Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 50

Bændablaðið - 22.07.2021, Qupperneq 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 22. júlí 202150 Um þessar mundir eru tíu ár síðan fyrstu vefnaðarvörurnar undir vörumerkinu Lagður fóru á markað. Af þessu tilefni var efnt til afmælishátíðar að Hólabaki í Húnavatnshreppi á föstudaginn síðastliðinn. Það rigndi eins og hellt væri úr fötu þetta síðdegið, en Húnvetningar létu það ekki aftra sér og fjölmenntu til að samfagna Hólabaksfjölskyldunni. Boðið var upp á heimabakaðar tertur og grill- aðar pylsur, sem um 150 gestir gerðu góð skil. Tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi mætti á svæðið og tók lagið fyrir viðstadda af sinni alkunnu snilld. Fjölbreytt starfsemi Hólabak er staðsett í hjarta Húnaþings. Bærinn ber nafn sitt af Vatnsdalshólum sem er kennileiti sem margir þekkja. Á Hólabaki er búið með nautgripi og hross, en jafnframt er þar starfrækt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu hágæða vefnaðar- og gjafavara. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjunum LAGÐUR og TUNDRA. Í lagerhúsnæði fyrirtækisins er einnig rekin verslun. Á Hólabaki búa þrjár kynslóðir. Björn Magnússon og Aðalheiður Ingvarsdóttir keyptu jörðina 1972 og hafa byggt upp og hlúð að síðan. Ingvar Björnsson og Elín Aradóttir hafa búið á Hólabaki ásamt börnum sínum þremur, Aðalheiði, Ara og Elínu, síðan 2013. Þau reka kúabúið í dag, sem og gjafavöruframleiðsluna. Þingeyskur hrútur í aðalhlutverki Vörumerkið Lagður rekur uppruna sinn til íslensku sauðkindarinnar, nánar tiltekið til hrútsins Lagðs frá Brún í Þingeyjarsveit. Lagður er því hrútsnafn. Orðið er stytting á orðinu ullarlagður, sem merkir lokkur eða hnoðri af kindaull. Hrúturinn Lagður var í eigu foreldra Elínar og var fyrsta varan, sem framleidd var, prýdd ljósmynd af Lagði. Fyrstu vörur fyrirtækisins fóru á markað í júlí 2011, en þá var starfsemin rekin í smáum stíl meðfram annarri vinnu, en eigendurnir áttu á þeim tíma heima á Akureyri. Árið 2013 flutti fjölskyldan að Hólabaki. Áherslan var í fyrstu á framleiðslu púðavera með ljósmyndum úr íslenskri náttúru, sem f.o.f. var dreift í heildsölu í gjafavöru- og ferðamannaverslanir. Í dag hafa margar fleiri vörurtegundir bæst við, s.s. svuntur, rúmfatnaður, postulín, ýmis eldhúsvarningur og fleira. Fjörtíu og níu þúsund púðaver Starfsemin hefur með tímanum þróast mikið. „Við bjóðum nú fjölbreyttar vörur og jafnframt hefur smásala hér heima í búðinni, sem og í gegnum vefverslunina okkar tundra.is aukist,“ segir Elín. Heildsala á púðaverum er þó enn mikilvægur hluti starfseminnar, þó svo að Covid hafi vissulega sett strik í reikninginn á síðasta ári, enda sala til ferðamannaverslana í algjöru lágmarki. „Við höfðum sett okkur það markmið að ná að selja fimmtíu þúsund púðaver fyrir tíu ára afmæli fyrirtækisins, en það náðist því miður ekki. Ríflega fjörtíu og níu þúsund er nú samt bara nokkuð góð tala og við erum stolt af okkar árangri,“ bætir Elín við. Fegurðin við fætur þér Íslensk náttúra og nánasta umhverfi hefur frá upphafi verið innblástur vöruhönnunar hjá fyrirtækinu. Þannig hafa ljósmyndir af gróðrinum í vegkantinum á heimreiðinni á Hólabaki orðið að myndskreytingum á rúmfatnaði og postulíni. Fjallahringurinn hefur verið prentaður á silkislæður og ljósmyndir af húsdýrum og nálægum náttúruvættum hafa ratað á púðaver og svuntur svo eitthvað sé nefnt. „Við kappkostum að nýta þjónustu innlendra aðila hvað varðar aðföng og útfærslu eins og kostur er. Stór hluti saumaskapar er á höndum fagfólks á íslenskum saumastofum. Þannig viljum við stuðla að atvinnusköpun og tryggja yfirsýn. Þetta er mjög mikilvægt í okkar huga,“ segir Elín. Kostir og gallar við