Bændablaðið - 22.07.2021, Síða 34
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202134
UTAN ÚR HEIMI
Félag vistfræðinga á Spáni krefjast
þess að varnarefnanotkun í mat-
vælaiðnaði í landinu verði minnkuð
um helming fyrir árið 2023 miðað
við það sem nú er, sérstaklega þau
sem eru mjög eitruð og ekki leyfis-
skyld. Þetta gáfu þeir út eftir að ný
gögn sýndu mikið magn af leifum
varnarefna sem fundust í matvæl-
um á Spáni.
Skýrsla aðgerðarsinna vist-
fræðinga sem tóku saman gögn með
umboðsskrifstofu Spánar fyrir neyslu,
matvælaöryggi og næringu, sýnir að í
44,4% af grænmeti og ávöxtum fund-
ust leifar af varnarefnum. Ákveðnir
ávextir eins og jarðarber innihéldu
allt að 37 mismunandi tegundir af
varnarefnum, þar af 25 þeirra sem
geta haft áhrif á hormónakerfi fólks.
Rúmlega 30% af leifunum eru frá
varnarefnum sem hafa ekki tilskilin
leyfi í Evrópusambandinu. Gögnin
sýna að Spánn er, nú sem fyrr, leið-
andi í sölu á varnarefnum í Evrópu
árið 2019 þegar seld voru rétt rúmlega
75 þúsund tonn þar í landi.
Aðgerðaráætlun framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, Farm
to Fork, sendi ákall árið 2020
til aðildarlanda sambandsins að
minnka notkun varnarefna. Frjálsu
félagasamtökin Save Bees and
Farmers mæla einnig með að stefnt
verði á að notkun á gervivarnarefnum
verði minnkuð um 80% fyrir árið
2030 og alfarið banna notkun frá
2035 til að vernda líffræðilegan
fjölbreytileika. / ehg
Nýlegar rannsóknir benda til
að regnskógar Amason losi
rúmlega milljarði tonna meira af
koltvísýringi á ári en þeir binda.
Vísindamenn segja niðurstöðu
útreikninganna ógnvekjandi.
Í fyrsta sinn frá því að farið
var að áætla bindingu og losum
koltvísýrings í regnskógum Amason
sýna útreikningar að skógarnir losa
meiri koltvísýring en þeir binda.
Helsta ástæða aukinnar losunar er
sögð vera ólögleg skógareyðing með
bruna til að ryðja land til ræktunar á
soja og nautgripaeldis.
Auk þess sem hækkun lofthita
vegna loftslagsbreytinga hefur
leitt til þurrka í suðausturhluta
skóganna og í kjölfarið minni
koltvísýringsbindingar á því svæði.
Verulegt áhyggjuefni
Regnskógar Amason hafa frá upphafi
bundið um 25% af koltvísýringslosun
í heiminum og því verulegt
áhyggjuefni að skógarnir séu farnir
að losa koltvísýring í stað þess að
binda hann.
Vegna þessa, að sögn
vísindamanna sem unnu rannsóknina,
er enn mikilvægara en áður að draga
úr losun efna sem auka á hlýnun
jarðar. Niðurstaðan er tilkomin vegna
loftsýna sem tekin hafa verið með
flugvélum í um 4,5 kílómetra hæð
yfir skógunum á rúmum áratug. Auk
þess sem gervitunglamyndir hafa
verið notaðar til að áætla minnkun
á skógunum.
Forseti Brasilíu gagnrýndur
Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu,
hefur undanfarið verið réttilega
harðlega gagnrýndur fyrir að hvetja
til skógareyðingar í landinu til að
auka viðarframleiðslu, sojarækt
og nautgripaeldi. Í kjölfar stefnu
forsetans hefur skógareyðing í
Brasilíu ekki verið meiri í tólf ár.
/VH
Undanfarna mánuði hafa
skógareldar verið að magnast í
Kaliforníu-ríki í Bandaríkjum
Norður-Ameríku.
