Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202146
Aflvélar Vesturhrauni 3 í Garðabæ
flytur inn ýmis tól og tæki. Þar á
meðal eru tvær tegundir fjórhjóla
með dráttarvélaskráningu sem eru
innsigluð á 55 km hámarkshraða.
Annars vegar hjól frá Kína sem hafa
verið seld hér í nokkur ár og nefnast
Goes 550 (prófaði svoleiðis 500 cc og
620 cc hjól frá Jötunvélum á Selfossi
og skrifaði um hér 11.8. 2016).
Kínversk hjól sem eru alltaf að verða
vandaðri og vandaðri. Hitt fjórhjólið
er nýtt á íslenskum markaði, framleitt
í Rússlandi og heitir Stels og er með
850 cc. mótor sem skilar 61 hestafli.
Byrjum á „Rússanum“, helstu
upplýsingar fyrst
Þegar maður kemur upp að Stels 850
fjórhjólinu virkar það stærra en flest
önnur fjórhjól, hærra og breiðara
sem það er. Lengdin er 2.500 mm og
breiddin er 1.370 mm (allt að 17 cm
breiðara en önnur fjórhjól). Hæðin
er 1.580 mm sem er töluvert hærra
en flest fjórhjól. Þar munar mest um
langa stillanlega sjálfstæða fjöðrun
og að hjólið kemur á 27 tommu (“)
dekkjum. Auðveldlega er hægt að
setja það á 29“ dekk án þess að breyta
neinu.
Bensíntankurinn er óvenju stór,
eða 30 lítra. Veglegur stuðari er
framan á hjólinu og auka vatnskassi
er ofan á hjólinu fremst.
Öll smíði virðist við fyrstu sýn
vera vönduð og sterkleg, en sem
dæmi þá er dráttarspilið framan á
hjólinu gert fyrir 3.500 kg. (Ég hef
aldrei séð fjórhjól með svona stórt
og öflugt spil).
Auka hlífðarpönnur eru á hjólinu
til að verja fyrir grjóti neðan frá, bæði
undir vél og út í hjól undir öxlum,
drifsköftin framan og aftan eru sverari
en í mörgum jepplingum. Þrátt fyrir
alla þessa sterku yfirbyggingu og
efnismikið járn er hjólið ekki nema
410 kg. Verðið á fjórhjólinu er svo
ekki nema 2.490.000.
Prufuaksturinn með
atvinnumanni í fjórhjólaakstri
Stels hjólið sem var prófað var selt
og prófað með leyfi nýs eiganda, en
það var með nokkrum aukahlutum
sem hægt er að fá á hjólin. Auka
ljóskastara að framan (ledbar).
Hita í handföngum og á inngjöf
hægri handar. Auka farangurskassa
aftan. Tvo auka bensínbrúsa og
„ryksmokka“ yfir dempara og
eitthvað örlítið fleira.
Þar sem ég var með tvö fjórhjól
leitaði ég hjálpar frá syni mínum sem
starfar sem leiðsögumaður á fjórhjóli
og skiptumst við á að keyra hjólin.
Hans umsögn um hjólið einkennist
af samanburði við CanAm hjólin
sem hann vinnur almennt á, en hans
umsögn var eftirfarandi:
„Frábær fjöðrun, maður finnur
ekki fyrir hnefastórum steinum
á grófum vegslóðum. Krafturinn
góður og viðbragð, en stýrið mætti
vera breiðara.“
Sjálfur er ég ekki mjög vanur að
keyra fjórhjól, en mér fannst hjólið
óvenju stöðugt og fjöðrunin með
ólíkindum góð. Myndi halda að þetta
fjórhjól ætti að henta vel til bæði
vinnu og lengri ferðalaga.
Goes Cobalt 550 Max
Minna hjólið er með 550 cc.
vatnskælda fjórgengis 37 hestafla vél.
Þyngdin er 338 kg. Það er með 4x4
drif sem er stillanlegt og læsanlegt.
