Bændablaðið - 22.07.2021, Side 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202130
LÍF&STARF
Uppbygging gestastofu Vatna
jökulsþjóðgarðs á Skútustöðum
í Mývatnssveit er hafin. Ríkið
keypti í upphafi árs fasteignina
Hótel Gíg sem þar er og gegndi
upphaflega hlutverki barnaskóla
sveitarinnar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra hóf
verkefnið formlega en í stað hefð-
bundinnar skóflustungu tók hann,
ásamt forstjórum fjögurra stofnana
og sveitarstjóra í Skútustaðahreppi,
sér verkfæri í hönd og tóku niður
hurðir á því sem áður voru hótel-
herbergi, en verða í framtíðinni
skrifstofurými fyrir stofnanirnar.
Nýjar hjarir á öðrum stað
Hurðunum hafa þegar verið
fundnar nýjar hjarir á öðrum stað í
Mývatnssveit, í anda hringrásarhag-
kerfisins að því er fram kemur á
vef ráðuneytisins. Að breytingunum
loknum mun Gígur hýsa gestastofu
Vatnajökulsþjóðgarðs og náttúru-
verndarsvæða í Mývatnssveit,
auk starfsaðstöðu fyrir starfsfólk
þjóðgarðsins og þriggja annarra
stofnana umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins; Umhverfisstofnunar,
Landgræðslunnar og Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn
(Ramý).
Allt kapp hefur verið lagt á að nýta
innréttingar og innanstokksmuni í
húsinu ellegar finna þeim nýjan stað
eða nýtt hlutverk annars staðar. Húsið,
sem áður hýsti Skútustaðaskóla,
stendur á einstökum útsýnisstað við
Mývatn og þóttu kaup á því hagstæður
kostur fyrir ríkissjóð sem gætu um
leið skapað tækifæri í Mývatnssveit.
Skútustaðahreppur hefur áform um
að nýta hluta af húsnæðinu undir
atvinnuskapandi nýsköpun og þekk-
ingarsetur.
Einnig gefst möguleiki á að
útbúa þar starfsaðstöðu fyrir opinber
störf án staðsetningar, t.d. á vegum
annarra stofnana ríkisins, háskóla og
rannsóknaraðila.
Starfsstöðvar þjóðgarðsins
á sex stöðum
Í lögum um Vatnajökulsþjóðgarð er
kveðið á um lögbundin áform ríkis-
ins um að halda úti sex meginstarfs-
stöðvum þjóðgarðsins sem mynda
þjónustunet. Þegar hafa megin-
starfsstöðvar í Ásbyrgi, Skaftafelli,
á Skriðuklaustri og Hornafirði verið
settar á laggirnar og bygging megin-
starfsstöðvar á Kirkjubæjarklaustri er
hafin. Með uppbyggingu gestastofu í
Mývatnssveit er því búið að fullnusta
uppbyggingu þessa mikilvæga þjón-
ustunets Vatnajökulsþjóðgarðs. /MÞÞ
„Stena Germanica“, farþegaferja
sænska ferjufyrirtækisins Stena
Line, sigldi í lok júní knúin
vistvænu metanóli á reglubundinni
ferð sinni milli Gautaborgar í
Svíþjóð og Kílar í Þýskalandi.
Var þetta í fyrsta sinn sem farþega-
og bílferja knúin hefðbundnum
brunavélum sigldi á vistvænu
metanóli. Eldsneytið var framleitt
af Carbon Recycling International
(CRI) og samstarfsaðilum þess með
endurunnum útblæstri frá stáliðjuveri
í Norður-Svíþjóð. Germanica ferjan,
sem er 240 metra löng, ber 1300
farþega og 300 bíla. Hún er knúin
fjórum aðalvélum sem var breytt árið
2015, þannig að þær geta gengið bæði
á metanóli og dísil. Metanól ryður
sér nú til rúms sem umhverfisvænna
eldsneyti fyrir skip, en Alþjóða-
siglingamálastofnunin (IMO) gaf á
síðasta ári út nýja staðla um notkun
metanóls sem skipaeldsneyti.
Með brunaolíu þess í stað er
komið í veg fyrir allan útblástur
svifryks og brennisteinsoxíðs. Einnig
uppfylla skip, sem brenna metanóli,
ströngustu skilyrði um útblástur
nituroxíðs. Með vistvænu metanóli
geta skipafélög svo einnig uppfyllt
vaxandi kröfur um minni losun
gróðurhúsalofttegunda.
Metanólið vinsælt
Í dag eru yfir 20 flutninga- og
farþegaskip knúin metanóli. Mörg
ný skip eru einnig í smíðum.
Þannig hefur dótturfyrirtæki Stena
Line, Stena Bulk, nýlega pantað
þrjú efnaflutningaskip knúin
metanólvélum.