Eldarnir, sem brenna á mörgum
stöðum í ríkinu, eru illviðráðanlegir
vegna þurrka og þrátt fyrir baráttu
skógaryfirvalda og slökkviliðs hafa
eldarnir verið að breiðast út. Fyrstu
eldarnir sem um ræðir hafa logað frá
því um miðjan janúar á þessu ári og
alls hafa þeir verið um 5000 og logað
á um 60 þúsund hektara svæði. Auk
gróðurskemmda og dauða fjölda dýra
hafa að minnsta kosti 120 byggingar
orðið eldinum að bráð og fjöldi fólks
þurft að yfirgefa heimili sín. Orsök
eldanna er rakin til loftslagsbreytinga
og hitabylgju í kjölfar þeirra sem
leitt hafa til óvenju mikilla þurrka í
ríkinu. Skógareldum hefur fjölgað í
Kaliforníu undanfarin ár en að sögn
skógaryfirvalda í ríkinu eru eldarnir
óvenju margir og stórir í ár. /VH
Í kjölfar stefnu forseta Brasilíu hefur skógareyðing í landinu ekki verið
meiri í tólf ár.
Amason-regnskógarnir:
Losa mun meiri koltvísýring en þeir binda
Gríðarlegir skógareldar geisa í
kjölfar óvenjulegrar hitabylgju í
Síberíu. Stjórnvöld í landinu beita
stórum sem litlum herflugvélum í
baráttunni við eldana sem þegar
hafa lagt undir sig 800 þúsund
hektara af skóglendi.
Rússneski herinn hefur
undanfarnar vikur sent sérbúnar
vatnsflutningaflugvélar, Ilyushin
Il-76, í þúsundir leiðangra til
að reyna að slökkva eldana
auk þess sem þúsundir her- og
slökkviliðsmanna berjast við eldana
á jörðinni.
Íbúar biðja um aukna aðstoð
Íbúar í Jakútíu-borg, sem er á túndru
eða sífrera, hafa orðið hvað verst úti
í eldunum og reyknum sem honum
fylgir og segja að verkir í lungum
séu algengir og óttast að skemmdir
á lungum séu óendurkræfar og hafa
beðið Pútín forseta að senda aukinn
tækjabúnað og fleiri hermenn til að
berjast við eldana.
Þurrkar í Jakútíu hafa aldrei
verið meiri en það sem af er sumri
og hitastig í borginni náði 30 ° á
Celsíus í júní en að öllu jöfnu er
borgin flokkuð með þeim köldustu
í heimi.
Þiðnun sífrerans
Vísindamenn í Rússlandi og víðar
um heim hafa lýst yfir áhyggjum
sínum um að eldarnir í Síberíu geti
valdið þiðnun í sífrera svæðisins
og í kjölfarið muni mikið magn af
koltvísýringi losna úr læðingi og um
leið bæta enn frekar í ógnina sem
nú þegar stafar af hlýnun jarðar.
Auk þess sem aska sem leggst
yfir snjó á nærliggjandi svæðum
eykur á þiðnun. Hitabylgjur í
Rússlandi undanfarin ár hafa slegið
hvert hitametið af öðru og í júní
síðastliðinn náði hiti í Moskvu 34,7
° á Celsíus sem er mesti hiti sem
mælst hefur í borginni í 120 ár.
Talið er að losun koltvísýrings
vegna eldanna síðustu sex vikur hafi
jafngilt árlegri losun Venesúela.
/VH
Sams konar flugvél og Rússar nota við slökkvistarfið.
Síbería:
800.000 hektarar af
skóglendi eldi að bráð
Þúsundir her- og slökkviliðsmanna auk óbreyttra borgara berjast við skógarelda í Síberíu.
Spænsk matvæli:
Hafa áhyggjur af
leifum varnarefna
Eldur í eikarskógi í Kaliforníuríki.
Skógareldar:
Kalifornía brennur
Hluti varnarefna sem notuð eru í matvælaiðnaði geta haft áhrif á hormóna-
kerfi fólks.