Fjöðrun er stillanleg, bensíntankur er
18 lítrar og dekk eru 25“. Þá er 1.134
kg spil framan á hjólinu. Lengdin
á fjórhjólinu er 2.330 mm, breidd
1,155 mm og hæð 1.270 mm. Verðið
er 1.550.000.
Fjórhjól með dráttarvélaskráningu
pípa viðvörunarflautu þegar maður
stendur upp. Þegar maður stoppar
verður að muna að skilja við hjólið í
handbremsu eins og aðrar dráttarvélar.
Þetta flautuhljóð var að trufla okkur
feðga þar sem við erum báðir vanir
óinnsigluðum fjórhjólum sem eru
meira leiktæki en ekki vinnutæki.
Prufuaksturinn kom á óvart
Í fyrstu elti ég soninn, sem var á
stærra hjólinu, og fyrir mér var þetta
ágætis akstur, hjólið fjaðraði ágætlega
undir mér og mér tókst þokkalega
að halda í við „atvinnumanninn“
í fjórhjólamennskunni. Það var
vissulega aðeins að trufla mig að í
hvert sinn sem ég sá stóra holu eða
ójöfnu stóð ég upp og hjólið pípti á
mig.
Í mjög grýttum og torfærum
vegslóða var ég að finna að
dráttarkúlan var að rekast niður
(skrúfgangurinn á henni fulllangur).
Ég tók dráttarkúluna úr og sneri henni
við og þá hætti ég að reka hana niður.
Eftir um 20 km slóðaakstur
skiptum við feðgar um ökutæki og
umsögn sonarins um Goes hjólið var
eftirfarandi:
„Fjöðrun frekar stíf, lágt undir
hjólið.“ Samt eru 28,5 cm undir
lægsta punkt ef dráttarkúlan er
fjarlægð sem í raun á að gera ef hún
er ekki í notkun. Hann rak kúluna
niður eins og ég þrátt fyrir að ég hefði
snúið henni við.
„Stýrið gott og létt (rafmagnsléttir
á stýrinu á Goes-hjólinu), mælaborðið
skýrt og gott, fannst píphljóðið
pirrandi. Finnur svolítið fyrir steinum
á grófum vegi, en ef tekið er mið af
verði þá er þetta gott hjól fyrir þennan
pening. Ef maður vill betra fjórhjól
og þægilegra þarf einfaldlega að
borga meira.“
Nánari upplýsingar um hjólin er
hægt að nálgast á vefsíðunni www.
aflvelar.is .
VÉLABÁSINN
Hjörtur L. Jónsson
liklegur@internet.is
Þyngd 410 kg
Hæð 1.580 mm
Breidd 1.370 mm
Lengd 2,500 mm
Helstu mál og upplýsingar
Stels 850 :
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
RÚÐUR Í
DRÁTTARVÉLAR
FRÁBÆR VERÐ
John Deere
Zetor
Case IH
McCormick
Steyr
Claas
Ford
Fiat
New Holland
Deutz-Fahr
Massey Ferguson
Goes 550 til vinstri og Stels 850 til hægri. Myndir / HLJ.
Fannst þægilegra en á mörgum fjórhjólum sem ég hef prófað að skipta áfram og afturábak á Stels hjólinu.
Ef maður stendur er pirrandi viðvörunarflaut á dráttarvélaskráðum fjórhjólum.
Á Goes hjólinu var betra að snúa
kúlunni öfugt, en á varnarmiðanum
þarna segir að maður eigi að taka kúl-
una af ef ekki er verið að nota hana.
Óvenju kraftmikið spil í fjórhjól og
allar undirvarnir virka þykkar og
öflugar á Stels fjórhjólinu.
Hiti í stýri og inngjöf kostar aukalega
38.900, en er hverrar krónu virði.
Þyngd 338 kg
Hæð 1.270 mm
Breidd 1.155 mm
Lengd 2.330 mm
Helstu mál og upplýsingar
Goes Cobalt 550 Max: