Bændablaðið - 22.07.2021, Side 38
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202138
Áhöld til jarðvinnslu voru í
fyrstu ekki flókin; ef til vill aðeins
skeftur spaði, eins og sá sem við
þekkjum sem pál úr íslenskri
verkfærasögu. Einhverjum datt
svo í hug að raða urmli slíkra
spaða á einn og sama öxulinn.
Þá var komið veltiherfi. Með
tilkomu aflvéla mátti svo knýja
spaðasettan öxulinn til snúnings
og þá var fenginn sá sem kalla hefði
mátt „hverfipál“ – en við þekkjum
í dag sem jarðtætara. Stórlega ein-
földuð þróunarsaga.
Þúfnabaninn sæli var vélknúinn
jarðtætari, sá fyrsti sem Íslendingar
kynntust. Á fjórða áratugnum var
kynntur jarðtætari „mjög hug-
vitsamlega tengdur FORDSON-
dráttarvélinni“, eins og umboðs-
maðurinn, P. Stefánsson, auglýsti.
Lítil áhrif hafði tætarinn sá þó á
gang ræktunarsögunnar hérlendis.
Með tilkomu vökvastýrðs þrí-
tengis og aflúttaks á dráttarvélum
opnuðust ýmsir möguleikar til
nýrrar hönnunar verkfæra við þær.
Enska fyrirtækið Rotary Hoes Ltd í
Essex hóf að smíða aflknúna jarð-
tætara á grundvelli uppfinningar
stofnanda síns, A. C. Howard, frá
árinu 1912.
Heildverslunin Hekla hf. hlut-
aðist til um innflutning tveggja
jarðtætara frá fyrirtækinu sumarið
1954 og hóf Verkfæranefnd þá um
haustið athuganir á notagildi þeirra.
Annar tætararinn var tengdur aftan
í beltavél, IHC TD 6, en hinn hafði
verið smíðaður fyrir Ferguson-
dráttarvél. Tætararnir voru reyndir
á ýmsum gerðum lands og jarðvegs.
Álit Verkfæranefndar að loknum
athugunum var „að jarðtætarar séu
hentugir til þess að vinna land, sem
legið hefur í plógstrengjum 1-2 ár.
Þeir fínmylja jarðveginn og mynda
[góðan sáðbeð].“
Margir hrifust af vinnubrögð-
um jarðtætaranna og í hönd fór
blóma skeið þeirra í jarðvinnslu-
sögunni. Það ýtti líka undir kaup
bænda á þeim að víða voru nú að
koma heimilisdráttarvélar sem tæt-
ararnir hentuðu vel við. Plógar og
hefðbundin herfi lentu í nokkrum
skugga. Brátt kom þó í ljós að auð-
velt var að misnota jarðtætarana og
að þeir áttu ekki við allar gerðir
jarðvegs; með þeim mátti jafnvel
spilla byggingu jarðvegsins, t.d.
mýrajarðvegs, svo áhrif gat haft á
grassprettu og endingu sáðgresis í
nýræktum.
En menn lærðu af reynslunni og
þeim fáu rannsóknum sem gerðar
voru. Hefðbundir jarðtætarar, en
í þeim flokki urðu Howard og
Agrotiller vinsælastir framan af,
hurfu en „hverfipálarnir“ þróuðust
yfir í aðrar gerðir aflknúinna
jarðvinnslutækja, svo sem þá sem
þessi árin kallast í daglegu tali
„pinnatætarar“ og eru úr þeim
flokki sem enskir nefna power
harrows og rotary harrows – úr
flokki „hverfiherfa“ (!)
Bjarni Guðmundsson
MENNING&SAGA
Jarðtætararnir tveir frá Rotary Hoes Ltd voru reyndir á Hvanneyri haustið 1955. Myndir Ólafur Guðmundsson
Hér er líklega verið að kynna jarðtætara árið1957 (Agrotiller); ekki að undra
að menn hrifust af sáðbeðinum sem hann skilaði. Auglýsing úr búnaðarblaðinu Frey 1933 á Fordson-dráttarvél með jarðtætara.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Fyrri slætti er víðast hvar lokið
í Eyjafirði og var þokkalegur,
að sögn Sigurgeirs Hreinssonar,
framkvæmdastjóra Búnaðarfélags
Eyjafjarðar.
Langvarandi þurrkar gera að
verkum að háin fer seint af stað og
óvíst hvenær unnt verður að hefja
seinni sláttinn. Sigurgeir segir að
bændur séu í þeirri stöðu að þurfa
góðan heyfeng í sumar. Veðurspá
gerir ekki ráð fyrir mikilli úrkomu
þannig að brugðið geti til beggja
vona um hvort svo verði. „Það er
tvísýnt en ekki öll nótt úti enn,
sprettutíð er alveg út ágústmánuð
og fram í september svo enn er von,“
segir Sigurgeir. /MÞÞ
Bændur í Eyjafirði hafa víðast hvar lokið fyrri slætti en háin fer seint af stað
sökum mikilla þurrka. Mynd/MÞÞ
Bændur norðan heiða
þurfa góðan heyfeng