Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Side 13

Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Side 13
í lagasetningu. í þeim efn- um vil ég geta laganna um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, sem eru snar þáttur í forvarnar- starfi vegna slysahættu og þeirri hættu sem atvinnusjúk- dómar geta haft í för með sér til varanlegs tjóns fyrir heilsufar fólks. í þessu sam- bandi má einnig benda á lög- in um húsnæðismál, sem sam- þykkt voru síðastliðið vor og auka að mun fjölda fé- lagslegra íbúðabygginga í landinu og auðvelda þannig fötluðum að komast í tryggt húsnæði, en fatlaðir eru oft- ast lágtekjufólk. I nýju hús- næðislögunum eru einnig ákvæði um að heimilt sé að veita sérstök lán vegna breyt- inga á húsnæði í þágu fatl- aðra og er ánægjulegt að þau ákvæði skuli komast til fram- kvæmda í grennd við alþjóða- árið. Áður eru nefnd lögin um umbætur á opinberum byggingum og frumvarpið um málefni fatlaðra. Verður þessari upptalningu ekki haldið lengur áfram, þó enn mætti margt fram telja. Hvað svo ? Ég tel að óhætt sé að full- yrða að margt hafi áunnist á þessu alþjóðaári, bæði í at- höfnum og orðum, ekki síst í þá átt að auka og glæða skilning landsmanna á hög- um fatlaðra. En ekki er nóg að gert og tilgangur aiþjóða- ársins er ekki síst sá að minna okkur öll á það að margt er ógert og víða er þörf fyrir athöfn og jákvæð viðhorf í þágu jafnréttis fatlaðra. Von- andi skilur alþjóðaár fatlaðra eftir sig spor jákvæðra við- horfa meðal íslendinga, ekki aðeins þar til árið rennur í aldanna skaut, heldur einnig um alla framtíð. Jafnrétti fatlaðra er krafa sem verð- ur alltaf og ætíð að lifa með- al okkar ef við viljum kalla okkur menningarþjóð. Upplýsingarit um réttindi fatlaðra hjá Almanna- tryggingum Tryggingastofnun ríkisins hefur að ósk framkvæmda- nefndar alþjóðaárs fatlaðra tekið saman ítarlegt upp- lýsingarit um réttindi fatl- aðra hjá almannatrygging- um, varðandi bætur vegna sjúkdóma eða slysa. I ritinu er einnig að finna upplýsingar um hvert leita skuli fyrirgreiðslu varðandi hin ýmsu málefni fatlaðra. Ritið er gefið út í tilefni alþjóðaárs fatlaðra og verð- ur meðal annars fáanlegt hjá öllum umboðsmönnum Tryggingastofnunar ríkisins. SJÁLFSBJÖRG 11

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.