Sjálfsbjörg - 01.07.1970, Blaðsíða 34
í sumar hefur framkvæmdum við Vinnu-
og dvalarheimilið miðað vel áfram. Unnið
hefur verið við hita- og hreinlætislagnir,
múrverk og raflögn, og verður því væntan-
lega lokið snemma í vetur.
Um síðustu áramót voru komnar í bygg-
inguna rúmar 25 milljónir króna. Á þessu
ári er áætlað að vinna fyrir um 16 milljónir
króna.
Byggingarstig hússins um næstu ára-
mót verður þá þannig, að múrverki, hrein-
lætis- og hitalögnum verður að fullu lok-
ið, vinna við málingu hafin, og raflögn á.
lokastigi.
Tvær lyftur verða komnar, fólkslyfta
við aðalinngang og vöru- og þjónustulyfta
í austurenda hússins. Vinna við tækja-
búnað og innréttingar eldhúss verður vel
á veg komin.
Húsakynni œfingastöðvarinnar
á 1. hœð.
Vinnu-og dvalarheimili Sjálfs-
bjargar í byggingu
Þá munu í sumar fara fram lagfæringar
á lóð við aðalinngang. Allt, sem við kem-
ur skipulagningu á húsinu liggur nú fyrir
og hefur byggingarnefndin lagt mikla
vinnu í að hafa allt sem þægilegast fyrir
íbúana. í þessu sambandi hefur nefndin
fengið mikið af gögnum frá Norðurlönd-
unum, sérstaklega Danmörku og Sví-
þjóð.
Skipulagning heimila fyrir mikið fatl-
að fólk í þessum löndum er til fyrirmynd-
ar og er sú stefna ríkjandi, að allt sé gert,
til þess að mikið fatlaður einstaklingur
geti hjálpað sér sem mest sjálfur, með að-
stoð hjálpartækja.
í þessu efni mun ekkert verða sparað til
Vinnu- og dvaiarheimilis Sjálfsbjargar, en
reynslan mun sýna, hvernig til tekst.
Frá 2. hœð. Séð úr anddyri inn í hluta af matsal.
Herbergi starfsfólks fjœr.
Norðurhlið — aðalinngangur.
34 SJÁLFSBJÖRG
SJÁLFSBJÖRG 35