Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 22

Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 22
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202122 LÍF&STARF Lífsstílslitaðar tískubylgjur eða fordæmi komandi kynslóða? – Kitty Von-Sometime grænmetisfrömuður Í gegnum tíðina hefur sjálfbærni matvælaframleiðslu jafnan þótt umræðuvert efni. Grenndargarðar Reykjavíkurborgar, kartöflu- garðar í Skammadal, matjurta- garðar kennara í Katlagili svo eitthvað megi nefna, hafa yfir árin verið sjálfsagðir staðir að heimsækja reglulega. Þó ekki alltaf. En hvernig er staðan í dag? Með flokkun, moltugerð og almennri meðvitund þegar kemur að því að bjarga heiminum – eru hetjur daglegs lífs farnar að sá í moldarbeðin að vori með von um uppskeru að hausti? Eru gróðurhús komin í tísku? Kartöflubeð? Tómatarækt? Eplarækt? Vínber? Ræktar einhver gras? Með þessar brennandi spurningar á vörunum þurfti svör. Hver er framtíðarsýn þeirra sem standa í fæturna? Viðmælandi minn er ung kona, móðir stúlku á tólfta ári og íbúi í Vesturbænum. Hún hefur í nokkurn tíma haldið úti hóp kölluðum „Adopt a vegetable plant“, á Facebook auk síðunnar #kittysfoodwastetips á instagram og verið iðin við að pósta þar dýrindis réttum úr heimasprottnu góðgæti í bland við grænmeti sem hún verslar á 99 kr. í Krónunni. Kitty hefur til umráða garðskika bak við heimili sitt, auk stórfenglegs gróðurhúss áföstu við húsið. Þar stígur maður inn í nytjarækt og núvitund eins og hún gerist best. Þegar liðið er á sumarið má sjá vínberjaklasa þekja loftið, kál, kryddjurtir og tómata í hinum fegurstu litum. Má segja að hún sé bæði með nytjahyggju og útsjónarsemi í blóðinu enda fædd og uppalin í sveitinni í Devon á Englandi. Meðal þeirra sem mótuðu lífsviðhorf hennar var fjölskyldan, afi hennar ræktaði mikið af sínu eigin grænmeti á meðan móðir hennar hafði og hefur þá afstöðu að versla einungis beint við slátrara og vörur „beint frá býli“. Kitty minnist ökuferða sem barn til að sækja egg á næstu bæi auk þess að eyða stórum hluta vasapeninga sinna í grænmeti, hvort sem var á nærliggjandi býlum eða við vegkantinn. Þar stunduðu bændur það að setja afgangsvörur í kassa við veginn og máttu gestir og gangandi setja þar framlag og fá sér grænmeti í staðinn. En fáum nú þessa frábæru konu til að ræða við okkur. Grænir fingur, grænt hjarta ̶Að nýta það sem er til, auk þess að rækta sitt eigið verður eitt þeirra grundvallaratriða sem næstu kynslóðir taka sér fyrir hendur. Á hvað hefur þú sem foreldri lagt áherslu , ef eitthvað, í þeim efnum? „Lilja dóttir mín er mjög meðvituð um nytjahyggju og finnst ekkert eðlilegra en að rækta sér til matar – enda alist upp við að geta gengið í það grænmeti sem ég kem á legg. Þegar hún var yngri rölti hún oft um húsið og tíndi í sig kál, tómata og annað sem ég var að rækta og neytti því mun meira en þeirra fimm skammta á dag sem ráðlagt er. Eftir því sem hún eltist hefur hún oftar en ekki boðið vinum sínum í gróðurhúsið til að smakka (þar sem hún veit að það er bæði betra og ferskara á bragðið) og er ófeimin við að tilkynna að kvöldverðurinn sem var að klárast sé mestmegnis keyptur á 99 kr. í boði Krónunnar. Lilja hlustar á og nemur það sem ég fræði hana um, en við eigum góðar stundir saman bæði við garðyrkju og spjall. Um daginn settu hún og vinkona hennar niður kartöflur sem voru farnar að spíra hjá mér, enda tel ég mikilvægt að börn hafi skilning á hvaðan matvæli koma, kunni undirstöðuatriði í ræktun auk þess að fá að upplifa stoltið þegar plönturnar vaxa og dafna. Allt of oft er einblínt á hve meira spennandi það er að eiga eitthvað tölvutengt, eitthvað nógu dýrt og fínt sem kostar nógu mikla peninga – á þessum aldri þegar manneskjan er hvað móttækilegust. Ég tel hins vegar mun mikilvægara að finna gleði yfir öðrum hlutum, virkja meðvitund og áhuga barna þegar kemur að sjálfbærni, vita að hægt sé að rækta mat og kunna það. Neysluhyggja er nefnilega ekki sjálfbær. – Þetta skiptir máli! Einnig hvetur þetta börn til að smakka á grænmeti sem þau eru ef til vill hikandi við að vilja prófa, en er meira spennandi tilhugsun ef þau rækta það sjálf. Sama á við um fullorðna. Síðan ég stofnaði hópinn „Adopt a vegetable plant“ á Facebook hef ég fengið endalaust af myndum, myndböndum og orðsendingum frá ókunnu fólki – hve stolt og glöð þau eru þegar vel hefur gengið með ræktun. Í gegnum Covid-tímabilið má segja að fólk hafi tvíeflst, fólk sem hafði aldrei ræktað neitt í lífinu var allt í einu komið með nýjan tilgang. Með því að gefa ræktuninni athygli, áhuga og tíma fór eitthvað að vaxa. Bæði bókstaflega og svo innra með þeim – sem er bráðnauðsynlegt öllum. Andlegur ávinningur, fjárhagslegur og nærandi – þessi reynsla er jákvæð á svo margan hátt.“ Vilmundur Hansen grænmetisgæðingur hreifst af ræktunarhæfileikum Kittyar og heimsótti hana fullur eftirvæntingar í gróðurhúsið. Má segja að með þeirri heimsókn hafi blómgast vináttubönd. Kál í fullum skrúða. Tómatar af öllum stærðum og gerðum. Þrýstnir og þéttir vínberjaklasar. Lilja Constance, dóttir Kittyar, er meðvituð um nýtingu náttúrunnar og gæði – meðal annars það að djúpsteikt fíflahöfuð eru herramannsmatur.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.