Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 11
Færumst smám
saman í átt til
jafnréttis
Rœtt uið Jóhann Pétur Sueinsson,
nýkjörinnformann Sjálfsbjargar
Á þingi Sjálfsbjargar,
landssambands fatlaðra,
sem haldið var í lok maí
gerðust þau tíðindi að
Theodór A. Jónsson lét af
formennsku í samband-
inu eftir 28 ára starf. Við
tók Jóhann Pétur Sveins-
son lögfræðingur. Blaða-
maður Sjálfsbjargar tók
Jóhann tali og spurði
hvernig honum litist á að
taka við af Theodóri.
“Það leggst nokkuð vel í mig.
Að vísu er ekki auðfarið í hjól-
för Theodórs en það tekst von-
Félagsmál
andi með hjálp góðra manna.
Það er hörkulið í framkvæmda-
stjórninni og við njótum auk
þess áfram starfskrafta Theo-
dórs.“
- Ætlarðu að verða jafn
þaulsetinn í formannssœtinu og
forveri þinn?
“Ætli ég láti mér ekki nægja
25 ár! En svona grínlaust þá
verður tíminn að leiða það í
ljós hvort ég nýt trausts. Ef til
vill verður mér sparkað eftir
tvö ár!
Þróunin í félögunum hefur
verið sú að takmarka veru
manna í stjórn við svona 6-8 ár
og það hefur borið á tilraunum
til að koma slíkum ákvæðum
inn í lög landssambandsins. Ég
á von á því að þess verði ekki
langt að bíða að svo verði. í
sambandinu er líka mikið af
góðu fólki sem hefði gott af að
spreyta sig á stjórnarstörfum.“
- Hefur þú lengi verið virkur
í Sjálfsbjörg?
“Ég hef verið nokkuð virkur
í seinni tíð. Ég er úr Skagafirð-
inum en var ekki virkur þar,
enda iá ég mikið á sjúkra-
húsum og var langdvölum að
heiman. Þátttaka mín hófst
árið 1975 þegar ég fluttist í
Sjálfsbjargarhúsið og hóf nám í
MH en þá kynntist ég starfi
Reykjavíkurfélagsins. Ég tók
þátt í almennu félagsstarfi og
þegar Vilborg Tryggvadóttir lét
af störfum ritara árið 1980 sett-
ist ég í stjórn. Ég hef verið í
ýmsum nefndum og fulltrúi í
stjórn samtaka fatlaðra ung-
menna á íslandi. Svo hef ég
verið varaformaður lands-
sambandsins síðan 1984.“
Heimilisaðs toð
mál málanna
- Eru það einhverjir sérstakir
málaflokkar öðrumfremur sem
þú hefur haft áhuga á?
SJÁLFSBJÖRG 9