Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 33
i
I
Frd stofnfundinum á Akranesi.
Sjálfsbjörg á Suðurnesjum keypti Pop-
Corn-vél til þess að skapa fötluðum hjón-
um atvinnu. Hafa þau haft af henni drjúg-
ar tekjur.
Sjálfsbjörg á Akureyri hefur að vanda
mörg járn í eldinum, því að auk undir-
búnings að stofnun endurhæfingarstöðvar,
er unnið af krafti að uppbyggingu plast-
verksmiðjunnar í Bjargi.
Sjálfsbjörg í Reykjavík heldur uppi öfl-
ugu félagslífi, enda eru félagarnir þar
flestir. Með tilkomu Sjálfsbjargarhússins
mun það flytja alla sína starfsemi þang-
að. —
Mörg félög hafa tekið upp blómasölu,
þar sem seld eru afskorin blóm. Hefur
blómasalan orðið þeim drjúg tekjulind.
Auk þess, sem hér hefur verið talið,
hafa félögin, hvert á sínum stað, unnið
ötullega að framgangi þeirra mála, er til
heilla horfa fyrir samtökin í heild. En
styrkur samtakanna felst einmitt í því, að
sérhver leggi sitt litla lóð á vogarskál-
ina. Er það von mín, að þið takið öll virk-
, an þátt í félagsstarfinu á komandi vetri.
Með félagskveðju.
P. S.
Nokkrir félaganna úr Stykkishólmi.
SJÁLFSBJÖnG 33