Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 14

Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 14
Jökull Jakobsson: Ping, Pong og tröllin í fjöllunum Munnmœlasaga frá 20. öld Það var einn morgun í öndverðum hey- önnum að Éljir jötunn lagði frá sér tafl- borðið og kallaði út um hellismunnann á dóttur sína Lúsk, þar sem hún sat efst í Henglinum og táði maríuull á himni, hnoðaði saman skýflókum og bjó til ill- viðriskúlur sem hún þeytti af alefli í átt- ina til Bláfells, þar sem bjó frændi hennar Kúfur með foreldrum sínum. Raunar hafði ekki til þeirrar fjölskyldu heyrzt í 200 ár og vissu þau í Henglinum ekki hvort frændur þeirra væru lífs eða liðnir. En ekki átti Lúsk völ á öðrum leiksystkinum. Hún var, er þetta er ritað, nær fimm hundruð vetra og því gjafvaxta mær að tröllatali. Hættu nú iðju þessari, þrumaði Éljir jötunn, mun láta nærri að sálfræðingar kölluðu slíkt síbernsku ellegar öðru nafni infantelisma og er illt afspurnar meðal trölla. Sestu nú á kné mér, hafa mér lengi leikið landmunir að ræða við þig í trúnaði svo sem siður er föður og dóttur og al- gengt einmitt á þeim aldri sem upplúkast leyndardómar lífsins fyrir unglingunum. Þú ert nú gjafvaxta og mál til komið að þú hættir að leika þér að skýjum, en horf- ist í augu við líf vort trölla. Éljir jötunn tók sér nú nokkra málhvíld, Teikning: Ragnar Lár. kveikti í pípu sinni og tottaði hana fram eftir sólmánuði, á úthallandi sumri tók hann síðan aftur til máls og lagði þunga krumluna á úfið hár dóttur sinnar þar sem hún sat á kné honum og gapti mjög, því að hún hafði eigi vanist því að faðir hennar ástundaði málæði af þessu tæi og aldrei fyrr hafði hún heyrt hann viðhafa raus um óhlutlæg efni. Ókyrrðist hún nokkuð í sessi, en er faðir hennar hafði lamið hana nokkrum sinnum í hausinn með sleggju, sefaðist hún og lagði við eyru. Nú er þar til máls að taka, sagði Éljir jötunn, að staða okkar trölla í heiminum hefur versnað til milla muna á undanförn- um öldum. Mín kynslóð verður því miður að játa að við skilum af okkur verri heimi í hendur börnum okkar. Þar sem áður ríkti styrjöld, pústrar og hrundingar, þar er nú illu heilli friður, ársæld og slappleiki. Til þess hníga ýmis rök þung að svo mjög hefur sigið á ógæfuhlið. Veldur því meðal annars fyrirbrigði sem óþekkt var í minni æsku en nú hefur því nær sligað trölllíf í heiminum. Það er firringin, sem svo er nefnd, á fagmáli verfremdung, það er eit- urgas, sem fundið var upp á leynilegum 14 SJÁLFSBJÖRG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.