Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 20

Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 20
Frá sjónarmiði hagfræði getur vaknað sú spurning, hvort ekki sé einfaldast að sjá slíku fólki sómasamlega farborða á beinan kostnað ríkisins og af almannafé. Við það mundi sparast ýmiss kostnaður og umstang. Augljóst er, að slíkt fyrirkomu- lag fær þó ekki staðizt. Hverjum ríkissjóði mundi verða ofviða að sjá öllu slíku fólki sómasamlega farborða frá sjónarmiði kostnaðar. Nú er það alkunna, að fullar örorku- bætur almannatrygginga frá Trygginga- stofnun ríkisins, nema í dag kr. 4525,00, fyrir einhleypan mann eða konu. Það er jafnframt vitað, að enginn lifir sómasam- lega af þeirri upphæð nú á tímum. Til þess að bjargast af þeirri upphæð, sem ríkið lætur í té í þessu formi, þarf fólkið að hafa einhverja aðstoð aðra, frá venzlafólki eða öðrum, og ókeypis húsnæði. Eða það þarf að bæta sér upp bæturnar með einhverri atvinnu. Það hefur sýnt sig og sannað, að hag- kvæmasta lausnin er sú að endurhæfa ör- yrkja, að gera þá færari til hreyfinga, til sjálfsbjargar, til vinnu. Því er ekki að neita, að endurhæfing er kostnaðarsöm og krefst mikils starfsfólks. Á hinn bóginn telst endurhæfingarstarfsemi nú til sjálf- sagðrar þjónustu heilbrigðisyfirvalda gagnvart fólki í landinu og borgar sig tvímælalaust frá peningalegu sjónarmiði. Benda má á staðreyndir þessu til sönn- unar. Skýrsla þeirrar deildar í heilbrigðis- málaráðuneyti Bandaríkjanna, sem hefur með endurhæfingarmál sjúkra og slasaðra að gera, upplýsir, að á árinu 1966 voru tvö hundruð þúsund manns endurhæfðir til starfa í því landi á vegum opinberra aðila. Þannig hefur þar í landi um það bil einn maður af hverjum þúsund hlotið fyrir- greiðslu í formi endurhæfingar til starfa. Sagt er frá því í skýrslunni, að heildar- tekjur þessara tvö hundruð þúsund manna hafi verið meira en 350 milljónir dala á ári. Ekki er tekið fram, hversu mikið þessi starfsendurhæfing kostaði ríkið, en frá því er skýrt, að þessar 200 þúsundir manna greiði í útsvar og skatta sexfalt meira en starfsendurhæfingin kostaði. Þetta þýðir, að starfsendurhæfing borgar sig í því landi, sem tölurnar eru nefndar frá. Þá er það að sjálfsögðu ekki reiknað með þeim kostnaði, sem fer í að byggja og hef ja rekstur starfsendurhæfingarstofnana. — Hvað við kemur okkar landi þarf vitaskuld að kljúfa þann kostnað, áður en farið er að tala um ágóða fyrir ríkið af starfs- endurhæfingu. En ég vil gera stuttan tölu- legan samanburð á íslandi og Bandaríkj- unum í þessum málum. Ef tvö hundruð þúsund manns hlutu starfsendurhæfingu í Bandaríkjunum árið 1966, ættu tölulega um tvö hundruð manns að hafa hlotið slíka þjónustu hér á landi á því ári miðað við fólksfjölda. Miðað við sambærilegar tekj- ur hér og þar, ættu þessir tvö hundruð menn hér á landi að hafa haft um 30 mill- jón króna tekjur á ári. Ég er ekki fróður um útreikninga út- svars og skatta, en álít, að ríki og bæjar- félög hefðu fengið einhvern vænan hluta af þessum milljónum í sinn hlut aftur til mótvirðis þeim kostnaði, sem útlegðist fyr- ir starfsendurhæfinguna. Og það ber að athuga, að hér er aðeins talað um tekjur eins árs og skatta eins árs, borið saman við útgjöld við starfsendurhæfingu 1 eitt skipti fyrir öll, eða því sem næst. Þessi staðreynd, að starfsendurhæfing borgar sig í beinhörðum peningum, hefur alllengi verið þekkt, og í mörgum löndum hefur á síðustu áratugum verið kappkostað að koma upp stofnunum, þar sem starfsendur- hæfing fer fram. Hins vegar er það ekki nóg, að endur- þjálfa eða endurhæfa manneskju til starfa eftir sjúkdóm eða slys. Atvinna þarf að vera í boði og á því vill verða misbrestur, jafnvel á þeim tímum og í þeim löndum, 20 SJÁLFSBJÖRG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjálfsbjörg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.