Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 44
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202144
SAMFÉLAGSRÝNI
Þegar landinu var stolið um hábjartan dag
Hugsum okkur að laumað yrði í
frumvarp um lögreglumál nýrri
örstuttri lagagrein um að nú væri
húseigendum loksins heimilt
að friða húsin sín. Húseigandi
gæti smíðað í kringum húsið
sitt mannhelda girðingu, fengið
smíðina samþykkta hjá lögreglu
bæjarins, árlega um hver jól,
og eftir að friðlýsing hússins
væri auglýst af viðkomandi
sveitarstjórn í Stjórnartíðindum
mættu þjófar ekki stela úr húsinu
fram að næstu jólum!
Frumvarpið yrði umræðulaust
að lögum. Í framhaldinu gagn
ályktaði lögreglan að fyrst búið
væri að banna þjófum að stela úr
friðuðum húsum væri þeim nú
heimilt að stela úr „ófriðuðum“
húsum. Húseigendur „ófriðaðra“
húsa, sem leituðu til lögreglunnar
í vandræðum sínum þegar þjófar
gerðu sig líklega til að bera út
húsgögnin, væri ráðlagt að hjálpa
til við burðinn.
Sá er segir að ekkert þessu
líkt gæti gerst í landi laga og rétt
ar, þar sem eignarréttur er talinn
mannréttindi og sagður friðhelgur
í Stjórnarskrá – hefur rangt fyrir
sér. Í stað húsa voru það heima og
eignarlönd sem örstutt lagalauma
gaf kindum umgangs og beitarrétt
í löndum sem ekki eru sérstaklega
girt, vottuð, friðlýst og auglýst!
Lauman
„Laumunni” var komið fyrir í 8. gr.
búfjár haldslaga nr. 103/2002. Fyrsta
setningin hennar hljómar eins og
verið sé að færa landeig endum nýtt
úrræði, alveg nýja heimild sem þá
líklega vantaði til að fá langþráðan
frið fyrir ágangi búfjár:
Umráðamanni lands er heimilt
að ákveða að tiltekið og afmark
að landsvæði sé friðað svæði og
er þá umgangur og beit búfjár
þar bönnuð.
Í fjórum seinni setningum grein
arinnar er tiltekið að til þess að
„friða“ landsvæði skuli landeig
andinn girða land sitt dýrheldri
girðingu, fá hana vottaða á hverju
ári hjá búnaðarsambandi, tilkynna
sveitarfélaginu um „friðunina“ og
vottunina, sem á þá að auglýsa „frið
lýsingu “ viðkomandi land svæð is í
Stjórnartíðindum!
Nú liggur fyrir að lauman koll
varpaði yfir þúsund ára umráðar
étti landeigenda og breytti flestum
heima og eignarlöndum á Íslandi í
afrétt fyrir kindur.
Sagan: Umráðaréttur og
bótaskylda frá þjóðveldisöld
Árið 1958 var skipuð nefnd þriggja
manna til að gera heildstætt laga
frumvarp um notkun afrétta, upp
rekstrarrétt, fjallskil og ágang bú
fjár. Formaður nefndarinnar var
Ólafur Jóhannesson, fv. prófessor
og forsætisráðherra. Frumvarp
sem nefndin vann varð uppistaðan
í lögum um fjallskil nr. 42/1969,
nú lög nr. 6/1986. Í ítarlegri greina
gerð „Ólafsnefndarinnar“ segir um
ágang búfjár, ábyrgð eigenda þess
og réttindi landeigenda:
„Þetta ákvæði réttarbótarinnar
[innskot: árið 1294] verður að
telja gild lög enn þann dag í dag.
Ágangur búfjár í tún, akra eða
engi varðar því fjáreiganda
bótum, án tillits til þess, hvort
landið er girt eða eigi, og hvort
sem fjáreiganda verður um
kennt eða ekki. Þessi ákvæði
eru að efni til staðfest í 38. gr.
