Bændablaðið - 22.07.2021, Side 39
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 39
Um aldir hafa bændur nýtt
afrétti á hálendinu til sumar
beitar. Nýting þessa lands kallaði
á gott skipulag og samstöðu um
upprekstur og smölun landsins
á haustin. Þetta viðfangsefni
studdi því við félagsþátt
samfélagsins, þekkingu á
hálendinu og myndun örnefna.
Til marks um mikilvægi afrétta
má nefna, að við afmörkun hreppa
á sínum tíma hefur m.a. verið
horft til þess að þeir sem ættu
upprekstrarland saman yrðu saman
í hreppi. Nýting afrétta og smölun
er hluti af menningararfleifð okkar.
Mig langar í þessari grein að ræða
nokkra lykilþætti sem tengst hafa
umræðu um beit á afrétti.
Gróðureyðing
Á þeim tíma sem liðinn er frá land-
námi hefur gróður víða látið undan
síga vegna uppblásturs jarðvegs og
vatnsrofs. Þessi þróun er samspil
ýmissa þátta eins og landnýtingar,
veðurfars og eldgosa. Menn hafa
reynt að átta sig á vægi þessara
þátta í landeyðingunni. Í nýlegri
yfirlitsgrein, sem byggist m.a. á
rannsóknum á setlögum í stöðu-
vötnum, telja höfundar að nátt-
úrulegur breytileiki í veðurfari og
eldvirkni séu stærri áhrifavaldar
í gróðureyðingunni en búsetan í
landinu þó að allir þessir þættir
komi við sögu (Áslaug Geirsdóttir
o.fl. 2020). Eldgos mynduðu
landið okkar og hafa alltaf fylgt
því en í mismiklum mæli eftir
tímabilum. Fyrstu árþúsundin
eftir ísaldarlok (fyrir 11.500
árum) virðist gróður hafa haldið í
við gróðureyðingu af völdum eld-
gosanna. Þetta breyttist síðar og
nokkur hundruð árum fyrir land-
nám var töluverð gróðureyðing
hafin í kjölfar kaldara tíðarfars.
Sumarhitinn á Íslandi er það lágur
að lítil lækkun getur haft miklar
afleiðingar fyrir gróður.
Tíðarfar
Rétt fyrir landnám virðist hafa
verið tímabundið kuldaskeið en
fyrstu aldir landnámstímans voru
hagstæðar. Tímabilið frá 1300-
1900 var líklega það kaldasta frá
lokum ísaldar. Á þessu árabili, eins
og öðrum, skiptust þó á hlýrri og
kaldari tímabil. Upp úr 1920 fór að
hlýna og svo kólnað aftur um 1965
en síðustu 20-30 árin hafa verið
hagstæð. Tíminn frá landnámi
hefur því einkennst af töluverðum
kulda miðað við árþúsundin þar á
undan. Landið hefur aldrei verið
algróið og náttúruleg gróðurmörk
hafa sveiflast töluvert frá lokum
ísaldar, í takt við sveiflur í loftslagi
(Rannveig Ólafsdóttir o.fl. 2001).
Talið er að gróðurþekja landsins
hafi verið rúm 60% þegar hún
var sem mest. Það hafa því alltaf
verið til gróðursnauðar auðnir á
hálendinu enda rúmur þriðjungur
landsins ofan 600 m hæðarlínu.
Uppgræðsla
Undanfarna áratugi hafa bændur
unnið að uppgræðslu á afréttum
í samstarfi við Landgræðsluna og
hefur það starf skilað góðum ár-
angri víða. Það er góð reynsla af
því að græða landið upp þó ein-
hver beit sé á afréttunum. Mikil
sjálfgræðsla hefur einnig orðið á
þessum tíma enda tíðarfar verið
hagstætt gróðri og beitarstjórnun
meiri en áður. Endurheimt gróðurs
og jarðvegs er langtímaverkefni og
mestu skiptir að því miði í rétta átt.
Þegar rætt er um uppgræðslu
á hálendinu koma í ljós ólík
sjónarmið. Sumir vilja hafa
auðnirnar áfram, aðrir vilja græða
upp en bara með innlendum
tegundum. Enn aðrir vilja nota
bestu fáanlegu tegundir á hverjum
tíma, hvort sem þær eru innlendar
eða erlendar. Það eru einnig
ólík sjónarmið um trjágróður,
hvar hann eigi að vera og hvaða
tegundir eigi að nota. Öll þessi
sjónarmið eiga rétt á sér en það
þarf að vega saman kosti og galla
hverrar stefnu og reyna að finna
ásættanlegan milliveg.
Uppgræðsla og kolefnisbinding
er ekki bara hagur bænda
heldur þjóðarinnar allrar. Það er
skynsamlegra fyrir okkur sem
þjóð að leggja fé í uppgræðslu,
og binda þannig kolefni, en greiða
háa kolefnisskatta til útlanda. Það
ætti því að vera forgangsverkefni
að koma gróðurframvindu af stað
á sem stærstum svæðum.