Metanól- og ammóníaks-
framleiðandinn Proman er með
annað skip í smíðum og Maersk,
stærsta skipafélag heims, mun
sjósetja fyrsta gámaflutningaskipið
sem brennir metanóli á árinu 2023.
Maersk áformar einnig smíði þriggja
gámaflutningaskipa til viðbótar. Þá
eru hafnaryfirvöld víða í Evrópu að
fjárfesta í innviðum til dreifingar
metanóls og metanóldráttarbátum.
Verksmiðja reist í Kína
Eftirspurn eftir grænu metanóli
mun því vaxa hröðum skrefum á
næstu árum, en Alþjóðastofnunin
um endurnýjanlega orku (IRENA)
spáir að framleiðslan þurfi að aukast
um 400 milljón tonn fram til ársins
2050, eða um milljón tonn á mánuði
að jafnaði.
Metanólið verður nýtt sem
grænt eldsneyti fyrir skip, í
þungaflutningum á landi og til
framleiðslu á efnavöru. CRI hefur á
undanförnum 15 árum haslað sér völl
sem leiðandi fyrirtæki í heiminum í
þróun og sölu búnaðar til að framleiða
grænt metanól með endurvinnslu
koltvísýrings. CRI vinnur nú að
því að reisa verksmiðju með 110
þúsund tonna framleiðslugetu á ári
í Anyang-héraði Kína og að hönnun
verksmiðju sambærilegrar stærðar í
Norður-Noregi, auk þess sem fleiri
verkefni eru í pípunum.
Nauðsynleg orkuskipti
í sjóflutningum
„Við erum stolt af framlagi okkar til
„FreSME“ verkefnisins sem tókst á
allan hátt frábærlega en verkefnið
hlaut tæplega tveggja milljarða
króna styrk úr rannsóknasjóðum
Evrópusambandsins. Framleiðsla
á grænu metanóli úr útblæstri frá
stáliðnaði getur haft jákvæð áhrif
á umhverfið. Aukið framboð á
eldsneyti framleiddu með tækni CRI
mun styðja nauðsynleg orkuskipti
í sjóflutningum og öðrum sviðum
samgangna og iðnaðar,“ sagði
Ingólfur Guðmundsson, forstjóri
CRI.
Auk CRI eru í „FreSMe“
verkefninu 10 evrópskir
samstarfsaðliar:Iideals (frá Spáni),
TNO (Hollandi), Swerim (Svíþjóð),
SSAB (Svíþjóð), Array Industries
(Hollandi), Tata Steel (Hollandi),
Stena Line (Svíþjóð), Kisuma
Chemicals B.V. (Hollandi), NIC
– National Institute of Chemistry
(Slóveníu) og Politecnico di Milano
(Ítalíu). /MHH
Stena Germanica farþegaferjan siglir knúin grænu metanóli framleitt af CRI
en fyrirtækið er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem þróar, hannar og afhendir
búnað til að framleiða endurnýjanlegt eldsneyti og vistvæna efnavöru, úr
koltvísýringi og vetni. Myndir / aðsendar
Sigldi án vandræða:
Íslenskt tæknifyrirtæki
framleiðir grænt eldsneyti
Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, Árni Braga son land-
græðslustjóri, Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúru rannsóknastöðvarinnar
við Mývatn, Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vatnajökuls-
þjóðgarðs, Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlinda-
ráðherra og Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps.
Mynd / Vefur umhverfis- og auðlindaráðuneytis
Vatnajökulsþjóðgarður:
Byggja upp gestastofu
þar sem áður var hótel
HLAÐVARP BÆNDABLAÐSINS https://www.bbl.is/hladan
Bændablaðið Smáauglýsingar 56-30-300
líka hægt að lesa á bbl.is og Facebook
Skipstjórnarmenn og fulltrúar Stena Line voru viðstaddir þegar grænu metanóli frá CRI var dælt á Stena Germanica
ferjuna í höfninni í Gautaborg. CRI var valið vvaxtarsproti ársins 2019 og hlaut viðurkenningu árið 2020 fyrir mikla
aukningu í veltu. Þá hefur CRI unnið til alþjóðlegu verðlaunanna Wärtsilä SparkUp Challenge, Energy Globe Awards
og Nova Institute Best CO2 Utilization.
www.vallarbraut.is vallarbraut@vallarbraut.is S-8411200 & 8417300
RÚSSARNIR ERU MÆTTIR
Kynnum til sögunnar ný fjórhjól á Íslandi, framleidd af
RM í rússlandi.
Dráttarvélaskráð T3b
Mótor: 800c/c
Bein innspýting
Sjálfstæð fjöðrun
Diskabremsur
Hiti í handföngum.
Spil að framan
Dráttarkrókur að aftan
Dráttargeta 960kg
Hátt og lágt drif
Læsanlegt að aftan og
framan.
Verð:1.820.000+vsk
Gámatilboð:
1.700.000+vsk