. Sé
ekki hugsað stórt og af framsýni í
þessum efnum með því til dæmis
að auka framleiðni og afurðasemi
gripa, koma á fót kolefnissamlagi,
tryggja orkuskipti, innleiða
græna tækni og gervigreind
munu margar sveitir verða eins
og býli bóndans sem nefndur var
í byrjun, eyðibýli.
Landsjá:
Bændur standa frammi
fyrir tvöfaldri vá
Kári Gautason.
FRÉTTIR
Mynd / MHH
Sveitahátíðin Grímsævintýri í
umsjón Kvenfélags Grímsness
verður haldinn laugardaginn 7.
ágúst á Borg.
Á hátíðinni fer meðal annars fram
ein elsta tombóla landsins, sem hefur
hefur verið árlega frá árinu 1926.
Dagskrá hátíðarinnar hefst klukkan
13.00 og stendur til klukkan 16.30.
Hoppukastalar verða á staðnum,
klifurveggur, blúndukaffi, markaður,
popp og candyfloss, auk þess sem
BMX brós sýna listir sínar á hjólum.
Frítt verður í sundlaugina á Borg á
meðan hátíðin stendur. Reiknað er
með fjölmenni og mikilli stemningu
á Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi
laugardaginn 7. ágúst enda löngu
búið að leggja inn pöntun fyrir góðu
veðri. /MHH
Borg:
Sveitahátíðin Grímsævintýri 7. ágúst
Raunveruleikaþáttur fyrir allan peninginn:
„Bauer sucht Frau“
Þó tengslamyndun gangi misjafnlega virðast
keppendur þó njóta sín vel.