Bændablaðið - 22.07.2021, Blaðsíða 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202148
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Hagi er landnámsjörð og kirkju-
staður og afi Haraldar Bjarna -
sonar keypti hana upp úr
aldamótunum 1900. Þar var
blandað bú þangað til fé var
skorið niður árið 1982.
Einnig er hlunnindabúskapur í
Haga, egg og dúnn. Líka var þar
um tíma refabú og fiskeldi og grá-
sleppuveiðar voru stundaðar hér
í áratugi.
Ábúendurnir Haraldur og María
Úlfarsdóttir voru í sambýli við
foreldra Haraldar í nokkuð mörg
ár en tóku alveg við fyrir um það
bil 15 árum. Þau hafa aukið við
kvótann og gert endurbætur á fjósi
í þeirra búskapartíð.
Býli: Hagi.
Staðsett í sveit: Á Barðaströnd í
Vesturbyggð.
Ábúendur: Haraldur Bjarnason og
María Úlfarsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við
eigum 3 börn, Kristínu Ingunni, 37
ára, Freyju Rós, 34 ára og Kristófer
Þorra, 29 ára, en öll eru þau flutt að
heiman. Svo eigum við hana Títu
okkar sem er 12 ára tík.
Stærð jarðar? Eitthvað um 7.000 ha.
Gerð bús? Kúabú og ferðaþjónusta.
Fjöldi búfjár og framleiðslu-
magn? Mjólkuframleiðsla er um
200.000 lítrar. Nokkrir skrokkar á ári
fara í nautakjötsframleiðslu. Svo erum
við með tvö sumarhús í ferðaþjónustu.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Við förum í fjósið kl. 7 og svo er
ýmislegt sem tilheyrir almennum
bústörfum og þrif á sumarhúsunum.
Mjaltir eru svo aftur kl. 17.30 og
eftir það reynum við að gera sem
minnst – en það virkar ekki alltaf.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Skemmtilegast er að
vera í heyskap í góðu veðri með
allar vélar í lagi.
Girðingavinna er ekki ofarlega á
vinsældalistanum.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Með svipuðu sniði en trúlega
með meiri áherslu á ferðaþjón-
ustuna.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu á íslenskum
búvörum? Ef vel er haldið á
spöðunum þá má örugglega auka
framleiðslu á flestum sviðum.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Rjómi, skyr og ostur, grænmetissósa.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Nautalund hjá frúnni
en selur hjá eiginmanninum.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Þegar mjaltabásinn var
tekinn í notkun árið 2000.
Grillað lamb og grænmeti
Fjölskyldugrill og góðir gestir
verða ánægðir með mjúkan og
safaríkan lambahrygg með fullt
af grænmeti.
Lambakjöt og grænmeti
Hráefni
› 1 eða ½ lambahryggur
› Ólífuolía
› Krydd, eftir smekk
Fyrir marga er lambakjöt ógnvekj-
andi að elda í heilu, en það er í raun
mjög einfalt að elda á grillinu með
þessum sjö skrefum. Það er meira
reykjarbragðið frá því að grilla yfir
kolum en gasi og það bætir bragðið
af lambinu fullkomlega fyrir þá sem
kjósa það. Einfaldlega eldið allan
hrygginn þar til hann nær viðeigandi
hitastigi og skerið síðan í ljúffengar
bleikar kótelettur.
1. Snyrtið og hreinsið lamba-
hrygginn eins og þið viljið með
eða án fitu, í Frakklandi er skorin af
fitan svo rifbein sjást fyrir eldun, en
Íslendingar elska mömmuhrygginn
með allri fitunni.
Það er ekki erfitt að gera það sjálfur.
Fyrst skuluð þið nota beittan hníf til
að skera umfram fituna og hreinsa
beinin, ef það er kosið, af rifjunum.
2. Setjið upp tvo skammta af kolum,
mismunandi háa stafla (ef gas er
notað er heitur hluti og kaldari
hluti).