Beit
Í umræðum um beit gleymist það
oft að land er ekki annað hvort
beitt eða friðað. Allt land verður
fyrir einhverri beit þó svo að búfé
sé ekki beitt á það. Hér á landi
höfum við fugla og skordýr sem
eru afkastamiklir grasbítar og svo
hreindýr á austurhluta landsins
og þau eru á beit allt árið. Það
sem skiptir máli er hversu mikil
beit er á landinu og á hvaða
árstímum. Nú er fé einungis í um
tvo mánuði á afréttum landsins.
Hér á landi er oft horft framhjá
jákvæðum áhrifum hóflegrar
beitar á kolefnisbindingu, teg-
unda samsetningu og tegunda-
fjölbreytileika. Víða í Evrópu
sækjast menn eftir sauðfjárbeit
vegna þessara jákvæðu áhrifa.
Afréttir og önnur beitilönd
bænda á hálendinu eða öðru
fjalllendi eru, vegna landslags og
annarra staðhátta, mjög breytileg.
Hluti landsins liggur frekar lágt
yfir sjó, annars staðar teygir landið
sig langt upp fyrir gróðurmörk.
Sums staðar er jarðvegur þykkur
og þakinn gróðri, annars staðar er
jarðgrunnt og gróður gisinn. Sums
staðar er þurrlendi og annarsstaðar
mýrar. Sums staðar er landið flatt
og annarsstaðar eru brött fjöll
með hömrum eða skriðum. Allan
þennan breytileika má finna á
flestum afréttum enda eru þeir í
villtri náttúru landsins.
Þegar rætt er um beit og
beitarstjórnun á slíku landi verður
að hafa þetta í huga. Beit á svona
land er allt annars eðlis en beit á
heimahaga eða tún. Víða erlendis
eru fyrst og fremst villt beitardýr
á svona landi enda erfitt að halda
búpeningi til beitar vegna rándýra.
Hér eru ekki rándýr, nema refir,
og því höfum við getað látið búfé
ganga eftirlitslaust á afréttum
yfir sumarið. Það má segja að
sauðkindin sé einkennisbeitardýr
hálendisins, auk hreindýra, álfta,
gæsa og rjúpu.
Uppi hafa verið hugmyndir um
að hluta afréttina meira í sundur
með girðingum til að halda fénu á
ákveðnum svæðum og friða önnur.
Mér finnst það ekki skynsamlegt,
girðingar eru dýrar og þurfa
töluvert viðhald auk þess sem
rof myndast gjarnan í land við
girðingar. Beitarálagi er hægt að
stjórna með fjárfjölda, beitartíma,
uppgræðslu og með því að halda
því fé heima sem leitar á óæskileg
svæði á afréttum.
Ég tel mikilvægt að við nýtum
afréttina áfram eins og gert hefur
verið. Hófleg nýting er góð fyrir
gróðurinn og jarðveginn. Ég hef
séð fallegt beitiland breytast í
mosaþembu eftir langa friðun.
Nýting er bændum einnig hvatning
til uppgræðslu en mjög stór hluti
uppgræðslustarfs í landinu er
unninn af starfandi bændum. Um
leið viðhöldum við þekkingu
okkar á nýtingu afréttanna,
smalamennskum og örnefnum,
líkt og gert hefur verið um aldir.
Guðni Þorvaldsson
Heimildir
• Áslaug Geirsdóttir, David J.
Harning, Gifford H. Miller,
John T. Andrews, Yafang Zong
og Chris Caseldine, 2020.
Holecene history of landscape
instability in Iceland: Can
we deconvolve the impacts of
climate, vukcanism and human
activity? Quaternary Science
Reviews 249, 106633.
• Rannveig Ólafsdóttir, Peter
Schlyter og Hörður V.
Haraldsson, 2001. Simulating
Icelandic vegetation cover
during the Holecene.
Implications for long-term land
degradation. Geogr. Ann., 83 A
(4), 203-215.
MF RB 3130F
RÚLLUSAMSTÆÐA
ÚRVAL HEYVINNUTÆKJA FRÁ MASSEY FERGUSON
TIL AFHENDINGAR STRAX Á HAGSTÆÐU VERÐI
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Sími 480 0080
buvelar.is
SAMFÉLAGSRÝNI
Beit á afrétti
Guðni Þorvaldsson.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Við ætlum að bjóða upp á
HEYEFNAGREININGU 3
um miðjan ágúst. Sama verð og í fyrra
BÆNDUR
OG BÚALIÐ!
■ Efnagreining ehf, Lækjarflóa 10a, 300 Akranes
■ efnagreining@efnagreining.is ■ sími 661 2629
Nánar um heyefnagreiningapakka
og fleira á heimasíðu okkar
efnagreining.is
Nánari upplýsingar á
efnagreining.is
Ný verðskrá
1. september
(Einungis lánskjara- og
launavísitölubreyting)
Nú eru farin að
berast til okkar
hirðingarsýni
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Bænda
bbl.is Facebook