Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Page 13
Æ fleiri faflaðir
njóta menntunar
Möguleikum fatlaðra á því að mennta
sig fer stöðugt fjölgandi, og veitir ekki
af. Tölvutæknin hefur opnað þessum
þjóðfélagshópi nýjar leiðir sem ekki
voru til staðar fyrir örfáum árum. Það
hefur líka verið stefna stjórnvalda að
efla fullorðinsfræðslu, fjarkennslu og
önnur form sem mörg hver henta
fötluðum jafnvel betur en regluleg seta
á skólabekk.
Á sl. vori varð nýtt framhaldsskóla-
frumvarp að lögum og samkvæmt því
hafa fatlaðir nú í fyrsta sinn lög-
skipaðan rétt til þess að stunda nám í
framhaldsskólum. Áður voru yfirvöld
menntamála ekki skyldug til að greiða
götu fatlaðra eftir að grunnskólanum
lýkur.
Enn á þó eftir að útkljá nokkur vafa-
atriði í þessu sambandi. Til dæmis
reyndu samtök fatlaðra og aðstand-
enda þeirra að koma því inn í lögin að
ráðuneytinu bæri að standa straum af
öllum aukakostnaði sem hlýst af
skólavist fatlaðs manns, svo sem
launum aðstoðarmanns ef hans er
þörf. Þetta fékkst ekki í gegn og nú er
þess beðið hvort svona ákvæði verður
í reglugerð sem eftir er að semja í
framhaldi af lagasetningunni.
Það reynir á þetta síðarnefnda atriði
strax á þessu hausti þegar Ásdís
Jenna Ástráðsdóttir sest í Mennta-
skólann við Hamrahlíð. Foreldrar
Ásdísar hafa fengið loforð ráðuneytis-
ins fyrir því að laun aðstoðarmanns
hennar verði greidd.
Hér á eftir fara viðtöl við Ásdísi og
Stefán Sigurvaldason sem sest á
skólabekk í Tölvuháskóla Verslunar-
skóla íslands í haust.
Mennt
er máttur
Menntun er lykillinn að starfi og
lífshamingju einstaklingsins.
Stefna Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra í menntamálum
fatlaðra er i hnotskurn þessi:
• Strax og fötlunar verður vart
hjá einstaklingi skal hefja
greiningu, þjálfun og kennslu.
• Foreldrar fatlaðra barna
skulu eiga kost á ráðgjöf.
• Allir skulu eiga kost á skóla-
göngu.
• Allar skólastofnanir skulu
vera aðgengilegar fötluðum.
• Fatlaðir skulu eiga kost á
námsefni/námsaðstoð og
kennslu við hæfi.
• Sérskólar skulu vera í
tengslum við aðra skóla.
• Möguleikar fatlaðra til mennt-
unar/endurmenntunar séu
tryggðir.
• Fötluðumsétryggðnáms-og
starfsráðgjöf.
Úr stcfnuskrá
Sjálfsbjargar
SJÁLFSBJÖRG 11