Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 9

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Síða 9
ingarskjöl fyrir þátttökuna. Þetta hefur mælst vel fyrir meðal barna, foreldra og sund- ráðsins. Það var Hildur Jóns- dóttir, fyrrum formaður félags- ins, sem átti hugmyndina að þessu og tilgangurinn með mótshaldinu er sá að ýta undir áhuga æskulýðsins á sundi og öðrum íþróttum. Auk þessa almenna félags- lífs er félagið upplýsingamiðill fyrir þá sem á þurfa að halda. Við reynum að veita þá aðstoð sem við getum. En því er ekki að neita að félagið virðist virka fráhrindandi á yngra fólk og það leitar ekki til okkar nema það þurfi beinlínis á aðstoð okkar að halda, td. við bílamál sín.“ Að halda í sér í Herjólfi - Hvernig hafa ferlimálin gengið hér í Eyjum? “Svona upp og ofan. Það kom kippur á ári fatlaðra. Þá var aðgengi lagað víða, td. um borð í Herjólfi. Þar var klefum breytt og salerni á þilfari lagað. Áður höfðu fatlaðir þurft að halda í sér þá þrjá tíma sem ferðin tekur. Við komum oft með ábendingar um úrbætur á aðgengi og þeim er oftast vel tekið. En það er ekki nærri nóg að gert. Sjálfsbjörg hefur áheyrnar- fulltrúa í byggingarnefnd bæjarins og við getum sagt álit okkar á öllum nýbyggingum. Við vorum td. kölluð á fund vegna félagsheimilis sem Landakirkja er að byggja og eftir þann fund voru allir sáttir. Það er mikill kostur að geta haft áhrif með þessum hætti. Fólk heldur oft að hlutirnir séu í lagi en svo vantar kannski herslumuninn. Iðulega er um „Ég held að margír þeir sem heilir eru hefðu gott af að kynna sér viðhorf fatl- aðra.“ sáraeinfalda og ódýra hluti að ræða, td. að snúa við hurðum á salernum. Slíkar lagfæringar eru einungis spurning um vilja.“ Pólitík hefar ekki heiilaö mig - Hvernig finnst þér stjórn- málaflokkarnir standa sig í málefnum fatlaðra? “Stefna þeirra í okkar málum er yfirleitt afskaplega huggulega upp sett í stefnu- skrám flokkanna, en reyndin er oft önnur. Það hefur til dæmis orðið afturför í bíla- málum fatlaðra. Fatlaðir þurfa oft stærri og dýrari bíla en aðrir. Áður fengu þeir sölu- skatt og aðflutningsgjöld niðurfelld en nú fá þeir fasta upphæð sem oft er mun lægri. Ég keypti mér bíl í vor og lenti í tveimur gengisfellingum. Við Viðtal það hækkaði verð bílsins um 100 þúsund og það fékk ég ekki bætt. Ætli ráðherrar hefðu ekki haft einhver ráð með að bæta sér svonalagað upp? Ég hef sem betur fer góða vinnu og þess vegna efni á að kaupa mér bíl við hæfi. En alltof margir fatlaðir hafa lítil fjárráð. Það er gaman að ferðast með fötluðum. Þeir eru glaðvær hópur á ferðalögum þótt þeir komist ekki langt fyrir eigin rammleik. Ég held að margir sem heilir eru hefðu gott af að kynna sér viðhorf fatlaðra.“ - Hefur þú ekki verið virkur í stjórnmálum sjálfur? “Nei, ég er alveg fráhverfur því að starfa í stjórnmálum. Ég hef mína skoðun en pólitíkin hefur ekki heillað mig.“ - Fyrir síðustu þingkosn- ingar varð nokkur umrœða um sérframboð fatlaðra. Hvað finnst þér um slíka hugmynd? “Mér fannst umræðan um það ekki nógu trúverðug. Það virtist ekki vera nógu mikil samstaða, það var eins og vinstri vængurinn væri of ráð- andi. Þessi félagsskapur má ekki fá á sig pólitískan lit, til þess eru málefni hans of mikil- væg.“ Þarna settum við amen á eftir efninu. Eftir að hafa drukkið kaffi og spjallað við heimilisfólkið fór Richard með mig í bíltúr um Heimaey og ég held að hann myndi sóma sér prýðilega sem leiðsögumaður. Og einu tók ég eftir: hann var greinilega vel kynntur í bænum, hann var stöðugt að heilsa fólki, ungu sem gömlu, og undantekningarlaust uppskar hann sólskinsbros á móti. Kannski var það veðrið, eða þjóðhátíðarskapið, og þó... - ÞH SJÁLFSBJÖRG 7

x

Sjálfsbjörg

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.