Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Page 14
Lítil ferðasaga
Síðastliðið sumar lagði ég
land undir hjól og brá mér
í skemmtireisu í Vesturveg,
nánar tiltekið til Miami
Beach í Florida.
Ég var með hópi af
skemmtilegum krökkum sem
útskrifuðust úr Verslunar-
skóla íslands nú í vor. Lagt
var upp frá Keflavík eftir að
undur Fríhafnarinnar höfðu
verið könnuð nokkuð. Til
Miami kom svo hópurinn eft-
ir 12 tíma ferðalag með milli-
lendingu í þeirri heimsins
borg New York. Strax á
leiðinni frá New York til
Miami fékk maður að sjá
dæmi um mikilleik þeirra þar
vestra, þar sem engu líkara
var en maður væri á ferð í
fljúgandi kvikmyndahúsi,
nema hvað þetta hafði það
fram yfir kvikmyndahúsin,
að þarna var boðið upp á
mat.
Þegar komið var á flug-
völlinn í Miami, skall hita-
bylgja á manni og þótti okk-
ur snjókörlunum nóg um þar
sem maður á ekki slíku að
venjast hér uppi á íslandi.
Þegar á hótelið kom, komst
ég að því að það er víðar en
hér heima sem ekki er gert
ráð fyrir fólki í hjólastól-
um. Það fyrsta sem mætti
mér var ein stór trappa. Við
nánari rannsókn á hótelinu
kom í ljós að nokkur hluti
jarðhæðarinnar var töluvert
lægri en hinn. Voru þrjár
tröppur þar niður. Að vísu
hafði verið gerð virðingar-
verð tilraun til að bæta úr
því, með því að setja ská-
braut á tröppurnar, sem sá
galli var á gjöf njarðar að
hún var svo snarbrött að eng-
in leið var að komast upp
né niður hjálparlaust. Þegar
inn á herbergi kom og sal-
emin könnuð, kom í ljós að
dyrnar voru það mjóar að
ég hefði ekki komist inn,
nema aðeins vegna þess að
Jóhann Pétur Sveinsson.
12 SJÁLFSBJÖRG