þessara laga, er einnig lætur
hið sama gilda um afgirt svæði,
þótt ekki séu þar tún, engi eða
matjurtagarðar.“
Þó svo „Ólafslögin“ hafi ekki áskilið
vörsluskyldu búfjár, sem hefði verið
æskilegt, virtu þau skilyrðislausan
umráða og eignarrétt landeigenda,
enda viðurkenndur í landinu frá
þjóðveldisöld í Grágás og seinna
í Jónsbók. Í „Ólafslögunum“, nú
lögum um afréttamálefni nr. 6/1986,
er allur IV. kaflinn um ágangsfé,
bótaábyrgð búfjáreigenda og úr
ræði landeigenda til að vernda eigur
sínar. Í kaflanum eru eftirfarandi
ákvæði, samandregin:
• Sveitarstjórnum ber að smala
og skila ágangsfé í heimalandi,
sem kemur úr afrétti, aftur á
afréttinn eða í skilarétt.
• Meirihluti landeigenda getur
óskað eftir að heimalönd þeirra
séu girt frá afrétti ef ágangur úr
honum er mikill og skulu þeir
sem nýta afréttinn þá greiða 4/5
hluta kostnaðarins (með vísan í
girðingalög).
• Sveitarstjórn skal smala
ágangsfé og koma því til
eigenda ef það kemur úr öðru
heimalandi og skulu eigendur
ágangsfjárins greiða kostnað
inn.
• Ef sveitarstjórn sinnir ekki
smölunarskyldu sinni skal
lögregla sjá um smölunina, og
rukka eigendur ágangsfjárins
um kostnað. (Bætt við 1997).
• Búfjáreigendur eru bótaskyldir
ef búfé þeirra veldur tjóni í
engjum, túnum, garðlöndum
eða öðrum girtum svæðum.
• Landeigendur geta sett ágangsfé
í aðhald, ef ágangur er ítrekaður,
og skal búfjáreigandinn þá
greiða þeim uslagjald.
Í landi þar sem kindaeigendur þurfa
almennt ekki að halda skepnum
sínum innan girðinga, eins og tíðk
ast í öðrum löndum hins viti borna
heims, hafa eigendur heima og
eignarlanda haft bærileg úrræði til
að vernda eigur sínar gegn ágang
skindum. Sveitarfélög, lögregla og
búfjáreigendur hafa haft þar skýr
verkefni, skyldur og ábyrgð.
Laumuhöfundi hlýtur að hafa
fundist þessi þúsund ára réttur allra
landeigenda vera of íþyngjandi fyrir
þá nútíma kindaeigendur, sem vilja
fóðra skepnur sínar í óleyfi í annarra
manna löndum.
Afleiðingar laumunnar
Nýfengið álit frá sveitarstjórnar
ráðuneytinu staðfestir að lauman
í búfjár haldslögin árið 2002 víkur
öllum IV. kafla „Ólafslaganna“,
um úrræði við ágangsfé, til hliðar.
Í álitinu segir m.a:
í því felst að umráðamaður lands
þar sem lausaganga búfjár er
heimil þarf að horfa til ákvæða
laga um búfjárhald fremur en
laga um afréttarmálefni. Ber
honum því að taka ákvörðun
um að friða þann hluta lands
ins sem umgengni búfjár skal
vera bönnuð…
Þá gagnályktar stjórnsýslan að fyrst
umgangur og beit sé bönnuð í „frið
lýstum“ löndum sé umgangur og beit
nú leyfileg í „ófriðlýstum“ löndum.
Því hafi yfirvöld þar engar skyldur
og búfjáreigendur enga ábyrgð.
Ekki verður séð að nokkurt land
hafi verið friðlýst frá gildistöku
laumunnar, og skal engan undra,
og lausaganga kinda er enn leyfð í
u.þ.b. öllum sveitum landsins. Því
eiga kindur nú umgangs og beitar
rétt í öllum heima og eignarlöndum
langflestra sveita landsins!
