Bændablaðið - 22.07.2021, Side 47

Bændablaðið - 22.07.2021, Side 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 2021 47 Eins og flestir Íslendingar reyni ég að ferðast um landið okkar fagra í sumarfríinu mínu og hef ég nú þegar tekið einn rúmlega 2.000 km hring um landið og svo Vestfjarðahring. Á þessum ferð- um mínum hef ég orðið var við ýmislegt sem mætti bæta í umferð- armenningu okkar Íslendinga og erlendra ferðamanna. Fyrst vil ég nefna lélega notk- un ljósa bæði að framan og aftan. Á Jökulhálsinum á Snæfellsnesi var svartaþoka og allt í einu var fyrir framan mig bíll sem var algjörlega ljóslaus að aftan sem lúsaðist áfram á hraða sem var varla mikið meiri en gönguhraði og þegar ég blikkaði hann til merkis um ljósleysið virtist ökumaðurinn ekki átta sig á að ég vildi fá hann til að kveikja ljósin, hann fór bara út í kant og hleypti mér fram úr. Þá sá ég í afturrúðunni merki frá bílaleigu og gerði ráð fyrir að þarna hefði verið á ferðinni útlendingar á bílaleigubíl. Lög um ökuljósareglugerð er eitthvað sem bílaleigur mættu skerpa á við viðskiptavini sína þeim og öðrum til öryggis. Ekki bara útlendingar ljóslausir að aftan Bændur mættu vera meira vakandi að muna eftir að tengja ljósabúnað á tækjum sem þeir hengja aftan í drátt- arvélarnar sínar á þjóðvegum lands- ins og að muna eftir að kveikja gula blikkljósið á traktornum þegar ekið er á vegum, en þetta hef ég rekið mig á oftar en einu sinni í sumar. Það eru fleiri sem mættu huga að réttum ljósabúnaði. Ég gat samt ekki annað en brosað þegar tveim bílum fyrir framan mig var lögreglu- bíll við eftirlitsstörf og eftir að hafa ekið á eftir honum í nokkra kílómetra setti bíll- inn á blá viðvörunarljós og sneri við á eftir bíl sem virt- ist aka nokkuð hratt. Eðlilegt umferðareftirlit, nema hvað að eft- irlitsaðilinn var ljóslaus að aftan (það þarf að muna að kveikja ljós þegar ekið er af stað á Landrover). Samkvæmt túlkun þess manns sem ég ráðfæri mig við þegar ég er að skrifa um umferðarreglur, þá vill hann meina að 20.000 sektin fyrir að vera vanbúinn hvað ljós varðar í umferðinni eigi líka við um að gefa ekki stefnuljós, en það eru alltof margir í umferðinni sem virðast ein- faldlega ekki gefa nokkurn tímann stefnuljós. Sem dæmi eru bílarnir þrír sem óku fyrir framan mig fyrir stuttu. Enginn þeirra gaf nokkurn tímann stefnuljós út úr hringtorgunum frá Mosfellsbæ til Reykjavíkur. Rétt loftmagn í hjólbörðum allra farartækja skiptir miklu máli Í Ísafjarðardjúpi var ég að aka undir hámarkshraða um tíma og tók fram úr mér bíll með fellihýsi, en þegar ég ók á eftir honum í um 20-30 km tók ég eftir því að annað hjól fellihýsisins virtist vera með töluvert minna loftmagn en hitt hjólið. Fyrir vikið kom kast á vagninn í hvert sinn sem hann tók beygju, hægði á sér, eða jók hraðann. Það er grundvallaratriði að vagn eða kerra sé með sama loftmagn á öxlinum því annars myndast kast á vagninn við hverja beygju og við hraðabreytingar, því er ágætis regla að mæla loft í dekkjum alltaf áður en lagt er í langferð með