staðsetninguna En er eitthvert vit í því að reka gjafavörufyrirtæki í fámennu héraði á landsbyggðinni? „Okkar staðsetning hefur bæði kosti og galla. Þó heimamarkaður sé vissulega lítill, þá eigum við hér afar trygga viðskiptavini. Almennt finnum við fyrir mikilli velvild í garð okkar starfsemi. Hér eru ekki starfandi mörg fyrirtæki á okkar sviði og því auðvelt að vera sýnilegur,“ segir Elín. „Fjarlægðin frá höfuðborgarsvæðinu og stærri markaði, getur auðvitað vera hamlandi að einhverju leyti, sérstaklega þegar litið er til kostnaðar og flækjustigs við að koma frá okkur vörum og til okkar aðföngum. Við höfum síðan í lok árs 2018 rekið vefverslun og svo lengi sem Pósturinn býður upp á þjónustu hér í héraðinu, þá er þetta ekki verri staður en hver annar fyrir slíkan verslunarrekstur.“ Bjartsýn á framtíðina Nú virðist sem ferðaþjónustan hérlendis sé aftur að komast á skrið. „Við sjáum merki um aukna eftirspurn hjá okkar viðskiptaaðilum. Við erum í heildsöluviðskiptum við margar ferðamannaverslanir og þar eru menn greinilega að komast aftur í gírinn.“ Varðandi íslenskan gjafavörumarkað þá er ekki ástæða til annars en bjartsýni. „Heimilið er okkar griðastaður og þar viljum við hafa í kringum okkur hluti sem hafa tilgang og láta okkur líða vel. Nú á tímum ofgnóttar held ég að sífellt fleiri séu að verða meðvitaðri um að velja sér frekar færri og vandaðri hluti til að hafa í kringum sig. Eitt af því sem heimsfaraldurinn hefur líka kennt okkur er að líta okkur nær og huga að því hvernig hægt er að styðja við íslenska framleiðslu og efla okkar eigið hagkerfi um leið,“ segir Elín að lokum. /EA-ehg Lely Center Ísland Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ASPLA rúlluplast frá 9.900.- + vsk. Það hefur gengið mjög vel og greinilegt að gestir eru ánægðir með að eiga þess kosta að kaupa veitingar hér,“ segir Ann-Marie Schlutz, frumkvöðull á Egilsstöðum í Fljótsdal. Hún opnaði nýverið matarvagn handan árinnar á móts við upphaf göngustígsins inn að Hengifossi í Fljótsdal. Hengifossárgil í Fljótsdal dregur að sér fjölda gesta ár hvert. Það er ekki síst Litlanesfoss, sem einnig hefur borið nafnið Stuðlabergsfoss sökum fagurra stuðla sem umlykja fossinn, og Hengifoss í botni gilsins sem er einn hæsti foss landsins. Fyrr í sumar opnaði Ann-Marie matarvatn við upphaf leiðarinnar, en vagninn gengur undir nafninu Hengifoss Food Truck. Ann-Marie á veg og vanda að rekstri Sauðagulls ehf. sem þróað hefur gæðavörur úr sauðamjólk, enn einn draumur hefur að hennar sögn ræst með rekstri matarvagnsins. Þar verður hægt að gæða sér m.a. á súpu, vöfflum, sauðamjólkurís og heitum og köldum drykkjum. Allt seldist upp Matvara sem er mikið til úr stað- bundnum og ferskum hráefnum sem framreidd eru af ástríðu og kjörin í maga eftir góðan göngutúr upp gilið. „Það seldist allt upp hjá mér einn sunnudaginn, m.a. allur ís sem ég var búin að framleiða. Það er greinilegt að fólk er meira en til í að prófa sauðamjólkurísinn og það á líka við um börnin sem mér finnst alveg frábært,“ segir Ann-Marie. „Fólk er ánægt með að eitthvað sér að ger- ast við Hengifoss, það koma margir þar að og nú loks er hægt að kaupa þar veitingar.“ Bæði Íslendingar og útlendir ferðamenn hafa undanfarið verið á svæðinu að hennar sögn. /MÞÞ Matarvagn settur upp við leiðina að Hengifossi: Góðar viðtökur og ánægja með framtakið Ann-Marie á Egilsstöðum á Fljótsdal hefur komið upp matarvagni við upphaf gönguleiðar að Hengifossi. LÍF&STARF Lagður 10 ára: Húllumhæ á Hólabaki Elín Aradóttir og Ingvar Björnsson, eigendur gjafavörufyrirtækisins á Hólabaki. Ari Ingvarsson og Ari Teitsson sáu um að grilla fyrir gesti. Eyþór Ingi tók lagið við góðar undirtektir.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.