Ótrúleg vinnubrögð
við lagasetningu
Hvorki var getið um laumuna í
samandregnum athugasemdum sem
fylgdu frumvarpinu né minnst á hana
einu orði í áliti landbúnaðarnefndar.
Þá minntist landbúnaðarráðherrann
ekki á hana í ræðu sinni þegar hann
kynnti frumvarpið fyrir alþingi. Í
ræðunni fór hann yfir fimm megin
breytingar sem frumvarpið hafði
í för með sér og var sú fimmta að
breyta upplýsingaöflun um uppskeru
á gulrófum og kartöflum!
Hvergi í frumvarpinu, nefndar
áliti eða í ræðu ráðherrans er nefnt
einu orði að yfir þúsund ára umráða
réttur landeigenda væri hirtur af
þeim með samþykkt frumvarpsins.
Ekki var minnst á að lauman felldi
niður heilan kafla í öðrum lögum
um úrræði landeigenda við ágangi.
Ástæðulaust var talið að nefna að
bótaskylda búfjáreigenda í „ófriðuð
um“ löndum félli niður. Að nánast
öll heima og eignarlönd landsins
yrðu að afrétti við samþykkt frum
varpsins, var ekki tilefni útskýringa.
Ágangsfé er ekki lengur ágangsfé
Ekki má reka ágangsfé yfir í annars
manns land og því eru landeigendur
eftir laumuna úrræðalausir þegar
ágangsfé étur hjá þeim nýskóginn,
matjurtargrösin eða túnsprettuna.
Reyndar er það sem hefur verið
kallað ágangsfé á Íslandi í aldir,
ekki lengur ágangsfé, heldur að
komurollur að nýta sér umgangs
og beitarréttinn í annarra manna
löndum, sem þeim var gefinn vorið
2002.
Í landi laga, réttar og friðhelgs
eignarréttar er ráðlegging stjórn
valda til landeigenda, sem óska
eftir aðstoð yfirvalda við að verja
eigur sínar, að hjálpa þjófunum við
burðinn.
Ofbeldi sérhagsmuna
Í krafti góðs aðgangs að löggjaf
anum, sem á sér ýmsar skýringar,
tekst kindaeigendum að halda
þúsundum landeigenda í gíslingu
kindanna þeirra. Þessi séríslenska
spilling hlýtur að fara að renna sitt
skeið því hún á ekkert erindi við
nútímann, hvað þá framtíðina.
Það hljóta allir að sjá að það
er bara í landi fáránleikans að
kindaeigendum sé færður með
lögum umgangs og beitarréttur
fyrir skepnurnar sínar í annarra
manna heima og eignarlöndum,
ef þau eru ekki girt, árlega
vottuð, „friðlýst“ og auglýst í
Stjórnartíðindum!
Stjórnarskráin til bjargar?
Þó svo Alþingi hafi misst af laum
unni standa vonir til að stjórnar
skráin grípi hana. Ef ekki, munu
margir eigendur heima og
eignarlanda spyrja sig í hvers konar
landi þeir búi.
Kristín Magnúsdóttir
lögfræðingur og landeigandi
Kristín Magnúsdóttir.
Í „Ólafslögunum“, nú lög nr. 6/1986, er allur IV. kaflinn um ágangsfé, bóta
ábyrgð búfjáreigenda og úrræði landeigenda til að vernda eigur sínar.
Ágangskindur inni á golfvelli.
Nú liggur fyrir að lauman
kollvarpaði yfir þúsund
ára umráðarétti landeigenda
og breytti flestum heima- og
eignarlöndum á Íslandi í afrétt
fyrir kindur.
Það hljóta allir að sjá að það
er bara í landi fárán leikans
að kinda eig endum sé færður
með lögum umgangs- og beitar-
réttur fyrir skepnurnar sínar
í annarra manna heima- og
eignarlöndum, ef þau eru ekki
girt, árlega vott uð, „friðlýst“ og
auglýst í Stjórn ar tíðindum!
Bænda
12. ágúst
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
STARTARAR
gerðir dráttarvéla