aftanívagn. Hólið fá hestamenn úr Skagafirði Í lok síðustu viku ók ég mótorhjóli við fimmta mann um Kaldadal frá Húsafelli á Þingvöll og fljótlega varð ég þess áskynja að það væru hestamenn fyrir framan mig, en mótorhjól og hestar er ekki góð samsetning. Satt best að segja hafði ég smá áhyggjur af ferðafélögum mínum sem voru erlendir gestir mínir. Þegar ég var rúmlega hálfnaður með leiðina yfir Kaldadal kom ég að fylgdarbíl hestamanna og stoppaði við hlið bílstjórans til að láta vita af okkur, bílstjórinn lét fremstu menn vita af komu okkar fimmmenninganna. Eftir smá stund var búið að koma öllum lausu hestunum af veginum og inn í litla spottagirðingu og við liðum áfram hjá hópnum án vandræða. Snilldar vel leyst af hestafólkinu. Svona vinnubrögðum hef ég aldrei áður orðið vitni að og mættu aðrir hestamenn taka þetta til fyrirmyndar og sýna svona liðlegheit við þá sem á eftir þeim koma. 甀爀爀椀爀 䄀䜀䴀 攀愀 猀يح爀甀 爀愀昀最攀礀洀愀爀 昀礀爀椀爀 琀欀椀 漀最 爀切氀氀甀爀 匀欀漀爀爀椀 攀栀昀 ∠ 䈀氀搀猀栀昀椀 ㄀㈀ ∠ ㄀㄀  刀瘀欀 ∠ 㔀㜀㜀ⴀ㄀㔀㄀㔀 ∠ 眀眀眀⸀猀欀漀爀爀椀⸀椀猀 䴀椀欀椀 切爀瘀愀氀 ∠ 吀爀愀甀猀琀 漀最 昀愀最氀攀最 ︀樀渀甀猀琀愀 혀昀氀甀最椀爀 猀琀愀爀琀 爀愀昀最攀礀洀愀爀  洀爀最甀洀 猀琀爀甀洀䠀氀攀猀氀甀琀欀椀 䬀䰀섀刀䤀刀 촀 䈀섀吀䄀一䄀℀ ÖRYGGI – HEILSA – UMHVERFI KROSSGÁTA Bændablaðsins Lausn á krossgátu í síðasta blaði Hjörtur L. Jónsson liklegur@internet.is Smáauglýsingar 56-30-300 RELL ÓSKIPTAN N SLENGJAST S SKORTUR FÁLÁTUR HAFGOLA Þ TROSNA LPUKURS- LEGUR A U M U L E G U R EKOKKA ÓSKUÐU L D A ÁVÍTUR Á K Ú R A IV L D SVALL TUNGUMÁL S L A R K A SJÁ ÞRÆTU L Í T A GATA FÝLA N HLERI RAKKAR LÍTIÐ H U N D A R MANN- FÆLIN BRUÐLA S Ó A JAPLAKK NAFN FTÓNN SIÐS KULVÍS U U L S Á R AFBROT E VÆTL S E Y T L RÁNDÝRK R Ú M T EFNI S I L K I ERFIÐI FÖLNI R O GVÍTT VARKÁRNI Ð G Á T DRYKKUR MAK Ö L MÓTMÆLA RATVÍS A N D Æ F AA A A FENGUR SKÍMA A K K U R NAGDÝRI GLUFA R O T T UTVEIR EINS R LITLAUS TÍSKU G R Á ÆPA ÓBYGGÐIR ÁTT Ö R Æ F I SÉR- HVERJA P R S L GROBBINN SIGTI M O N T I N N SAMTÖK SULL A AÆ A T Ó M SLEIT R A U F VOND TVEIR EINS I L L BRÁÐRÆÐIFRUMEIND N I Æ L R A I Ð N KRAFTUR G A SEPI F L L A TRUFLUN F F FÓÐRA I A P L A A N FÆÐI SKADDAÐ B GALSI H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 155 ÚTDEILDU FREISTING SÆTI PLATA HRÓP- LEGUR NÖLDUR ÖRBIRGÐ SNEPLA SLÖKKVARI KETIL- BUMBUR LYF HÉKK TILDRÖG MYLJAST EINFALT FRÍÐUR TÆTTI NAGLAR ÆTT KROTI TÓNN ELDSNEYTI FÉLAGLASKA TVEIR EINS GÓL ÁVÖXTUR ÁTT KK NAFN GÁ STJÓRN- LEYSI KOSNING SJÁLF KRIKI ÞAMBA HVÍLST PLANTA STYBBA RUGL GOGG ÓGÖNGUR LANDS VÆLIR DÖKKT UNNA MÆLTI ALLTAF VANDRÆÐI EYÐAST YFIRHÖFN KVARÐI RÁMUR KAÐALL UPPISTAÐA GERVIEFNI STÚTUR KRAFS TVÍHLJÓÐI YFIR- BRAGÐ PÚSSA BRIGSLA SKYN- FÆRA SKELFING HRINGIÐA H Ö FU N D U R B H • B R A G I@ TH IS .I S • K R O SS G A TU R .G A TU R .N ET 156 Flott lausn Skagfirðinganna sem voru í hestaferð um Kaldal við að tryggja á skjótan hátt öryggi hesta og vegfarenda. Þeir fá hól frá mér í þetta sinn. Alltaf má bæta sig í umferðinni Aldrei of oft hamrað á þessu. Mynd / VefsíðaSamgöngustofu. Þegar ég ferðast á mótorhjólinu mínu er ekkert sem hræðir mig meira en lausir hestar í hópreið.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.