Þegar kolin eru heit, þá rétt áður en
þið setjið lambahryggina á ristina,
dýfið upprúlluðum eldhúspappír í
matarolíu og penslið fitu á grindina.
3. Það gæti kviknað í meðan
á grillinu stendur, svo það er
mikilvægt að verja hrygginn með
smá vatni og jafnvel með álbakka
(álpappír) undir fituna. Penslið
lambið með ólífuolíu og kryddið
síðan kjötið með uppáhalds RUB-
eða jurtakryddinu ykkar. Lambakjöt
er viðkvæmt bragð svo notið
einfalda blöndu af salti, pipar og
ferskum kryddjurtum eins og timjan
eða myntu sem virkar fullkomlega.
4. Ef það kemur upp blossi skuluð þið
færa lambahrygginn á svalari hliðina
þar til loginn dvínar. Verið viss um að
velta hryggnum svo þið fáið fallegan
brúnan lit á allar hliðar kjötsins.
5. Ljúkið við eldun á kaldari parti
grillsins.
Langtíma eldun fer fram á kaldari
hluta grillsins til að ljúka matreiðsl-
unni.
Tími fer eftir þyngd u.þ.b. 15 til
40 mínútna matreiðslutíma, háð
stærð. En ekki treysta á klukkuna.
Verið viss um að hafa góðan kjöt-
hitamæli við höndina til að mæla
kjötið og ná æskilegu hitastigi og
ofeldið það ekki.
6. Hryggurinn er miðlungs steiktur
við 60 gráður, vel steiktur við
65-70 gráður og hærra. Lambakjöt
getur tekið á sig aðra áferð við
moðsteikingu eða svo kallað mömmu
lamb sem dettur af beininu.
7. Hvílið kjötið fyrir skurð, sneiðið
og framreiðið með góðu grænmeti
og uppáhaldssósunni.
Þegar það er gert skuluð þið taka
grindina af grillinu og láta það
hvíla, lauslega hulið með álfilmu,
í 10 til 15 mínútur áður en það er
skorið í sneiðar. Þessi hvíldartími er
nauðsynlegur til að leyfa safanum að
dreifa sér á ný um kjötið. Með góðum
beittum hníf skuluð þið sneiða niður
á milli beina til að búa til kótelettur.
Grillaðar sætar kartöflur
Grillaðar sætar kartöflur henta vel
sem meðlæti við hverja matreiðslu.
Eins og annað rótargrænmeti, svo
sem rófur og kartöflur, og skila þau
sínu besta bragði á grillinu.
Þær eru sykurríkt grænmeti, sem
getur líka auðveldlega brunnið,
fylgist vel með sætu kartöflunum
þegar þeir eru á grillinu. Þið viljið
hafa þær mjúkar en ekki svartar
að utan.
Toppið grilluðu sætu kartöflurnar
ykkar með rifnum osti, ferskum
kryddjurtum, eða jafnvel ögn af
appelsínusafa og stráið púðursykri
yfir fyrir sætara meðlæti.
Hráefni
› 1 sæt kartafla
› ólífuolía
› nýmalaður svartur pipar
› salt
Skerið sætu kartöfl-
una í fjórðunga eða
sex hluta.
Setjið sætu kartöflu-
bátana í stóra skál og
veltið þeim vel upp
úr olíu, pipar, salti og
kryddi að eigin vali.
Hitið grillið í 205
gráður.
Setjið sætu kart-
öflurnar á grillið í
röð til að auðvelda
röðina á þeim að
snúa eða „velta“
þeim.
Grillið í 20 til 30
mínútur og snúið
þeim á 4 til 5 mín-
útna fresti.
Takið af grillinu og
berið fram strax.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Hagi
Haraldur Bjarnason og María
Úlfarsdóttir.
Mynd / Edda Kristín Eiríksdóttir
Eftir að myndin var tekin bættist afa- og ömmustelpa í hópinn, hún Vaka.