Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 19

Sjálfsbjörg - 01.07.1988, Side 19
Björgúlfur Andrésson framkvæmdastjóri Hjálpartækjabankans I nýju starfsumhverfi í Hátúni 12. Hjálpartœkjabankinn í eigið húsnæði Um verslunarmannahelg- ina í sumar flutti Hjálpar- tækjabanki Sjálfsbjargar og Rauða krossins sig um set. Húsnæðið í Nóatún- inu var rýmt og bankinn kom sér fyrir í nýrri við- byggingu austan við Sjálfsbjargarhúsið í Há- túni 12. Við þetta hartnær tvöfaldast athafnapláss fyrirtækisins og hefur það nú um 500 fermetra til afnota. “Það verða miklar beytingar innandyra,“ sagði Björgúlfur Andrésson forstöðumaður Hjálpartækjabankans þegar tíðindamaður Sjálfsbjargar heimsótti hann á nýja staðinn. „Þetta er miklu stærra og á einni hæð en áður vorum við á tveimur hæðum. Að því er mikil hagræðing og öll aðstaða starfsfólks batnar mikið við þessi umskipti. Hér erum við í húsnæði sem er aðlagað starf- seminni og innréttað í sam- ræmi við hana. Auk þess er það nýtt, bjart og fallegt. Utandyra verða einnig þær breytingar að nú komast fatl- aðir að dyrunum. Að vísu er aðkoman ekki alveg frágengin enn en það á eftir að brey tast. “ Hjálpartækjabankinn hóf starfsemi sína fyrir 12 árum og var Björgúlfur þá eini starfs- maðurinn en auk hans unnu konur úr kvennadeild Rauða krossins í sjálfboðavinnu nokkra tíma í viku. Fljótlega varð að bæta við öðrum starfs- Hjálpartæki manni og árið 1980 var ráðinn hjúkrunarfræðingur í hálft starf. Samtímis fór fyrirtækið að bjóða upp á svonefndar stoma-vörur. Arið 1982 bættist svo iðjuþjálfi í hópinn og veitir hann viðskiptavinum bankans ýmiss konar þjónustu (sjá viðtal). 1.200 manns á mánuði - Hefur ekki orðið ýmis breyting á starfseminni á þessum 12 árum? “Jú, úrvalið hefur að sjálf- sögðu aukist jafnt og þétt allan tímann. Við höfum reynt að fylgjast með nýjungum eftir bestu getu og njótum við það aðstoðar iðjuþjálfa og fleiri aðila. Framboðið á hjálpar- tækjum hefur aukist gífurlega á þessum áratug. Það tók mikinn fjörkipp á ári fatlaðra 1981. Þaö verða breytingar á þessum vörum eins og hverri annarri iðnaðarvöru. Veltan hefur aukist verulega á þessum tíma þótt ég hafi ekki tölur um það. Ég tók það hins vegar saman á síðasta ári að hingað komu um 1.200 manns á mánuði. Auk þess afgreiðum við mikið í gegnum síma og sendum tæki til fólks sem getur ekki hreyft sig og hefur engan til að senda. Við erum með bíl- stjóra í fullu starfi og hann hefur nóg að gera.“ - Eru ekki árstíðasveiflur í eftirspurninni? “Jú, það eru toppar á vet- urna þegar fólk er að slasa sig í hálkunni og líka á sumrin þegar sjúkrahús loka deildum vegna sumarleyfa.“ - Verður bryddað upp á ein- hverjum nýjungum eftir flutn- ingana? SJÁLFSBJÖRG 17

x

Sjálfsbjörg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjálfsbjörg
https://timarit.is/publication/1654

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.