Sjálfsbjörg - 01.07.1981, Síða 33
Hrafn Sœmundsson:
Einstaklingurinn
Nálega allir menn eiga sér
sameiginlegt markmið.
Þetta markmið er ekki allt-
af byggt á rökrænni hugsun.
Þetta markmið, sem flestir
eiga sameiginlegt, er persónu-
leg velgengni, ánægja og lífs-
fylling.
Margir vinna að þessu
markmiði á skynlítinn hátt.
Kannski flestir. Menn ana
áfram og reyna að kreista
meira og meira út úr lífinu.
Nýjum og nýjum þörfum
þarf að fullnægja.
1 þessu kapphlaupi bíða
margir varanlegt tjón. Meiri
og meiri eigingirni, meiri og
meiri sjálfselska eyða þeim
forða af hugsun, sem mönn-
um er gefin, og möguleikun-
um til að nota hana. Eftir
stendur oft sjúk sál í heil-
brigðum líkama.
Afleiðing þessa andlega
ástands er til að mynda
streituþjóðfélagið okkar. Af-
leiðingar þessa ástands eru
meiri hraði, fleiri slys, skyn-
lausara tækniþjóðfélag og
minni réttlætiskennd.
Einstaklingurinn skapar
sér sjálfur lífsstíl, hvort sem
hann vinnur markvisst að
því eða ekki. Einstaklingur-
inn skapar líka þjóðfélagið
sem hann býr í, hvort sem
hann veit það eða ekki. Öll
þróun á upptök sín í ein-
staklingnum.
Þróun einstaklingsins í nú-
tímaþjóðfélagi byggist á and-
legu atgervi hans en ekki lík-
amlegum burðum. Gerð þjóð-
félagsins og aðbúnaður með-
lima þess fer eftir því hvern-
ig andlegum eiginleikum ein-
staklingsins er beitt.
Hlutur til að teikna í mvrkri með
Magnús Gestsson. Júni 1981
SJÁLFSBJÖRG 31